Fréttablaðið - 09.05.2006, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 09.05.2006, Blaðsíða 35
Kynningarfundur í hátíðarsal Flataskóla, laugardaginn 13. maí kl. 13.15-15.00 Kynntar verða tillögur í hönnunarsamkeppni um skipulag Setbergslands í Garðabæ Setbergsland í Garðabæ Eftirtaldar arkitektastofur kynna tillögur sínar: Kanon arkitektar ehf. hafa starfað frá árinu 1994 á sviði hönnunar og skipulags. Eigendur eru arkitektarnir Halldóra Kristín Bragadóttir, Helgi B. Thóroddsen, Þorkell Magnússon og Þórður Steingrímsson. Á teikni- stofunni starfa sex arkitektar að eigendum meðtöldum. Kanon arkitektar ehf. sinna öllum almennum arkitektastörfum, s.s. hönnun bygginga, skipulagi, innréttingum, endurbótum eldra hús- næðis og húsnæðis- og byggingaráðgjöf. Mikilvægur þáttur í starfsemi Kanon arkitekta er þátttaka í samkeppni um arkitektúr og skipulag og hefur fyrirtækið unnið til fjölda verðlauna og viðurkenninga. Markmið fyrirtækisins er að vinna að góðri byggingarlist og skipulagi. Kanon arki- tektar ehf. leggja áherslu á vönduð og traust vinnubrögð með það að leiðarljósi að markviss hönnun sé lykillinn að vel heppnuðum lausnum. Schmidt hammer lassen er ein stærsta arkitektastofa Danmerkur, með höfuðstöðvar í Árósum og útibú í Kaupmannahöfn. Fyrirtækið var stofnað 1986 og í dag starfa hjá því um 120 reyndir arkitektar, landslags- og innanhúsarkitetkar, hönnuðir, grafíklistamenn, líkanasmiðir og yfirmenn sem allir standast miklar kröfur fyrirtækisins um hæfni og sköpunargáfu. Í verkum stofunnar blandast saman norrænar hefðir og nýir alþjóð- legir straumar og leitast er við að hafa bein áhrif á þróun arkitektúrs í alþjóðlegu samhengi. Lykiláhersla stofunnar frá uppafi hefur verið á ítarlega þekkingu sem spannar allt sviðið í heimi arkitektúrs. Vítt svið og vandaðar starfsaðferðir hafa ekki aðeins skilað stofunni aragrúa viðurkenninga og verðlauna, heldur einnig skipað henni háan sess, bæði á heimavelli og alþjóðlegum grundvelli. Arkitektastofan Lederer + Ragnarsdóttir + Oei á rætur að rekja til ársins 1979. Í dag vinna um 30 manns hjá fyrirtækinu. Til að skapa hverju viðfangsefni stofunnar sína eigin sérstöðu vinnur starfsfólkið í litlum vinnuhópum og sami hópurinn fylgir hverju einstöku verkefni frá upphafi til enda. Frá stofnun 1979 hefur stofan tekið þátt í yfir 140 samkeppnum og unnið til yfir 60 verðlauna. Mikil áhersla er lögð á hönnun sem er í takt við nánasta umhverfi. Byggingahefð svæðisins er skoðuð og kafað djúpt ofan í eiginleika þeirra bygginga sem fyrir eru. Jórunn Ragnarsdóttir, meðeigandi í stofunni, hefur verið búsett í Þýskalandi síðan hún kláraði arkitektanám í Stuttgart og hefur getið sér gott orð þarlendis og víðar. Bílanaustreiturinn Breiðagerðisskóli Kristnibraut 2-12 Skipulag: Grafarholt - vestursvæði Konunglega bókasafnið í Kaupmannahöfn Skuggahverfi í Reykjavík Íbúðahverfi í Jelling Nýlistasafnið í Árósum Gustav-von-Schmoller skólinn í Heilbronn Hessian State leikhúsið í Darmstadt Höfuðstöðvar Helvetia tryggingafélagsins í Frankfurt Salem háskólinn í Überlingen Setbergsland í Garðabæ Setbergsland er byggingarland í Garðabæ þar sem fyrirhugað er að reisa hágæða íbúðahverfi með sérstakri áherslu á sérbýli. Ekki er gert ráð fyrir þéttri byggð heldur er markmiðið að þróa aðlaðandi samfélag þar sem verður að finna nægt landrými fyrir íbúana. Skipulagi svæðisins er ætlað að stuðla að innbyrðis samfélagsvitund og auknum félagslegum samskiptum íbúanna. Gert er ráð fyrir grunnskóla í Setbergslandi og tveimur leikskólum. Náttúrufegurð Setbergslandsins er einstök, sem og útsýnið yfir Urriðakotsvatn. Gert er ráð fyrir góðum gönguleiðum frá íbúðarbyggðinni að vatninu sem auðvelda íbúunum aðgengi að þessari náttúruperlu og því fjölbreytta lífríki sem þar er að finna. Í næsta nágrenni við Setbergslandið má finna ýmsa spennandi afþreyingar- og útivistarmöguleika, t.d. golfvöll, reiðleiðir, gönguleiðir og einnig má nefna að friðlandið Heiðmörk er í göngufæri við Setbergsland. VSÓ RÁÐGJÖF Verkefnisstjórnun þróunarverkefnisins í samvinnu við landeigendur: Halldóra K. Bragadóttir Helgi B. Thóroddsen Þorkell Magnússon Morten Schmidt Kristján Örn Kjartansson Lars Holt Arno Lederer Jórunn Ragnarsdóttir Marc Oei Dagskrá kynningarfundar, 13. maí: Kl. 13.15 Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, setur fundinn. Arkitektar kynna tillögur sínar. Kl. 15.00 Veitingar – Arkitektar afhjúpa líkön af skipulagstillögum sínum og tækifæri gefst til að ræða við þá um skipulagshugmyndir þeirra fyrir Setbergsland. Fundarstjóri verður Gunnar Einarsson Bæjarstjóri Garðabæjar Þórður Steingrímsson Re ykj av íku rve gu r Re ykj an esb rau t Re ykj an esb rau t 28-35 smáar Hægri.qxd 8.5.2006 15:51 Page 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.