Fréttablaðið - 15.04.2006, Síða 33
LAUGARDAGUR 15. apríl 2006 3
Vagnhöfða 23 - Sími 590 2000
Toyo All Terrain
33x12,5 R15
13.895,- stgr.
Toyo Mud Terrain
38x14,5 R16
31.950,- stgr.
Kynningarverð
Seltjarnarnesi
Klár í páskatúrinn ?
Toyo jeppadekk, margar stærðir
Kynningarverð
Gerið gæða og
verðsamanburð
33” 38”
KT verslun Akureyri
Njarðarnesi S. 466 2111
Bestu dekkin í USA
8 ár í röð Tire Review Magazine
Sjóvá hefur breytt hinni svo-
nefndu framrúðutryggingu í bíl-
rúðutryggingu þannig að allar
rúður ökutækis verða tryggðar.
Hér er um algera nýjung að
ræða á Íslandi. Í áratugi hefur
aðeins verið í boði framrúðutrygg-
ing sem bætir ekki tjón á öðrum
rúðum ökutækis en framrúðunni.
Kaskótryggingar geta bætt slík
tjón en oftast nemur það ekki
kostnaðinum við eigin áhættu við-
skiptavinarins. Hefur þetta verið
sérstaklega hvimleitt þegar um
innbrot í bifreiðar er að ræða þar
sem hliðarrúða hefur verið
brotin.
Árlega lenda í það minnsta 10
þúsund bifreiðaeigendur í því að
rúða í bifreið þeirra brotnar. Þetta
er því mikið hagsmunamál fyrir
bifreiðaeigendur.
Allar rúður
tryggðar
Framrúðutryggingu hefur verið
breytt þannig að hún nær til
allra rúðna bifreiða.
Sjö manna CX-9 verður stóri
bróðir CX-7.
Bílaframleiðandinn Mazda hefur
tilkynnt að nýr jeppi, Mazda
CX-9, verði sýndur í
fyrsta skipti á alþjóð-
legu bílasýningunni í
New York um miðjan
apríl. CX-9 er sjö
manna jeppi, nokkurs
konar stóri bróðir Mazda CX-7 sem
var kynntur fyrr á árinu í Detroit.
Mazda CX-9 er rennilegur og
sportlegur og ljóst að hann verður
áhugaverður kostur fyrir þá sem
vilja bæði spennandi útlit og þá hag-
kvæmni sem fylgir sjö manna
jeppa. Öflug 3,5 lítra,
sex strokka vél verð-
ur í CX-9 og lúxus-
innrétting sér til
þess að ökumanni
og farþegum líði
sem best í akstri.
CX-9 er hannaður fyrir Ameríku-
markað og mun koma á markað
vestanhafs snemma árs 2007.
Nýr Mazda jeppi
Áfram veginn
Einar Elí Magnússon kemst leiðar sinnar
Fyrir rétt tæpu ári, eftir páska-
ferð, rúllaði ég jeppanum mínum
inn í skúr og ætlaði mér tvo
mánuði í að gefa honum smá and-
litslyftingu. Ári seinna sér loks
fyrir endann á því sem er orðin
ein umfangsmesta lýtaaðgerð
sem ég hef komið nálægt.
Fyrir utan að færa hásingu,
skipta blaðfjöðrum út fyrir loft-
púða og setja hann á stærri dekk
en áður datt mér í hug að ryð-
bæta og sprauta yfirbygginguna
og skipta út stólum og klæðningu
inni í bílnum líka. Auðvitað þurfti
ég svo að hlaða í hann aukahlut-
um, bæði að innan og utan.
Þetta hljómar ekki sérlega
tímafrekt en ég er loksins farinn
að skilja alla sem fórnuðu hönd-
um þegar ég útskýrði nákvæm-
lega hvað ég ætlaði að gera við
þennan nítján ára gamla bíl.
Fyrir utan að hafa étið upp um
þriðjung af launum mínum síð-
asta árið hefur bíllinn dugað
mér, ásamt fjölskyldu og vinum,
í vinnustundir sem eru orðnar
fleiri en ég kæri mig um að
telja.
Þeir sem næst mér standa
hafa orðið fyrir barðinu á alls
konar relli og greiðabónum, auk
þess að þurfa að hlusta á mig í
tíma og ótíma blaðra af innlifun
um hrúgu af gömlu blikki sem
stendur nýsprautuð á bílskúrs-
gólfinu. Mig grunar reyndar að
sumir hafi lagt hönd á plóg til
þess eins að klára dæmið svo
þeir þurfi ekki lengur að hlusta á
sögur úr skúrnum.
Þó að við séum alltaf að rek-
ast á nýjar hindranir, og ég viti í
raun ekkert hvað við erum að
gera, hafa síðustu mánuðir í
skúrnum verið ótrúlega gefandi
og ánægjulegir. Með gott fólk til
beggja handa hef ég tekið þátt í
að búa til eitthvað sem mig hefur
alltaf langað í; ferðajeppa sem er
sniðinn að óskum mínum og
ferðafélaga minna. Og hvað
getur verið skemmtilegra en að
skapa eitthvað með vinum
sínum?
Í vikunni sem er að líða voru
númerin loksins skrúfuð á grip-
inn og honum hleypt út undir
bert loft. Ég ímynda mér að til-
finningin hafi verið lítið sýnis-
horn af því sem feður finna fyrir
þegar þeir líta frumburðinn
augum. Auðvitað er ekki hægt að
líkja bíldruslu við kraftaverk
lífsins, en ég er nægjusamur
með eindæmum og á meðan þú
ert að lesa þetta er ég á fjöllum,
útblásinn af stolti yfir frumburð-
inum. Enda er hann stór og
hraustur, 467 sentimetrar og
9.400 merkur.
Bílskúrsdrama - 2. hluti
Nú er hægt að tryggja fleira en framrúðuna.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
������������������������������
���������������
�������������������
������������������������������
��������������
�������
����������
����
������������� ��� � � � �
���� ��� �
��� �� � � ��
���������� � ���� ��� � �
��������������
�������
����������
����
� �� � �� � � � � �
� �� � � �
� � � � � �
� ��� �� ��
� � � �������
�� ���
� � �� ���
���
�� � � ��� ��
� �
� � ��
� � �
�� � � � � ��
�� �
� �� � �
������������������������������
���������������
�������������������
������������������������������
��������������
�������
����������
����
� � � �� � � ��������
� � � � � �
� � � � ��
�� � ��� � ������ ����
� � � �������
�� ���
� � �� ���
���
�� � � � ��������
� � � �
�� �� ��
����
�� � � �������
������
� � �� ���
���