Fréttablaðið - 23.04.2006, Qupperneq 82
23. apríl 2006 SUNNUDAGUR38
FORMÚLA 1 Þýski ökuþórinn Michael
Schumacher setti nýtt met í gær
þegar hann náði ráspólnum í tíma-
töku fyrir kappaksturinn í San
Marino sem fram fer í hádeginu í
dag. Enginn ökumaður í sögu For-
múlu 1 hefur oftar verið á ráspól
en Schumacher en hann hefur 66
sinnum sigrað í tímatökum. Með
því að ná besta tímanum á Imola-
brautinni í gær sló hann tólf ára
gamalt met Ayrtons Senna.
Það var vel við hæfi að Schu-
macher næði þessum áfanga á
Imola sem er heimavöllur Ferari.
Senna er einn allra besti ökumaður
allra tíma en hann lést á brautinni
árið 1994.
Jenson Button og Rubens Barri-
chello, ökumenn Honda, höfnuðu í
öðru og þriðja sæti í tímatökunni í
gær. Felipe Massa varð fjórði, heims-
meistarinn Fernando Alonso fimmti
og Ralf Schumacher sjötti. - egm
Kappaksturinn í San Marino:
Schumacher
setti nýtt met
NÝTT MET Schumacher hefur 66 sinnum
verið á ráspól. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Alan Shearer hefur spilað
sinn síðasta leik sem atvinnumað-
ur en tímabilinu er lokið hjá
honum vegna meiðsla. „Það er
svekkjandi að hætta svona en ég
sé ekki eftir neinu, ég hef átt frá-
bæran feril,“ sagði Shearer sem
skoraði sitt síðasta mark gegn
Sunderland úr vítaspyrnu um síð-
ustu helgi. Hann er markahæsti
leikmaður í sögu ensku úrvals-
deildarinnar með 260 mörk en
Andy Cole kemur honum næstur
með 184.
„Draumur minn sem patti var
að leika fyrir Newcastle og skora
mörk á St. James‘ Park. Það skipt-
ir ekki öllu að ég hafi ekki unnið
titil með félaginu þar sem ég gerði
þetta á minn hátt og upplifði
drauminn. Að spila fyrir klúbbinn
sinn er manni allt,“ sagði Shearer
sem skoraði 379 mörk í 733 leikj-
um á átján ára ferli sínum fyrir
Southampton, Blackburn og New-
castle.
„Þetta eru endalokin en ég á
magnaðar minningar eftir. Að ég
muni ekki spila síðustu þrjá leikina
er svekkjandi en ég kvarta ekki.
Hvernig gæti ég það?“ sagði þessi
magnaða markaskorari. - hþh
Alan Shearer:
Ánægður með
ferilinn
ALAN SHEARER Goðsögn í lifanda lífi hjá
Newcastle. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
HANDBOLTI Það er á brattann að
sækja fyrir Valsstúlkur eftir að
þær töpuðu fyrri leiknum gegn
Constanta í Rúmeníu með tólf
marka mun, 25-37. Þetta er undan-
úrslitaviðureign í Áskorenda-
keppni Evrópu og því ekki annað
hægt að segja en árangur Vals sé
frábær og biðja stelpurnar um
stuðning frá áhorfendum í kvöld en
fjölmörg fyrirtæki tóku höndum
saman og verður ókeypis á leikinn.
„Það er erfitt að hafa tólf marka
tap á bakinu eftir fyrri leikinn en
ég held að með góðum stuðningi
áhorfenda þá sé allt hægt. Við
stefnum fyrst og fremst að því að
vinna leikinn í kvöld og svo er bara
að sjá hve langt við komumst á því.
Það er ekki sniðugt að fara í leik og
setja stefnuna á að vinna með þrett-
án mörkum, ef staðan er jákvæð í
hálfleik þá er kannski hægt að
setja sér önnur markmið,“ sagði
Berglind Hansdóttir, markvörður
Vals, í samtali við Fréttablaðið.
„Þetta lið er mjög sterkt og með
góða leikmenn í sínum röðum. Þær
hafa mjög sterka skyttu og góða
miðjumenn, svo eru markverðirnir
mjög góðir. Við spiluðum mjög
lélega vörn í byrjun fyrri leiksins
og gerðum klaufaleg mistök í sókn-
inni sem gerði það að verkum að
þær fengu auðveld mörk úr hraða-
upphlaupum. Það gerði gæfumun-
inn fyrir þær,“ sagði Berglind en
hún segir að allt geti gerst í kvöld
ef liðið fær góðan stuðning frá
áhorfendum.
Rúmenska liðið var með 21-8
forystu í hálfleik í fyrri leiknum en
Valsliðið fór illa að ráðum sínum og
misnotaði til að mynda sjö vítaköst.
Allt annað var að sjá til liðsins í
seinni hálfleik og er vonandi að það
nái að byggja ofan á það í leiknum í
kvöld.
„Það hefur verið í einu orði sagt
frábært að taka þátt í þessari
keppni. Þvílík upplifun og gríðar-
leg reynsla sem við fáum út úr
þessu. Við hvetjum alla til að mæta
í Laugardalshöllina en það verður
rosalega flott umgjörð, tónlistar-
atriði og ýmislegt fleira,“ sagði
Berglind. Ef Valsstúlkur ná að
vinna upp þessa forystu rúmenska
liðsins komast þær í úrslitin sem
væri besti árangur íslensks félags-
liðs frá upphafi. elvar@frettabladid.is
Allt hægt með góðum
stuðningi frá áhorfendum
Kvennalið Vals leikur í kvöld klukkan 20 við rúmenska liðið Constanta í
Laugardalshöllinni. Þetta er síðari viðureign liðanna í Áskorendakeppninni.
BERGLIND HANSDÓTTIR Varði sextán skot í
fyrri leiknum. Hér freistar hún þess að verja
vítakast. FRÉTTABLAÐIÐ
FÓTBOLTI Argentínski varnarmað-
urinn Gabriel Heinze er kominn af
stað aftur en hann lék í meira en
klukkutíma fyrir varalið
Manchester United sem vann
varalið Aston Villa 1-0 í gær.
Heinze er 28 ára og hefur ekkert
spilað síðan í september þegar
hann sleit krossbönd í hné gegn
Villareal í Meistaradeildinni.
Heinze var einn besti leikmaður
United á síðasta tímabili og hefur
hans verið saknað í vinstri bak-
verðinum í vetur. Hann lék feiki-
lega vel í gær, átti margar hörku-
tæklingar og bjargaði einu sinni á
marklínu. Kieran Richardson og
Quinton Fortune spiluðu einnig í
leiknum en þeir hafa átt við
meiðsli að stríða. - egm
Manchester United:
Heinze spilaði í
klukkutíma
KOMINN Í GANG Hér má sjá Heinze í leikn-
um í gær. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Undanúrslitin í A-deild
deildabikars karla hefjast í dag
þegar Íslandsmeistarar FH mæta
1. deildarliðinu Þór frá Akureyri.
Leikurinn fer fram í Fífunni í Kópa-
vogi kl. 17.00 í dag en honum var
flýtt þar sem FH-ingar fara til Fær-
eyja um næstu helgi og mæta þar
B36 í leik um Atlantic- bikarinn.
Síðari undanúrslitaleikurinn fer
fram í Egilshöll á fimmtudag, en
þar mætast Keflavík og ÍBV.
Úrslitaleikurinn fer síðan fram
mánudaginn 1. maí og verður háður
á Stjörnuvelli. - egm
Undanúrslit deildabikarsins:
FH og Þór
mætast í dag