Fréttablaðið - 19.03.2006, Blaðsíða 63
19. mars 2006 SUNNUDAGUR24
Þegar ég var barn
átti ég gífurlega
erfitt með að
kyngja kjöti og
fiski. Var ekk-
ert sérstak-
lega matvönd
á annan hátt:
hámaði í mig ólíf-
ur, reyktan lax og gæsa-
lifrarkæfu enda með allt of mikinn
lúxussmekk. Man þó eftir að kúgast
yfir áferð á steikum og soðinni ýsu.
Kjöt í dularbúningi eins og kjötboll-
ur, kjúklinganaggar og fiskifingur
áttu betur við mig enda fannst mér
alltaf eitthvað ankannalegt við að
borða dýr. Ellefu ára gerðist ég svo
dýraverndunarsinni, hélt fundi með
jafnmiklum nördum og mér sjálfri
og eyddi öllum tíma við að rannsaka
dýralíf í skógum og tjörnum úthverfa
Lundúna. Náði mér í froskaegg í fötu
og bjó til tjörn í garðinum heima og
fylgdist með metamorfósa hala-
kartna, skoðaði drekaflugnalirfur og
salamöndrur, klædd grænum vað-
stígvélum, drullug upp fyrir haus
með háfinn í annarri hendi. David
Attenborough var hetjan mín. Tólf
ára gerðist ég svo meðlimur World
Wildlife Fund, varð meðvituð um að
mannkynið var að murka lífið út úr
ótal dýrategundum um allan heim og
hélt langar ræður yfir þolinmóðum
foreldrum um ranglæti gagnvart
ferfætlingum og þá sér í lagi hversu
rangt það var að éta blessaðar skepn-
urnar. Gerðist sumsé grænmetisæta
í takt við tíðaranda Lundúna á þess-
um árum þegar Cranks og Peta og
Greenpeace voru upp á sitt besta.
Flutti svo heim til Íslands fimmtán
ára þar sem áhyggjufullar ömmur
skildu ekki orðið VEGETARIAN .
Eyðilagði öll matarboð með þessum
,,tiktúrum“ þegar allir örvæntu yfir
hvað ætti eiginlega að gefa blessuðu
barninu. Og grænmetisætufasinn
minn leið smátt og smátt undir lok.
Nútildags skammast ég mín ekki
fyrir að búa til afbragðsgóða tartar-
steik. Hef meiri áhyggjur af ástand-
inu í Íran en hversu margar sækýr
eru eftir í heiminum. Brosi þó alltaf
út í annað þegar ég sé auglýsingar
eins og ,,Vistvæn brúnegg úr frjáls-
um hænum - hænur sem eru sælar
með tilveruna,“ og kaupi þau að
sjálfsögðu.
STUÐ MILLI STRÍÐA Fortíð mín sem grænmetisæta
ANNA MARGRÉT BJÖRNSSON GERIR UPP VIÐ DÝRAHEIMINN
���������
��������
��� �����������
��������������������
��������� ������������������
����������� ���������