Fréttablaðið - 09.05.2006, Side 22
[ ]
Danshópurinn Út og suður, sem
skipaður er eldri borgurum,
tekur sporið minnst einu sinni
í viku.
„Þetta er einhver besta leikfimi
sem völ er á,“ er samdóma álit
félaganna í Út og suður á línu-
dansunum. Þeir segjast erfiða og
svitna hæfilega þó að kennarinn
sleppi þeim við svæsnustu snún-
inga sveitadansanna úr villta
vestrinu.
Ekta sveitatónlist hljómar af
diskum og gleði og góðlátlegt
grín einkennir hópinn, sem reyn-
ir að hittast vikulega til að sletta
úr klaufunum. Samtals eru 25
manns í hópnum en ýmis forföll
geta hamlað því að allir mæti í
einu. Sumir hafa verið með í þrjú
til fjögur ár með hópnum, aðrir
byrjuðu í haust og enn aðrir eftir
síðustu áramót.
Þegar Fréttablaðið mætir á
staðinn er verið að æfa fyrir sýn-
ingu síðar um daginn á Vorhátíð
félags- og þjónustumiðstöðvar-
innar í Bólstaðarhlíð. Dansspor-
in eru stigin af öryggi undir
stjórn Jónu Þórunnar Vernharðs-
dóttur.
Línudans er góð líkamsrækt
Línudansarnir sameina leikfimi og skemmtun.
Jóna Þórunn stjórnar „með harðri hendi“.
Tuttugu og fimm manns æfa reglulega línudans með Út og suður. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Umhverfissvið Reykjavíkur-
borgar keypti fjögur reiðhjól til
notkunar fyrir starfsmenn.
Vegna átaksins Hjólað í vinnuna
sem hófst í síðustu viku keypti
Umhverfissvið Reykjavíkurborg-
ar fjögur hjól sem ætluð eru
starfsfólki til notkunar í vinnu, til
dæmis til að fara á fundi eða í
eftirlit. Ellý Katrín Guðmunds-
dóttir, sviðsstjóri Umhverfissviðs
Reykjavíkurborgar, segir að
Umhverfissvið vilji með þessu
sýna gott fordæmi og hún vonast
til að starfsmenn þess verði dug-
legir að nota hjólin sem vinnu-
tæki.
Ellý segir að hjólunum hafi
verið vel tekið og það hafi mjög
góð áhrif á starfsmenn að hjóla á
milli staða, fá sér ferskt loft og
hreyfa sig aðeins. Hún vonast til
að fleiri fyrirtæki og stofnanir
kaupi hjól fyrir starfsmenn sína
því það sé til bóta bæði fyrir
umhverfið og heilsu allra.
Starfsmenn Reykjavíkurborgar
hjóla á fundi á nýjum hjólum
Starfsfólk Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar getur nú hjólað í vinnunni.
Þó svo að sólin sé skemmtileg getur hún verið skaðleg. Sólin hér á
landi er sérstaklega varasöm. Förum því varlega.
Laugavegi 2 - 101 Reykjavík - Sími 552 1103 - www.jurtaapotek.is
Við veitum faglega ráðgjöf
������������������������������ ��������������� �������
��������������������������������������������������
Verslun Vítamin.is - Gránufélagsgötu 4 (JMJ Húsi) s. 466 2100.
Opið mán-fös 16-18.30 & laug 11-13.
Heitustu vörurnar
Verslun Vítamin.is - Ármúla 32
s. 544 8000 • Opið mán-fös 10-18 & laug 11-15
5.900kr 3.600kr 3.900kr
Fyrir magann
og hátt sýrustig
Útsölustaðir m.a: Yggdrasill, Fjarðarkaup, Maður lifandi í Borgartúni og Hæðarsmára,
Lífsins Lind í Hagkaupum, Lyfjaval í Mjódd og Hæðarsmára og Lyfja á Selfossi.
S: 462-1889 • heilsuhorn@simnet.is • www.simnet.is/heilsuhorn
Póstsendum
um land allt