Fréttablaðið - 09.05.2006, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 9. maí 2006
Vefsíðugerð framhald
Námskeið ætlað þeim sem vilja halda áfram og bæta við kunnáttu
sína og getu við gerð faglegra vefsvæða. Ásamt kennslu á forritið
Dreamweaver kynnast nemendur gagnagrunnstengdum vefsvæðum.
Farið er stuttlega í gerð gagnagrunnstaflna með Microsoft Access
og hvernig tengja má vefsíður við gagnagrunna.
Einnig er farið í notkun CSS stíla
fyrir vefsíðugerð.
Námskeið þetta hentar vel þeim
nemendum sem tekið hafa Vefsíðugerð
grunn, grunnnámskeið í Dreamweaver
eða hafa sambærilega þekkingu eða
undirstöðu.
Lengd: 36 stundir. Hefst 17. maí og
lýkur 31. maí.Verð kr. 39.000,-
V E F S M Í Ð I
Faxafen 10 • 108 Reykjavík • Sími: 544 2210 • www.tsk.is • skoli@tsk.is
SJÚKRATRYGGINGAR Fólk án atvinnu-
tengdra réttinda er afar illa sett í
veikindum en réttindi íslenskra
launþega á greiðslum undir sömu
kringumstæðum virðast þokka-
lega tryggð hafi fólk áunnið sér
atvinnutengd réttindi. Atvinnu-
rekendur og stéttarfélög mynda
öryggisnet launþega í veikindum
en ríkið gegnir lágmarkshlut-
verki. Þetta eru fáeinar af niður-
stöðum meistaraprófsritgerðar
Unnar Ágústsdóttur um þann
hluta sjúkratrygginga sem snýr
að beinum greiðslum til einstakl-
inga í veikindaorlofi. Rannsóknin
fól meðal annars í sér samanburð
við fjögur önnur lönd; Bretland,
Noreg, Danmörku og Þýskaland.
Unnur kemst að þeirri niður-
stöðu að íslenska sjúkradagpen-
ingakerfið sé afar atvinnutengt,
réttindi áunnin og þau fylgi stétt-
arfélagsaðild. Íslenska sjúkradag-
peningakerfið samanstendur af
launagreiðslum frá vinnuveitend-
um, greiðslum úr sjúkrasjóðum
stéttarfélaganna, sem byggjast á
greiðslum frá vinnuveitendum og
sjúkradagpeningum almanna-
trygginga. „Almannatrygginga-
hlutinn er tiltölulega lítið hlutfall
af heildarpakkanum, sem þýðir að
réttindin eru mjög atvinnutengd
og bundin stéttarfélagsaðild að
stórum hluta,“ segir Unnur. - jss
GREIÐSLUR Í VEIKINDUM Atvinnutengd
réttindi eru mikilvæg vegna greiðslna í
veikindum.
Meistaraprófsritgerð um fólk án atvinnutengdra réttinda:
Afar illa sett í veikindum
– framhaldsskóli í fremstu röð
Fjölþætt nám til starfsréttinda eða stúdentsprófs.
Hefur þú kynnt þér einn fjölmennasta og fjölbreyttasta
framhaldsskóla landsins?
• Bóknámsbrautir til stúdentsprófs – viðskipta- og
hagfræðibraut-, náttúrufræði-, félagsfræða- og listnámsbraut
• Fjölbreytt iðn- og starfsnám
• Stúdentspróf að loknu starfsnámi
• Hraðferð til stúdentsprófs
• Heimavist
Kíktu á heimasíðuna
okkar www.vma.is til að
fá frekari upplýsingar.
Umsóknarfrestur
til 12. júní.
A
T
H
Y
G
L
I
E
H
F
DÓMSMÁL Tæplega þrítugur karl-
maður var í gær dæmdur til sjö
mánaða fangelsisvistar fyrir að
neita að skila farsíma sem hann
fékk lánaðan.
Þungur dómur mannsins er þó
aðeins að litlu leyti vegna stuldar
farsímans en aðallega vegna ítrek-
aðra rofa á skilorði en hann á lang-
an sakaferil að baki og hefur
margoft hlotið dóma vegna brota
sinna. Hefur hann álíka oft brotið
reynslulausn og þótti dómara
málsins því sjö mánaða fangelsis-
dómur næg refsing. - aöe
Skilaði ekki farsíma:
Sjö mánaða
fangelsi
SVÍÞJÓÐ, AP Réttarhöld standa yfir
í Svíþjóð yfir þremur mönnum
sem grunaðir eru um að hafa
skipulagt sprengjuárás gegn Orði
lífsins í Uppsölum og Ísraels-
vænni kirkju. Lögregla handtók
mennina eftir að einn þeirra setti
myndband með sjálfum sér á netið
þar sem hann hótaði Evrópubúum.
Mennirnir neita sök.
Mennirnir voru handteknir um
miðjan janúar á kjörstað Íraka í
Kista, norðan við Stokkhólm, að
sögn Dagens Nyheter. Þeir eru 19,
22 og 25 ára gamlir og einn þeirra
viðurkennir að hann hafi sent
sænskum fjölmiðlum bréf þar
sem sagði að sænskur hluti hryðju-
verkasamtakanna al-Kaída lýsti
verknaðinum á hendur sér. - ghs
Réttarhöld í Svíþjóð:
Þrír grunaðir
um hryðjuverk
Reynt að breiða yfir námuslys
Rannsókn á slysi sem varð í námu í
Henan-héraði í Mið-Kína í síðustu viku
og kostaði tíu verkamenn lífið leiddi í
ljós að eigendur námunnar reyndu að
breiða yfir það sem gerðist. Frá þessu
greindu kínverskir ríkisfjölmiðlar í gær.
Eigendunum yrði refsað. Þúsundir
námaverkamanna farast árlega við
vinnu sína í Kína.
KÍNA
Íkveikjuárás í Korsør Sveitarstjórn-
arfulltrúi úr Danska þjóðarflokknum
varð fyrir því í fyrrinótt að íkveikjuárás
var gerð á heimili hans í Korsør á Sjá-
landi. Fulltrúinn, Fritz Neumann, sagði
hann og marga kollega hafa fengið
hótunarbréf frá herskáum múslimum.
DANMÖRK
HÉRAÐSDÓMUR REYKJANESS Maðurinn
hlaut þungan dóm þar sem hann hafði
ítrekað rofið skilorð.