Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.03.2006, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 19.03.2006, Qupperneq 12
 19. mars 2006 SUNNUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRI: Arndís Þorgeirsdóttir VARAFRÉTTASTJÓRI: Trausti Hafliðason RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 Með nokkrum sanni má segja að staða sjávarútvegs hafi breyst í veigamiklum atriðum á allra síðustu árum. Ein er sú að hlutur greinarinnar í þjóðarbúskapnum er mun minni en áður var. Í samræmi við þá staðreynd heyrast nú ýmis- leg viðhorf úr röðum forystumanna atvinnugreinarinnar sem fyrrum voru nær óhugsandi. Nýjar aðstæður kalla eðlilega á ný viðhorf. Sú var tíð að á engan mann í íslensku atvinnulífi var hlustað meir en formann LÍÚ. Það hefur breyst eins og allt annað. En það má ekki verða til þess að menn leggi alls ekki við hlustir þegar talsmenn þessarar atvinnugreinar kveðja sér hljóðs. Verð- mætasköpunin í landinu er þrátt fyrir allt ekki einvörðungu fólg- in í bankastarfsemi og hlutabréfaviðskiptum. Friðrik Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, skrifaði grein í Fréttablaðið í liðinni viku til varnar Valgerði Sverrisdóttur iðn- aðar- og viðskiptaráðherra. Einhvern tíma hefðu það þótt óhugs- andi tíðindi. Tilefnið var þær árásir sem ráðherrann sætti vegna hugleiðinga sinna um upptöku evru í stað krónu. Nú eru aðstæð- ur með þeim hætti að fulltrúar ólíkra atvinnugreina geta hugsað á svipuðum eða sömu nótum um efni sem þetta. Í grein sinni segir Friðrik Arngrímsson: „Íslensk fyrirtæki í sjávarútvegi, ferðaþjónustu og iðnaði hafa liðið fyrir allt of sterkt gengi krónunnar. Þá hafa miklar sveiflur á gengi krón- unnar á undanförnum árum gert fyrirtækjunum erfitt fyrir.“ Þetta eru einföld og skýr skilaboð þó að þau séu ekki ný af nál- inni. Lykilatriðið er ósk um meiri efnahagslegan stöðugleika. Er hægt að fara aðrar leiðir til þess að ná meiri árangri í þeim efnum en tekist hefur á undanförnum árum? Framkvæmdastjórinn hefur rétt fyrir sér þegar hann segir að ekki megi blása á málefnalegt framlag til þeirrar umræðu. Nú er það svo að einhliða upptaka evru er ekki raunhæfur kostur. Hugleiðingar þar um geta eigi að síður verið málefnalegar. En hvað sem því líður má ekki sópa vandanum varðandi óstöðug- leika krónunnar undir teppið. Hann þarf að brjóta til mergjar með langtíma sjónarmið í huga. Sjávarútvegurinn býr við þær aðstæður að laun sjómanna ráðast af afurðaverði og eru þannig með óbeinum hætti tengd gengi krónunnar gagnvart viðskiptagjaldmiðlunum. Með hæfi- legri einföldun má því segja að útgerðin sé að hluta evrutengd. Sennilega væri útgerðin löngu strönduð ef hún hefði ekki inn- byggða aðlögun að þessu leyti. Aðrar samkeppnisgreinar eru verr settar. Allt er þetta spurning um aga í hagkerfinu. Óhætt er að full- yrða að með meiri aga í kjarasamningum, ríkisfjármálum og peningamálum hefði mátt tryggja meiri stöðugleika og minni viðskiptahalla. Með upptöku evru yrði sá agi ekki valkvæður. Agaleysi í kjarasamningum gæti þannig leitt til atvinnuleysis. Eru menn tilbúnir að lúta þeim aga utan frá sem þeir hafa ekki verið tilbúnir að beita sig að eigin frumkvæði? En hér er einnig að ýmsu öðru að hyggja. Ópólitísk erlend fjárfesting í landinu er af skornum skammti. Óvissan um stöð- ugleika krónunnar er ein af ástæðum þess. Á þessu þarf að verða breyting. Það er því rétt hjá framkvæmdastjóra LÍÚ að hér eru meiri hagsmunir í húfi en svo að drepa megi umræðunni á dreif þó að lausnin liggi ekki endilega á borðinu eins og sakir standa. Fyrir áttatíu og fimm árum eða svo var ort að risin væri elding þess tíma sem fáliðann virti. Heimslífið sjálft var tafl hins glöggeygða gests og gæfan ráðin ef leikið var rétt. Og hví skyldu Íslendingar, upp til hópa greindir og skemmtilegir, ekki eiga fullt erindi á það risaskákmót? Árangurinn var reyndar glæsi- legur. Á örfáum áratugum breytt- ist Ísland úr einu fátækasta ríki álfunnar í eitt það allra ríkasta í heimi. Alþjóðleg viðskipti lögðu grunninn að auðlegð Íslands, auð- lindum og mannauð var komið í verð á erlendum mörkuðum og allt í einu áttum við góð hús, vegi, skóla, spítala og nú síðast flat- skjái. Það er því ekki skrítið að flest- ir Íslendingar líta hnattvæðingu viðskiptalífsins jákvæðum augum. Tækifærin eru alls stað- ar, hinn glöggeygði gestur þarf ekki að hafa stórþjóð sér að baki til að ná árangri. Lífskjarabylt- ingin undanfarinn áratug og hálf- an er til vitnis um að séu aðstæð- ur réttar í hagkerfinu nýti einstaklingarnir tækifærin sem gefast, bæði heima og heiman. Alþjóðavæðing viðskiptalífsins er okkur því mjög mikilvæg, hagsmunir okkar krefjast frjálsra viðskipta á sem flestum sviðum. Mörgum er tamt að líta svo á að hnattvæðingin verði ekki stöðvuð, hún sé einhvers konar óstöðvandi lest, æðandi á beinu spori. Því miður geymir nýliðin saga lexíu um að ekki þarf allt að vera sem sýnist í þessum efnum. Við upphaf tuttugustu aldar voru heimsviðskiptin sem hlutfall af heimsframleiðslunni síst minni en nú er. Styrjaldir, kreppa og verndarstefna knésettu frjáls viðskipti á milli þjóða. Ég ætla ekki að fara að spá slíkri óáran, en það eru þó nokkur atriði sem vert er hugleiða þegar spáð er í hvað er framundan á þessum vettvangi. Ójafnvægi milli hagkerfa heims- ins Bandaríkin eru nú sem fyrr afl- vaki heimsviðskiptanna. Hagkerfi þeirra er til dæmis sex sinnum stærra en hagkerfi Kína. Í þessu samhengi veldur það nokkrum áhyggjum hversu mikill viðskipta- halli Bandaríkjanna er nú orðinn. Reyndar er hallinn einn og sér ekki stórvægilegt vandamál. Svo lengi sem Bandaríkin laða að sér erlenda fjárfestingu og þeim tekst að fjármagna hallann þá gengur þetta upp. Vandinn kann að verða sá að þjóðir sem hingað til hafa sparað mjög mikið eins og Kín- verjar muni byrja að auka neyslu sína og draga úr sparnaði. Kín- versk stjórnvöld hafa nú þegar hleypt af stokkunum áætlunum sem miða að því að auka neyslu landsmanna. Gangi slíkt eftir og ef sama gerist í fleiri „sparnaðar“ löndum eins og Þýskalandi, þá verður sú spurning áleitin hvernig Bandaríkin takast á við viðskipta- hallann. Þjóðleg verndarstefna Annað sem veldur áhyggjum er að nú eru háværari raddir en áður sem tala fyrir einhvers konar þjóðlegri verndarstefnu í við- skiptalífinu. Í Bandaríkjunum hefur þessi umræða verið tengd meðal annars öryggissjónarmið- um. Nýsamþykkt bann við því að fyrirtæki frá Dubai ræki hafnar- þjónustu og harðnandi tónn í garð kínverskra viðskiptahagsmuna eru dæmi um stefnumörkun sem er hnattvæðingu ekki í vil. Sama gildir um ýmsa evrópska stjórn- málamenn. Ótti við samruna fyrir- tækja þvert á landamæri er til dæmis áberandi. Einnig kemur ekki á óvart hversu illa gengur að afla stuðnings við þjónustutilskip- un ESB. Þar er um að ræða grund- vallaratriði þegar kemur að við- skiptafrelsi milli landa ESB. Átök trúarbragða Trúarbragðadeilur setja sífellt meiri svip á alþjóðastjórnmál. Skopmyndateikningarnar dönsku eru til dæmis birtingarmynd djúp- stæðs ágreinings og ólíkrar lífs- sýnar mismunandi menningar- samfélaga. Ástandið í Mið-Austurlöndum er og verður um nánustu framtíð ótryggt og ekki vafi á að það mun hafa skað- leg áhrif á heimsviðskiptin. Stríðs- rekstur hvers konar er alltaf vond- ur þótt stundum verði hann ekki umflúinn. Það er kvíðvænlegt ef þróun mála í Íran fer úr böndum og alþjóðasamfélagið neyðist til að grípa til hernaðaraðgerða til að koma í veg fyrir kjarnorkuvopna- væðingu landsins. Ef hernaður í Íran bætist við hernaðaraðgerðir í Afanistan og Írak er ekki von á því að það dragi úr spennunni á milli hins múslímska heims og hins vestræna í bráð. Aukin spenna fer ekki vel saman við friðsamlega verslun og viðskipti. Kanarífuglinn Aukning viðskipta milli þjóða er ekki sjálfgefin. Forsendur hnatt- væðingarinnar eru þegar á allt er litið frekar viðkvæmar og margt sem getur stöðvað þá jákvæðu þróun sem hefur verið undanfarna áratugi. Frjáls verslun og við- skipti eru svona eins og kanaríf- uglinn í námunni - þegar þeim hnignar er voðinn vís. Hnattvæðing - ekki sjálfgefin Í DAG HNATTVÆÐING ILLUGI GUNNARSSON Aukin spenna fer ekki vel saman við friðsamlega verslun og viðskipti. SJÓNARMIÐ ÞORSTEINN PÁLSSON Nýjar aðstæður kalla á ný viðhorf: Óhætt að leggja við hlustir Mest lesna viðskiptablaðið AUGLÝSINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLAÐINU ALLA MIÐVIKUDAGA Sa m kv æ m t fj ö lm ið la kö n n u n G al lu p o kt ó b er 2 00 5. Halldór þarf að svara Undanfarið hafa augu flestra beinst að Norðurlandi eystra þegar kemur að því hvar næsta álver eigi að rísa. Svo gæti farið að það breytist á næstu vikum. Suðurnesjamenn hafa lengi barist fyrir því að fá álver en nú þegar ljóst er að Varnarliðið, stærsti vinnuveitandinn á svæðinu, er á leið af landi brott liggur ljóst fyrir að þörf er á nýjum atvinnu- tækifærum fyrir þann fjölda fólks sem mun missa starfið á næstu mánuðum. Hall- dór Ásgrímsson forsætisráðherra verður á morgun til svara á opnum fundi A-listans í Reykjanesbæ. Listinn er sameiginlegt framboð Fram- sóknarflokks, Samfylkingar og óflokks- bundinna til sveitarstjórnarkosninganna í vor. Það er alveg ljóst hvað brennur á bæjarbúum um þessar mundir og mun Halldór þurfa að koma með skýr svör á fundinum. Spurningin er hvort brotthvarf Varnarliðsins réttlæti sértækar aðgerðir. Hvort næstu álversfram- kvæmdum verði stýrt á Suðurnesin. Vandi Björns Inga Flestir sem fylgjast með borgarpólit- íkinni vita að Framsóknarflokkurinn á í miklum vanda. Hann mælist vart í skoðanakönnunum og á Björn Ingi Hrafnsson, sem leiðir listann, mikið verk fyrir höndum. Björn Ingi virðist hins vegar vera uppteknari af vanda sjálfstæðismanna í borginni en síns eigin flokks. Á heimasíðu sinni gerir hann mikið úr því að Sjálfstæðis- flokkurinn sé nú úrkula vonar um að ná hreinum meirihluta í borginni og muni halla sér að F-listanum til þess að komast bakdyramegin til valda. Vitnar Björn Ingi í stjórnmálaskýringar höfundar Staksteina í Morgunblaðinu þessu til sönnunar. Það er í raun ekki óeðlilegt að Björn Ingi hafi áhyggjur af þessu því ýmislegt bendir til þess að ef F-listinn nái manni inn verði það á kostnað Fram- sóknarflokksins. Björn Ingi muni þá ekki komast inn í Ráðhúsið. trausti@frettabladid.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.