Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.05.2006, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 09.05.2006, Qupperneq 34
14 TILKYNNINGAR 9. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR Auglýsing um tillögu að breyttu deiliskipulagi hringtorgs við Ölfusárbú á Selfossi. Samkvæmt skipulags- og byggingarlögum nr.73/1997 með síðari breytingum, auglýsir bæjarstjórn sveitarfé- lagsins Árborgar tillögu að breyttu deiliskipulagi hring- torgs við Ölfusárbrú og á Austurvegi að Sigtúni á Sel- fossi. Gerðar eru eftirfarandi breytingar á deiliskipulaginu á þeim hluta sem er innan uppgefinna marka breytts deiliskipulagssvæðis og ná breytingarnar aðeins til um- ferðaþátta. Markmið með breytingum er að bæta um- ferðarflæði í og við hringtorgið. Hringtorgið er breikkað úr 36 m í 46 m þvermál ytri hrings. Sebrabrautir fyrir gangandi vegfarendur við arma torgsins við Austurveg og Eyrarveg eru lagðar af. Syðri akbraut Austurvegar er breikkuð milli hringtorgs og Sigtúns og akgreinalínur málaðar á akbrautina. Ný gangbraut er sett í framhaldi gönguleiðar milli Austur- vegar 2 og 4 og bílastæðum við Austurveg 1-5 fækkað í framhaldi gönguleiðarinnar. Gönguleið yfir Austurveg vestan við Sigtún er lögð niður. Á Sigtún norðan Aust- urvegar er sett einstefna til norðurs og innkeyrsla í göt- una þrengd í samræmi við einstefnuna. Teikningar og greinargerð mun liggja frammi á skrif- stofu framkvæmda – og veitusviðs Árborgar að Austur- vegi 67 á Selfossi frá og með mánudeginum 8. maí til og með mánudagsins 6. júní 2006. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út 20. júní 2006 og skal þeim skilað skriflega til skipulags- og byggingarfulltrúa á skrifstofu framkvæmda- og veitu- sviðs Austurvegi 67, 800 Selfossi. Á sama tíma er teikning og greinagerð til kynningar á heimasíðu Árborgar http://www.arborg.is þar sem hægt er að skoða hana og senda athugasemdir til skipulags- og byggingarfulltrúa í netfangi skipulag@arborg.is. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan ofangreinds frests, teljast samþykkja hana. Selfossi, 2. maí 2006. ____________________________________ Bárður Guðmundsson, skipulags- og byggingarfulltrúi Árborgar. Fr um Við erum í Félagi fasteignasala Dögg Pálsdóttir hrl., lögg. fast.sali - Þyrí Steingrímsdóttir hdl., lögg. fast.sali. Andri Sigurðsson sölustjóri - Ólafur Finnbogason sölumaður Hólahverfi-Breiðholti Okkur á DP FASTEIGNUM hefur verið falið að finna 2ja-3ja herbergja íbúð í Hólahverfi í Breiðholti fyrir mjög ákveðinn kaupanda sem er búinn að selja sína eign. Um er að ræða góðar greiðslur og afhendingu í síðasta lagi í lok júlí 2006. Allar nánari upplýsingar veitar hjá DP FASTEIGNUM í síma 561-7765. Aðalfundur Heilsuhringsins 2006 verður haldinn þriðjudaginn 9. maí kl. 20 í Norrænahúsinu, ath. breyttan fundarstað. Að loknum aðalfundastörfum kl. 20:30 verður fyrirlestur. Fyrirlesari er Sigmundur Guðbjarnason prófessor, ,,hvernig virka náttúruefni úr lækninga- jurtum.“ Aðgangur ókeypis. – Allir velkomnir. Stjórnin Húsvakt Óskum eftir hjúkrunarfræðingi, hjúkrunarnema eða lækna- nema á húsvaktir í sumar. Möguleiki á framtíðarstarfi. Viðkomandi þarf að hafa gott sjálfstraust í starfi. Góð laun í boði Sjúkraliðar Fjölbreytt og sjálfstætt starf! Hvernig væri að prófa? Okkur á Grund langar að bæta við þann góða hóp sjúkra- liða sem þegar er starfandi við heimilið. Sjúkraliðar starfa sem hópstjórar sem býður upp á mikið sjálfstæði og góða reynslu. Starfshlutfall samkomulagsatriði. Verið velkomin í heimsókn að skoða. Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri í síma 530-6100 virka daga kl. 8.30-15.00. ATVINNA TILKYNNINGAR FASTEIGNIR F í t o n / S Í A 28-35 smáar Hægri.qxd 8.5.2006 15:52 Page 8

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.