Fréttablaðið - 09.05.2006, Qupperneq 35
Kynningarfundur
í hátíðarsal Flataskóla, laugardaginn 13. maí kl. 13.15-15.00
Kynntar verða tillögur í hönnunarsamkeppni um skipulag Setbergslands í Garðabæ
Setbergsland í Garðabæ
Eftirtaldar arkitektastofur kynna tillögur sínar:
Kanon arkitektar ehf. hafa starfað frá árinu 1994 á sviði hönnunar og
skipulags. Eigendur eru arkitektarnir Halldóra Kristín Bragadóttir, Helgi
B. Thóroddsen, Þorkell Magnússon og Þórður Steingrímsson. Á teikni-
stofunni starfa sex arkitektar að eigendum meðtöldum.
Kanon arkitektar ehf. sinna öllum almennum arkitektastörfum, s.s.
hönnun bygginga, skipulagi, innréttingum, endurbótum eldra hús-
næðis og húsnæðis- og byggingaráðgjöf. Mikilvægur þáttur í starfsemi
Kanon arkitekta er þátttaka í samkeppni um arkitektúr og skipulag og
hefur fyrirtækið unnið til fjölda verðlauna og viðurkenninga. Markmið
fyrirtækisins er að vinna að góðri byggingarlist og skipulagi. Kanon arki-
tektar ehf. leggja áherslu á vönduð og traust vinnubrögð með það að
leiðarljósi að markviss hönnun sé lykillinn að vel heppnuðum lausnum.
Schmidt hammer lassen er ein stærsta arkitektastofa Danmerkur, með
höfuðstöðvar í Árósum og útibú í Kaupmannahöfn. Fyrirtækið var stofnað
1986 og í dag starfa hjá því um 120 reyndir arkitektar, landslags- og
innanhúsarkitetkar, hönnuðir, grafíklistamenn, líkanasmiðir og yfirmenn
sem allir standast miklar kröfur fyrirtækisins um hæfni og sköpunargáfu.
Í verkum stofunnar blandast saman norrænar hefðir og nýir alþjóð-
legir straumar og leitast er við að hafa bein áhrif á þróun arkitektúrs
í alþjóðlegu samhengi. Lykiláhersla stofunnar frá uppafi hefur verið á
ítarlega þekkingu sem spannar allt sviðið í heimi arkitektúrs. Vítt svið
og vandaðar starfsaðferðir hafa ekki aðeins skilað stofunni aragrúa
viðurkenninga og verðlauna, heldur einnig skipað henni háan sess, bæði
á heimavelli og alþjóðlegum grundvelli.
Arkitektastofan Lederer + Ragnarsdóttir + Oei á rætur að rekja til
ársins 1979. Í dag vinna um 30 manns hjá fyrirtækinu. Til að skapa
hverju viðfangsefni stofunnar sína eigin sérstöðu vinnur starfsfólkið í
litlum vinnuhópum og sami hópurinn fylgir hverju einstöku verkefni
frá upphafi til enda. Frá stofnun 1979 hefur stofan tekið þátt í yfir
140 samkeppnum og unnið til yfir 60 verðlauna.
Mikil áhersla er lögð á hönnun sem er í takt við nánasta umhverfi.
Byggingahefð svæðisins er skoðuð og kafað djúpt ofan í eiginleika
þeirra bygginga sem fyrir eru.
Jórunn Ragnarsdóttir, meðeigandi í stofunni, hefur verið búsett í
Þýskalandi síðan hún kláraði arkitektanám í Stuttgart og hefur getið
sér gott orð þarlendis og víðar.
Bílanaustreiturinn Breiðagerðisskóli Kristnibraut 2-12 Skipulag: Grafarholt - vestursvæði
Konunglega bókasafnið í
Kaupmannahöfn
Skuggahverfi í
Reykjavík
Íbúðahverfi í
Jelling
Nýlistasafnið í
Árósum
Gustav-von-Schmoller skólinn í
Heilbronn
Hessian State leikhúsið
í Darmstadt
Höfuðstöðvar Helvetia
tryggingafélagsins í Frankfurt
Salem háskólinn í
Überlingen
Setbergsland í Garðabæ
Setbergsland er byggingarland í Garðabæ þar sem fyrirhugað er að reisa
hágæða íbúðahverfi með sérstakri áherslu á sérbýli.
Ekki er gert ráð fyrir þéttri byggð heldur er markmiðið að þróa aðlaðandi
samfélag þar sem verður að finna nægt landrými fyrir íbúana.
Skipulagi svæðisins er ætlað að stuðla að innbyrðis samfélagsvitund og
auknum félagslegum samskiptum íbúanna. Gert er ráð fyrir grunnskóla í
Setbergslandi og tveimur leikskólum.
Náttúrufegurð Setbergslandsins er einstök, sem og útsýnið yfir Urriðakotsvatn.
Gert er ráð fyrir góðum gönguleiðum frá íbúðarbyggðinni að vatninu sem
auðvelda íbúunum aðgengi að þessari náttúruperlu og því fjölbreytta lífríki
sem þar er að finna.
Í næsta nágrenni við Setbergslandið má finna ýmsa spennandi afþreyingar-
og útivistarmöguleika, t.d. golfvöll, reiðleiðir, gönguleiðir og einnig má
nefna að friðlandið Heiðmörk er í göngufæri við Setbergsland.
VSÓ RÁÐGJÖF
Verkefnisstjórnun þróunarverkefnisins
í samvinnu við landeigendur:
Halldóra K.
Bragadóttir
Helgi B.
Thóroddsen
Þorkell
Magnússon
Morten
Schmidt
Kristján Örn
Kjartansson
Lars
Holt
Arno
Lederer
Jórunn
Ragnarsdóttir
Marc
Oei
Dagskrá kynningarfundar, 13. maí:
Kl. 13.15 Gunnar Einarsson, bæjarstjóri
Garðabæjar, setur fundinn.
Arkitektar kynna tillögur sínar.
Kl. 15.00 Veitingar – Arkitektar afhjúpa líkön af
skipulagstillögum sínum og tækifæri gefst til að ræða
við þá um skipulagshugmyndir þeirra fyrir Setbergsland.
Fundarstjóri verður
Gunnar Einarsson
Bæjarstjóri Garðabæjar
Þórður
Steingrímsson
Re
ykj
av
íku
rve
gu
r
Re
ykj
an
esb
rau
t
Re
ykj
an
esb
rau
t
28-35 smáar Hægri.qxd 8.5.2006 15:51 Page 9