Fréttablaðið - 15.04.2006, Side 13
og kunningjum, gömlum skólafé-
lögum, kennurum eða jafnvel
leigubílstjórum sem einhvern tím-
ann hafa skutlað viðkomandi
bæjarleið.
Og ég sem hélt að rannsóknar-
blaðamennska fælist í því að fletta
ofan af spillingu og svínaríi frem-
ur en að níðast á sjúklingum og
aðstandendum þeirra.
■
MIÐVIKUDAGUR, 12. APRÍL
Hómósexúelt samkvæmi
Í kvöld var matarboð hjá Rögnu
Sigrúnu. Matarboðin hennar eru
mér sérstakt tilhlökkunarefni því
að hún ber fram rétt sem hún segir
að heiti „smásteik“ og fer elda-
mennskan fram samkvæmt æva-
fornri uppskrift úr Þingeyjar-
sýslu.
Þetta var dásamleg veisla. Ég
borðaði þangað til ég stóð á blístri
og þá kom eftirrétturinn búinn til
úr hindberjum og rjóma.
Í þessu samkvæmi hitti ég tvo
gáfumenn sem mér fer miklu
betur að hlusta á en tala við; það
voru þeir Skúli Norðdahl arkítekt
og Pétur Gunnarsson rithöfundur.
Pétur sagði að þetta væri hómó-
sexúelt samkvæmi, eða samkyn-
hneigt, af því að konurnar nenntu
ekki að hanga yfir okkur og settust
saman í hóp og ræddu um daginn
og veginn með miklum hlátrasköll-
um en við drengirnir hímdum
saman og ræddum yfirvofandi
endalok íslenskrar menningar af
eins miklum alvöruþunga og smá-
steikin leyfði.
Að lokum leysti húsfreyjan mig
út með gjöf. Það var bók sem heit-
ir „Orðin“ eftir franska meinhorn-
ið og heimspekinginn Jean-Paul
Sartre.
Eftir að ég kom heim fór ég að
blaða í bókinni. Satt að segja hef
ég aldrei verið snókinn fyrir
Sartre, mér varð nefnilega bumb-
ult af honum einu sinni fyrir æva-
löngu þegar ég var narraður til að
brjótast í gegnum þykkan doðrant
eftir hann sem heitir L‘Etre et le
néant, en það þýðir á íslensku
„Vera og óvera“, eins og það er nú
aðlaðandi titill.
Nema hvað, sem ég er að fletta
skræðunni rekst ég á þessa setn-
ingu:
„Enn í dag les ég frekar „Svörtu
seríuna“ en Wittgenstein.“
Ég hef greinilega
vanmetið Jean-Paul.
■ SKÍRDAGUR, FIMMTUDAGUR, 13.
Fjármál og hrossamál
Það lítur út fyrir að Prodi hafi
unnið kosningarnar á Ítalíu. Það
munar samt ekki nema um 25 þús-
und atkvæðum þegar 46 milljón
atkvæðaseðlar hafa verið taldir.
Berlusconi harðneitar að viður-
kenna ósigur og lætur að því liggja
að 38.500 kjörseðlar hafi „glat-
ast“.
Nú vantar ekkert nema lipran
mann eins og Jeb Bush til að sjá
um endurtalningu.
Fór í Reiðhöllina að sjá heims-
frægan tamningamann, Monty
Roberts. Flinkur maður,
Monty, og best gæti ég trúað
að hann sé næstum því jafn-
glúrinn og Reynir Aðalsteinsson
að skilja hrossamál. En Monty
er meiri markaðsmaður en Reyn-
ir. Þegar búið var að tilkynna 17
sinnum í hátalarakerfinu að maður
gæti keypt af honum bæði
sérstaka múla og dvd-
myndir um hvernig ætti að
nota þá hætti ég að telja.
Monty er greinilega tví-
tyngdur og jafnvígur á fjár-
mál sem hrossamál.
Fjármál, mannamál og hrossamál
LAUGARDAGUR 15. apríl 2006 13
Beint leiguflugKrít
53.900 kr.Verð frá:
Helios Porto Platanias
Fallegt 4ra stjörnu hótel með fyrsta flokks þjónustu og góðum
mat (1/2 fæði innifalið). Hótelið stendur við ströndina í Platanias
í göngufæri við veitingastaði, verslanir og bari. Loftkæld herbergi,
sundlaug, barir og veitingastaðir.
Íbúðahótelið Helios er með fallegum og rúmgóðum íbúðum, sundlaug,
barnalaug og snakkbar. Örstutt á strönd og verslanir og veitingastaðir
í næsta nágrenni.
á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn 2-11 ára
í íbúð m/1 svefnherbergi í 7 nætur 26. júní
69.900 kr.Verð frá:
á mann í tvíbýli með 1/2 fæði í 7 nætur 5. júní
Tyrkland, Portúgal, Mallorca - Viðbótaríbúðir:
Stórar og glæsilegar íbúðir með 2 svefnherb.
Sjá augl. í Morgunblaðinu á páskadag.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
3
22
30
04
/2
00
6
Vikulegt flug í allt sumar
Nánari uppl‡singar um fer›ir ásamt
l‡singum á hótelum er a› finna á www.urvalutsyn.is
Úrval-Útsýn, Lágmúla 4: 585 4000 – Akureyri: 460 0600 – Vestmannaeyjum: 481 1450
Sérstak
t tilboð
sverð
í allar b
rottfar
ir í júni
* *
*Flug, flugvallarskattar, gisting og íslensk fararstjórn.