Fréttablaðið - 19.03.2006, Blaðsíða 68
Sjónvarpsþættirnir um Jack
Bauer og félaga hjá CTU hafa
notið gríðarlegra vinsælda undan-
farin ár þannig að það hlaut að
koma að því að Sony Computer
gerði tölvuleik byggðan á þáttun-
um.
Hér hefur ekkert verið sparað;
allir aðalleikarar þáttanna ljá
leiknum andlit sín og raddir, höf-
undar þáttanna skrifa handritið að
leiknum og tónlist og hljóð eru þau
sömu og notuð eru í sjónvarpinu.
Leikurinn sjálfur er svo blanda af
skotleik, bílaleik og míníleikjum,
en allt þetta ásamt pottþéttum
söguþræði skilar sér í þéttum og
skemmtilegum leik.
Hryðjuverkamenn, mannrán,
óvæntar fléttur í sögunni, tifandi
klukka og allt annað gera þennan
leik að sannri 24-upplifun. Leikur-
inn á sér stað á milli annarrar og
þriðju þáttaraðarinnar og svarar
mörgum spurningum um persón-
ur og atburði. Leikmenn fá að
stýra Jack Bauer, Kim Bauer,
Tony Almeida, Michelle Dressler
og fleiri starfsmönnum CTU.
Leikmenn geta handleikið hin
ýmsu vopn, en þar á meðal eru
leyniskytturifflar, haglabyssur,
skammbyssur og vélbyssur. Þar
að auki taka leikmenn þátt í æsi-
spennandi bílaeltingaleikjum þar
sem keyrt er um Los Angeles
þvera og endilanga. Míníleikirnir
ganga svo út á að yfirheyra ill-
menni með aðferðum sem Jack
Bauer er þekktur fyrir, aftengja
sprengjur, opna lása og margt
fleira. Ef leikurinn fjallaði bara
um Jóa á bolnum, en ekki Jack
Bauer og félaga, væri hann aðeins
í góðu meðallagi, en það er 24-
stemningin sem gerir leikinn að
toppleik sem óhætt er að mæla
með. Ólafur Þór Jóelsson
Líf Jacks Bauer
24 THE GAME
VÉLBÚNAÐUR: PLAYSTATION 2
Niðurstaða: Sannkölluð 24 upplifun sem
hægt er að mæla með fyrir aðdáendur
þáttanna.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
AIRBRUSH
námskeið - EKKI missa af þessu!
• Loftpressa með höldu fyrir airbrush penna.
• Airbrush penni með skál að ofan.
• 12 litir af S/B farða (1 oz)
• Kinnalitir og skygging, start pakki
• S/B hreinsir
• S/B Primer
• Airbrush rakakrem
• Dura litir, 8 litir í pakka, Primary, skintone,shimmer.
Verð: 98.000 kr. Hámark 12 þátttakendur. Skráning í síma 565-2300 eða skoli@rifka.is
Skoðið: www.temptu.com; www.ralphsiciliano.com; www.rifka.is
Förðunarskóli rifka,
Hjallabrekku 1, 200 Kópavogi.
Helgarnámskeið með einum virtasta förðunarmeistara heims,
Ralph Siciliano. Einstakt tækifæri til að kynnast töfrum airbrush
tækninnar. Innifalið í námskeiðsgjaldi eru kennslugögn og veg-
legur vörupakki: - Kennsla í tvo daga