Fréttablaðið - 19.04.2006, Page 27
MIÐVIKUDAGUR 19. apríl 2006 3
Það vita allir að áfengi og akstur
fara ekki saman. Eða hvað? Dauð-
leiður á klúðrinu í Miðausturlönd-
um hefur Bush Bandaríkjaforseti
beðið bandaríska þingið um 22
prósenta hækkun á fjárlögum til
þróunar á vænlegum arftökum
olíu, þar með talið etanóli.
Ætlunin er að innan sex ára
verði á boðstólnum samkeppnis-
hæft eldsneyti sem verður að
mestu leyti vínandi. Hugmyndin
er ekki ný af nálinni og þessi teg-
und eldsneytis er kölluð E85
vegna blöndunarhlutfallsins, 85
hluta retanóls á móti 15 hlutum af
bensíni. Þar sem etanól er ekki
eins rokgjarnt og bensín er bland-
an nauðsynleg til að ræsa mótora
og fyrir lausagang. Dísilvélar
geta reyndar gengið á E95 sem er
aðeins fimm hlutar bensíns.
E85 ku þegar vera notað í Bras-
ilíu og í Bandaríkjunum hafa 5
milljónir bíla, sem geta nýtt bæði
hefðbundið eldsneyti og E85,
verið framleiddar. Nokkrar bens-
ínstöðvar þar í landi bjóða þetta
nýja eldsneyti á sama verði og
bensín, eða rúmar 40 krónur lítr-
ann, en vonast er til að verðið
lækki umtalsvert í kjölfar aðgerð-
anna sem Bush hefur mælt fyrir.
Stærsti kosturinn við E85,
fyrir utan að vera næstum því
hæft til drykkjar, er að hægt er að
nota það sem til fellur í til dæmis
sykur- og kornrækt. Stærsti
ókosturinn er hins vegar sá að
það er ekki eins orkuríkt og hefð-
bundið eldsneyti og því eykst
eyðslan.
Nánar má fræðast um E85 á
vefslóðinni www.e85fuel.com.
Áfengisandi leysir
bensín af hólmi
Orðin „fyll‘ann“ öðlast nýja merkingu.
Nýr Chevrolet Avalanche er einn þeirra bíla sem geta gengið á E85.
Bílvélar eru knúnar áfram með
sprengingum. Frá hverri spreng-
ingu kemur hávaði og þegar
venjuleg bílvél sprengir 4-6.000
sinnum á mínútu í venjulegum
akstri er ljóst að það er ærið
verkefni að dempa allan hávað-
ann.
Hljóð ferðast í bylgjum eins
og flestir vita og út frá því ein-
falda atriði eru hljóðkútar smíð-
aðir. Hönnun þeirra er þó allt
annað en einföld því það krefst
jafnmikillar nákvæmni að smíða
vel heppnaðan hljóðkút og að fín-
stilla hljóðfæri, enda ekki svo
fjarskyld viðfangsefni ef grannt
er skoðað.
Í grunninn eru ein-
faldir hljóðkútar
samsettir
úr kút og
tveimur
rörum. Ytra
byrði kútsins er
þrefalt og innsta
lagið sér um að taka við
hluta af höggbylgjunum sem
koma úr púströrinu. Í kútnum
eru þrjú hólf og rörið frá vélinni
liggur í gegnum þau tvö fyrri og
inn í aftasta hólfið. Á milli þess
og miðhólfsins er gat, og svo
annað yfir í fremsta hólfið.
Hljóðið og höggbylgjurnar
losna því úr rörinu í aftasta hólf-
inu, troðast yfir í miðhólfið og
áfram í fremsta hólfið í gegnum
götin. Á leiðinni brotna bylgjurn-
ar á veggjunum og til verður
margvíslegt endurkast. Úr
fremsta hólfinu endurkastast
þær aftur inn í miðhólfið, á móti
þeim sem eftir koma, og þar ger-
ist nokkuð merkilegt: Bylgjurn-
ar vinna hvor á móti annarri og
dempa hvor aðra niður. Þetta
kann að virðast skáldskapur einn
en með einfaldri samlíkingu má
gera sér í hugarlund hvernig
þetta virkar: Við dælum lofti í
blöðru sem liggur á gólfi. Hún
þenst út vegna loftþrýstings inni
í blöðrunni. Ef við getum aukið
loftþrýstinginn beint ofan á
blöðruna, umfram það sem er
inni í blöðrunni, ætti hún að fletj-
ast út. Þetta er auðvitað mjög
erfitt í framkvæmd en einfalt í
grundvall-
arat-
riðum.
Það sama á
við um hljóðkúta. Þess-
vegna heyrist einhver
hávaði frá öllum bílum.
Aftur að hljóðkútnum. Úr
miðhólfinu liggur annað rör sem
fer aftur úr kútnum og flytur
loftþrýsting og brennslugufur í
gegnum pústkerfið. Þar sem
rörin liggja hlið við hlið í mið-
hólfi kútsins eru þau alsett litl-
um götum sem sjá um að flytja
gufurnar á milli en líka að brjóta
hljóðið upp í smærri bylgjur sem
margar rekast hvor á aðra og
jafnast þannig út. Af öllu þessu
má sjá að það er algjört lykilat-
riði að allar lengdir, mál og stað-
setningar hafa mikið um það að
segja hversu áhrifaríkur hljóð-
kútur er.
Hljóðkútar
byggja á hljóð-
fræði og eru mikil
völundarsmíð.
HVAÐ ER... HLJÓÐKÚTUR? Daewoo lyftarar
Partur-Spyrnan-Lyftarar • Eldshöfða 10 • 110 Reykjavík • Sími: 585-2500 • Fax: 567-9557
Gæði á góðu verði