Fréttablaðið - 19.03.2006, Blaðsíða 18
19. mars 2006 SUNNUDAGUR18
Viðskiptavinir Landsbankans hafa getað keypt og selt hlutabréf
í Danmörku, Svíþjóð og Bandaríkjunum í gegnum E*TRADE. Nú
bætist Noregur við. Landsbankinn er eini bankinn sem býður upp
á bein viðskipti með hlutabréf á öllum Norðurlöndunum og í
Bandaríkjunum.
Mikið líf hefur verið á norska markaðnum síðustu misseri og
margir spennandi fjárfestingarmöguleikar í boði enda er olíuverð
hátt, en það hefur jafnan góð áhrif á norska markaðnum. Margt
bendir því til þess að tækifæri séu til staðar á Noregsmarkaði um
þessar mundir.
Með skráningu á E*TRADE í gegnum Landsbankann býðst
möguleiki að nýta sér þau tækifæri beint og milliliðalaust og fá
jafnframt aðgang að haldgóðum markaðsupplýsingum.
E*TRADE er einfalt í notkun og allt viðmót er á íslensku. Því er
ekkert til fyrirstöðu að tryggja sér aðgang að mörkuðum Norður-
landanna og Bandaríkjanna með því að skrá sig á E*TRADE og
byrja að nýta tækifærin.
Ert þú á E*TRADE?
Kynntu þér málið á landsbanki.is eða hringdu síma 410 4000.
Velkominn Noregur!
Á síðasta ári hækkaði Det Norske
Oljeselskap (DNO) um 853% sem
var mesta hækkunin á markaðnum.
Markaðsverðmæti félaga í Noregi
er 170.266 milljónir evra.
Fjöldi fyrirtækja í norsku
kauphöllinni árið 2005
var 219 og þar af voru
46 ný félög.
Á morgun opnar E*TRADE
fyrir vi›skipti í kauphöllinni í Osló
25 félög mynda úrvalsvísitöluna
í norsku kauphöllinni.
„Hver skúlptúr er einstakur,“ segir
listamaðurinn og útskýrir að verk-
in sín séu mótsagnakennd og hann
vilji ganga fram af ímyndunar-
aflinu við gerð þeirra. „Verkin snú-
ast ekki um mátt eyðileggingarinn-
ar, um ryðmyndun eða nostalgíu
gagnvart tíma heldur eru þetta
miklu frekar háþróuð verk sem á
vissan hátt eru á undan sinni sam-
tíð,“
Á sýningunni ber fyrir augu
fjöldann allan af stálbrotum sem
hefur verið raðað upp, ýmist kerf-
isbundið í hálfgerð mynstur eða
kaotískt inn í rými þar sem leitast
er við að að endurskapa sprenging-
una sjálfa. Einnig ber fyrir augu
málverk og ljósmyndir, kvikmynd
sem gerð var um sköpunarferli
skúlptúranna og líkan af húsi sem
Guðjón hyggst reisa. „Það heitir
Sprungið hús,“ segir Guðjón en það
leyndarmál hvar á að reisa það.
Stálið lifnar við
Guðjón notar kaldpressað stál í
skúlptúrana. „Þetta er háþróuð
nútímaafurð, stál sem notað er í
byggingariðnaði og þetta efni ber á
vissan hátt í sér líkinguna við mód-
ernismann og við nútímann. „Áður
en ég sprengi skúlptúrana er þeim
raðað upp mjög kerfisbundið, í
reglufast kerfi þar sem við mælum
fjarlægðir upp á millimeter til þess
að kalla fram sem mestar öfgar,“
segir Guðjón. Stálið er sérstaklega
sterkt en má sín lítils gagnvart dín-
amítinu og hamflettist á ófyrirsjá-
anlegan hátt. „Skúlptúrarnir fara í
gegnum ákveðið vinnuferli,“
útskýrir Guðjón en eftir spreng-
ingarnar er þeim safnað saman og
þeir lakkaðir. „Það glittir samt allt-
af í málminn,“ segir listamaðurinn
„og þú sérð óhreinindin og leifarn-
ar af sprengingunni.“
Guðjón líkir vinnuaðferð sinni
við ósjálfráða teikningu eða skrift.
„Ég nota dínamít eins og aðrir nota
penna og blað, ég nota það til að
teikna og forma hluti,“ segir Guð-
jón en í verkunum leyfir hann efn-
inu að ráða. „Verkin eru með lág-
marksstýringu þó ég skipuleggi
mjög vísindalega, t.d. magn
sprengiefnisins sem ég nota sem
og tímann milli sprenginganna.“
Sprengingin verður síðan hvatinn
sem kemur öllu öðru af stað og
Guðjón segir afraksturinn bren-
glaðir og afstæðari heldur en
mannshugurinn gæti nokkurn tíma
látið sér detta í hug.
Drunur í Geldinganesi
„Þetta er ákaflega skemmtilegt
vinnuferli, myndlist á að vera
skemmtileg,“ segir Guðjón bros-
andi. „En þetta er líka ákaflega
flókið mál að sprengja svona nærri
byggð. Það er ekki hægt að búa til
svona listaverk á mörgum stöðum í
heiminum, t.d. ekki í kringum borg-
ir í Evrópu eða í Bandaríkjunum.
Ástandið þar er hreinlega of
ótryggt. Spennan of mikil.“
Hér heima þarf líka að fara í
Afsprengi arkitekts
Guðjón Bjarnason, myndlistarmaður og arkitekt, hefur sprengt skúlptúrana sína síðast-
liðin tíu ár en í verkum sínum vinnur hann með tómið og möguleika hins ófyrirsjáanlega.
Kristrún Heiða Hauksdóttir rölti um Hafnarhúsið ásamt sprengjuglaða fjöllistamannin-
um og sá sýninguna hans AFsprengi HUgsunar sem opnaði um helgina.
KALDPRESSAÐ STÁL Stálið sem Guðjón notar er líka
notað í byggingariðnaði en Guðjón telur það á vissan
hátt bera í sér líkinguna við módernismann og við
nútímann. FRÉTTABLAÐIÐ/ STEFÁN
„Fólk fær oftast óstöðv-
andi hlátursköst í
nokkrar mínútur á eftir
sprengingarnar.“