Fréttablaðið - 07.05.2006, Síða 28

Fréttablaðið - 07.05.2006, Síða 28
ATVINNA 8 7. maí 2006 SUNNUDAGUR Nikita ehf. lýsir eftir grafískum hönnuði til starfa á skrifstofu fyrirtækisins á Íslandi. Helstu verkefni eru uppsetning og útfærslur á markaðsefni vörumerkisins fyrir prentmiðla. Hæfniskröfur: • Mjög góð kunnátta á Illustrator, Photoshop og InDesign • Sjálfstæð vinnubrögð • Góð enskukunnátta • Stundvísi Umsóknir óskast, ásamt ferilskrá og sýnishornum á fyrri verkum umsækjanda, á netfangið work@nikitaclothing.com fyrir 22. maí nk. NIKITA CLOTHING / GRAFÍSKUR HÖNNUÐUR Óskum að ráða matreiðslumann til sumarafleysinga við eldhús Velferðarsviðs að Vitatorgi í Reykjavík. Starfssvið: Matreiðsla í stóreldhúsi, skömmtun til móttökueldhúsa og til einstaklinga. Verkstjórn og fl. Starfið er dagvinna en unnin er önnur hver helgi. Menntunar- og hæfniskröfur: Sveinspróf í matreiðslu eða sambærileg reynsla af matreiðslu, starfsmannastjórnun og innra eftirliti í matvælafyrirtækjum. Leitað er að röskum einstaklingi, sem hefur metnað til að takast á við krefjandi vinnu í stóreldhúsi. Við tökum vel á móti nýjum starfsmönnum og leggjum mikla áherslu á þjálfun þeirra í nýju starfi. Laun samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Starfs- mannafélags Reykjavíkurborgar. Vinsamlegast skilið umsóknum til Framleiðslueldhússins Lindargötu 59, 101 Reykjavík fyrir 15. maí 2006, merkt: „Matreiðslumaður“. Starfið er sumarafleysing og möguleiki er síðan á áframhaldandi ráðningu er hausta tekur. Nánari upplýsingar um starfið gefa Bragi Guðmundsson forstöðumaður í 411-9450, 861-2770, 822-3088 eða Brynja, Ragga og Bjartmar í síma 411-9450. Í framleiðslueldhúsinu við Lindargötu starfa 17 manns við að framleiða og dreifa um 275.000 hádegisverðum á ári. Þar er viðurkennt innra eftirlit og starfsmenn eru af 4 þjóðernum. Matreiðslumaður Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is/storf Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í. Velferðarsvið fer með ábyrgð á velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar þ.m.t. barnavernd og félagsþjónustu. Það ber ábyrgð á að framfylgt sé stefnumótun og áætlanagerð í velferðarmálum, eftirliti og mati á árangri, samhæfingu og samþættingu í málaflokknun. Þróun á mati á gæðum velferðarþjónustu, tengslum rannsókna og þjónustu, nýsköpun og þróun nýrra úrræða í velferð- arþjónustu. Að auki annast Velferðarsvið rekstur ýmissa úrræða. Okkur vantar trésmiði! Eykt vill ráða trésmiði eða trésmiðagengi til starfa sem allra fyrst. Mikil vinna er framundan við brúargerð, mótavinnu og við að reisa steyptar húseiningar. Góður aðbúnaður á vinnustað. Upplýsingar veita Pétur Einarsson verkstjóri í síma 822 4437 og Vilhjálmur J. Guðmundsson verkstjóri í síma 822 4443. Lynghálsi 4 IS-110 Reykjavík Iceland Tel. +354 595 4400 Fax +354 595 4499 eykt@eykt.is www.eykt.is Laus störf við tónlistarskóla Fljótsdalshéraðs Tónlistarskólarnir á Egilsstöðum, Hallormsstað, Fellabæ og Brúarási auglýsa eftir tónlistarkennurum. Meðal kennslugreina eru: Gítarkennsla, fiðlukennsla, söngkennsla, rafgítar-/bassa- kennsla, slagverkskennsla og tónfræði (1/2 starf). Jafnframt er auglýst eftir aðstoðarskólastjóra í Tónlistarskól- anum á Egilsstöðum og eftir skólastjóra í afleysingu vegna leyfis skólastjóra á haustönn á Brúarási. Starfsemi tónlistarskólanna er metnaðarfull og setur mikinn svip á kröftugt menningarlíf á Héraði. Tónlistarskólarnir í Brúarási, Fellabæ og deildin á Hallormsstað eru starfræktar í húsnæði grunnskólanna og þátttaka í tónlistarnámi er mjög mikil. Á Egilsstöðum eru nemendur bæði úr grunn- skólanum, Menntaskólanum á Egilsstöðum og hópi annarra íbúa í sveitarfélaginu. Frekari upplýsingar veitir Steingrímur Birgisson, tónlistarskólastjóri á Egilsstöðum og Hallormsstað í síma 4700 735 eða á netfangið steingrimur@egilsstadir.is, Drífa Sigurðardóttir, tónlist- arskólastjóri í Fellabæ, í síma 4700 734 eða á netfangið drifas@egilsstadir.is eða Suncana Slamning, tónlis- tarskólastjóri í Brúarási í síma 4700 796 eða á netfangið suncana@egilsstadir.is. Hæfniskröfur vegna kennarastarfa: • Umsækjendur með tónlistarskólakennaramenntun ganga fyrir • Góð mannleg samskipti, metnaður og frumkvæði Hæfniskröfur vegna aðstoðarskóla- og skólastjórastarfa: • Tónlistarskólakennaramenntun • Hæfni og reynsla af stjórnunarstörfum • Færni í mannlegum samskiptum, metnaður, frumkvæði og skipulagshæfni. Umsóknir ásamt ferilsskrá merktar viðkomandi tónlistar- skóla sendist á Fljótsdalshérað, Lyngás 12, 700 Egilsstaðir í síðasta lagi föstudaginn 26. maí 2006.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.