Fréttablaðið - 28.04.2006, Síða 29
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Ef það er eitthvað sem
Jón Gestur Sörtveit
þekkir vel þá er það
kaffibaunin og hvernig á
að njóta góðs kaffibolla.
Jón Gestur Sörtveit kaffi-
meistari er fróður um sögu og
gerð kaffidrykkja enda kenn-
ir hann á námskeiðum hjá
Lavazza-kaffiskólanum á
Íslandi. „Í raun heitir skólinn
Lavazza Training Center og
er hluti af alþjóðlegri keðju,“
segir Jón. „Það verða nokkur
námskeið í maí fyrir almenn-
ing. Þar verður farið yfir sögu
kaffisins, hver sé besta uppá-
hellingin fyrir hinar ýmsu
gerðir af kaffikönnum, nem-
endur læra að laga góða kaffi-
drykki, flóa mjólk og lag-
skipta drykkjum.“
Spurður hvort hann sjái
algerlega um kaffigerð og
uppáhellingar heima fyrir
segist Jón ekki geta neitað
því. „Já, kaffið er svolítið á
minni könnu,“ segir Jón og
hlær. „En ég er kominn með
sjálfvirka kaffivél sem malar
í hvern bolla þegar hún hellir
upp á. Sumum finnst mikil-
vægt að eiga uppþvottavél en
mér finnst mikilvægt að eiga
kaffivél.“
Jón segist einnig vera
ákaflega vinsæll í tjaldferða-
lögum því stálmokkakannan
fylgir honum ávallt. „Ég hvet
fólk til að kaupa sér svona
fyrir sumarið frekar en að
vera með instant-kaffi. Kann-
an er bara sett á prímus og
maður fær rjúkandi og góða
uppáhellingu.“
Uppskriftina, sem Jón
gefur lesendum, fékk hann
hjá lærimeistara sínum og má
sjá á síðu 2.
johannas@frettabladid.is
Kaffið er á
minni könnu
Jón Gestur Sörtveit er hæstánægður með kaffivélina sína nýju enda metur hann fátt meira en að fá góðan
kaffibolla. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
GÓÐAN DAG!
Í dag er föstudagurinn 28.
apríl, 118. dagur ársins
2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 5.11 13.25 21.42
Akureyri 4.44 13.10 21.38
NÝTT Í BLAND VIÐ
HIÐ GAMLA
Kaffi París hefur opnað á ný
eftir endurbætur. Nokkrar
breytingar hafa verið
gerðar á matseðlinum.
MATUR 2
ÍSLENDINGAR
NÝTA TILBOÐIN VEL
Neytendasamtökin aðstoða þá
sem telja sig hlunnfarna í viðskipt-
um við verslanir og önnur fyrirtæki.
TILBOÐ 6
Hagkaup í
Skeifunni og
á Akureyri
bjóða
sumardekk á
góðu verði.
Fimmtíu
fyrstu sem
kaupa heilan
umgang fá
50% afslátt af
umfelgun.
Árshátíð og aðalfundur Klúbbs
matreiðslumeistara er haldinn
á Ísafirði um helgina. Nánari
upplýsingar á www.chef.is
ALLT HITT
[MATUR OG TILBOÐ]
Risastór markaður með
geisladiska, DVD, músík og
myndir hefur opnað í gamla
Blómavalshúsinu í Sigtúni
40. Að markaðnum standa
Bergvík, 12 Tónar, Músík ehf,
Músík og myndir og Culture
Company.
Hægt er að fá mikið úrval af
tónlist og bíómyndum á góðu
verði. Sem dæmi má taka
geisladisk með söngkonunni
Hönsu á 999 krónur, tónlistina
úr Litlu hryllingsbúðinni á
1.499 krónur.
Meðal annarra frægra má
nefna Ragnheiði Gröndal,
Emilíönu Torrini og Dionne
Warwick.
Markaður í Sigtúninu
HÚSNÆÐI BÓMAVALS Í SIGTÚNI HEFUR FENGIÐ NÝJAN TILGANG.
Nú flæðir tónlistin um ganga
gamla Blómavalshússins í Sigtúni.