Fréttablaðið - 19.03.2006, Blaðsíða 50
ATVINNA
16 19. mars 2006 SUNNUDAGUR
BORGARSKJALASAFN REYKJAVÍKUR
Deildarstjóri þjónustudeildar
Helstu verkefni:
Afgreiðsla fyrirspurna frá borgarstofnunum og almenningi, um-
sjón með lesstofu og vef, skráning skjala, vinna við sýningar og
fleira.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf í sagnfræði eða önnur sambærileg menntun
sem nýtist í starfi
• Þekking og áhugi á sögu Reykjavíkur
• Góð íslenskukunnátta og tölvufærni
• Færni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
Um er að ræða fullt framtíðarstarf. Laun eru samkvæmt kjara-
samningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi stéttarfélags. Við-
komandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar veita Svanhildur Bogadóttir, borgarskjalavörður og
Gunnar Björnsson, skrifstofustjóri í síma 563-1770. Skriflegum
umsóknum ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skal
skila til Borgarskjalasafns Reykjavíkur, Tryggvagötu 15, 101
Reykjavík eða sendast á netfangið
svanhildur.bogadottir@reykjavik.is.
Umsóknarfrestur er til 20. mars 2006.
Meginverkefni Borgarskjalasafns er móttaka eldri skjala frá stofnunum og
fyrirtækjum borgarinnar, eftirlit og leiðbeiningar um skjalastjórn til stofn-
ana borgarinnar og afgreiðsla fyrirspurna. Ennfremur söfnun einkask-
jalasafna aðila í Reykjavík og rannsóknir og kynningar á sögu Reykjavíkur,
m.a. með sýningum.
UMHVERFISSVIÐ
Heilbrigðisfulltrúi – Matvælaeftirlit
Umhverfissvið Reykjavíkurborgar auglýsir laust til umsóknar
starf heilbrigðisfulltrúa hjá Matvælaeftirliti, Heilbrigðis-
eftirliti og vöktun. Næsti yfirmaður er deildarstjóri
Matvælaeftirlits.
Leiðarljós Matvælaeftirlits er að tryggja, sem kostur er, að
neysluvatn og matvæli borgarbúa séu örugg og heilnæm.
Ennfremur, að gætt sé þeirra meginsjónarmiða, er koma fram í
Staðardagskrá 21, um verndun þeirra gæða sem felast í
ómenguðu neysluvatni og matvælum.
Starfið felst m.a. í þjónustu við íbúa og fyrirtæki borgarinnar
og ábyrgð á:
• Reglubundnu eftirliti með matvælum og neysluvatni.
• Skráningum og skýrslugerð, sinna kvörtunum og annast
fræðslu.
• Sinna öðrum verkefnum samkvæmt gildandi starfslýsingu
fyrir heilbrigðisfulltrúa og samkvæmt fyrirmælum deildar-
stjóra.
• Samstarf og samvinna við aðrar deildir Heilbrigðiseftirlits og
vöktunar.
Menntunar og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði heilbrigðisvísinda, raunvísinda, eða
sambærilega menntun, s.s. matvælafræði eða dýralækningar.
• Hæfni í mannlegum samskiptum er afar mikilvæg sem og
geta til að leiða og taka þátt í uppbyggilegu hópastarfi.
• Jákvæðni og vilji til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verk-
efni.
• Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagningu í starfi
• Réttindi til að mega starfa sem heilbrigðisfulltrúi æskileg.
Launakjör fara að kjarasamningum viðkomandi stéttarfélaga og
Reykjavíkurborgar.
Nánari upplýsingar veita Óskar Í. Sigurðsson, deildarstjóri Mat-
vælaeftirlits, og Árný Sigurðardóttir, forstöðumaður Heilbrigðis-
eftirlits og vöktunar,.hjá Umhverfissviði Reykjavíkurborgar,
Skúlagötu 19, frá kl. 9-16 í síma 411 8500.
Umsóknir skulu berast til Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar eigi
síðar en 31. mars nk. merktar ÑHeilbrigðisfulltrúiì.
Við ráðningar í störf vilja borgaryfirvöld stuðla að því að þau
flokkist ekki í sérstök kvenna- eða karlastörf og hvetja því það
kynið sem er í minnihluta í viðkomandi starfsgrein að sækja
um. Konur er því hvattar til þess að sækja um starfið.
Allar nánari upplýsingar um Umhverfissvið er að finna á slóð-
inni www.umhverfissvid.is
Reykjavík 19. mars 2006.
Umhverfissvið Reykjavíkurborgar
LISTASAFN REYKJAVÍKUR
Afgreiðslustjóri hjá Listasafni Reykjavíkur – Ásmundarsafni
Laust er til umsóknar staða afgreiðslustjóra í Ásmundar-
safni við Sigtún. Um er að ræða hlutastarf og er starfshlut-
fall 60%. Unnið er alla virka daga frá kl. 10-16 frá 1. maí –
30. september og frá 13-16 frá 1. október til 30. apríl.
Helstu verkefni:
• Móttaka og afgreiðsla gesta.
• Gæsla listmuna og safnhúss.
• Sjóðsuppgjör.
• Símsvörun og upplýsingagjöf til gesta.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Haldgóð menntun sem nýtist í starfi.
• Þekking á og reynsla af þjónustu- og/eða verslunarstörfum
nauðsynleg.
• Færni í erlendum tungumálum. Góð enskukunnátta nauð-
synleg og færni í öðru tungumáli æskileg.
• Tölvukunnátta, færni í ritvinnslu og notkun samskiptaforrita.
• Færni í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði, nákvæmni, sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og hlut-
aðeigandi stéttarfélags. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf
sem fyrst.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist til Önnu Friðbertsdóttur, skrifstofustjóra, Listasafni
Reykjavíkur, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík. Jafnframt er tekið á
móti umsóknum á netfangið anna.fridbertsdottir@reykjavik.is.
Umsóknarfrestur er til 31. mars 2006.
Áhugaverð störf í boði
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni.
Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is/storf
Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar upplýsingar
um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn
sem þú þarft að ná í.
Hársnyrtir
óska eftir hársnyrti í 50% starf.
Hársnyrtistofan Dalbraut 1, sími 699-7537.
Utanhúsklæðing
Óska eftir mönnum til að klæða utan atvinnuhúsnæði
á vestanverðu Snæfellsnesi. Tilboð eða tímavinna.
Báruál ca 900 m2
Flísar ca 800m2
Húsnæði og fæði á staðnum. Verkið getur hafist strax.
Upplýsingar veittar í síma 896-2676
Sigurður Örn Sigurgeirsson eða husmot@mi.is
Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir tvær
lausar stöður innan sendiráðsins.
1. Staða Ritara fyrir stjórnmála og verslunardeild.
2. Staða Bókara/gjaldkera.
Umsóknarfrestur er til 30. mars.
Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu sendiráðsins
http//iceland.usembassy.gov.
Bílstjóri óskast
Mata óskar að ráða skemmtilegan, röskan og þjónustulundaðan
starfsmann í útkeyrsla á vörum þess í verlanir og til annara við-
skiptavina auk þess að aðstoða við vörutiltektir og almenn lager-
störf þegar það á við.
Áhugasamir sendi umsókn til Mötu ehf. á netfangið:
eggert.g@mata.is
starf.is
Erum að leita að fólki m.a. í eftirfarandi störf:
skrifstofumaður - tryggingaráðgjafi -
sölumaður á fasteignasölu - leikskólakennari -
stuðningsfulltrúi - húsasmiður -
verkamaður - ritari - bókari -
starfsmaður á leikskóla - nemi í húsasmíði -
nemi í múrverki - auk nokkurra hlutastarfa
Er núna rétti tíminn til að skipta um starf ?
starf.is
Hlíðasmára 15, 201 Kóp.
s: 530 9140
www.starf.is – starf@starf.is
Sólheimar
Stuðningsfulltrúi
Óskað er eftir stuðningsfulltrúa til starfa á
Sólheima. Unnið er skv. vinnulotukerfi.
Leitað er að einstaklingi með góða almenna
menntun og hæfni í mannlegum samskiptum.
Nánari upplýsingar gefur Valdís Brynjólfsdóttir í
síma: 480-4414 eða 861-9657 á milli kl. 8 og 17
virka daga.
Í boði er áhugavert og krefjandi starf fyrir
metnaðarfullann einstakling sem hefur áhuga á
að vinna á Sólheimum. Æskilegt er að viðkomandi
geti hafið störf sem fyrst.
Sólheimar eru sjálfbært byggðahverfi í Árnessýslu.
Á Sólheimum er m.a. félagsþjónusta, garðyrkju-
stöð, skógræktarstöð, gistiheimili, verslun með
helstu nauðsynjavörur, listhús og sex verkstæði
sem vinna að listsköpun og endurvinnslu.
Ennfremur kaffihús, höggmyndagarður, kirkja,
sundlaug og umhverfissetrið Sesseljuhúsi.
www.solheimar.is