Fréttablaðið - 09.05.2006, Side 54
9. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR38
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
TÓNLISTIN
Ég hlusta mikið á djass og tiltölulega
nýlega hef ég verið að hlusta á ýmsa
nýklassík. En svona í rótinni þá hef ég
gaman af góðu og skemmtilegu rokki
og poppi. Ég fíla til dæmis hljómsveit-
irnar Animal Collective og Architecture
in Helsinki og svo til dæmis tónskáldið
Arvo Pärt.
BÓKIN
Þegar ég var lítill þá var Benjamín dúfa
í miklu uppáhaldi hjá mér. Núna er ég
nýbyrjaður á bók eftir Haruki Murakami
sem heitir Norwegian Wood, mér líst
ansi vel á hana. Svo les ég bara ýmis
veftímarit og svoleiðis.
BÍÓMYNDIN
Síðasta mynd sem ég sá í bíó og fannst
virkilega góð var Good Night and Good
Luck. Mér finnst mjög gaman að fara
á kvikmyndahátíðir því þá fær maður
tækifæri til að horfa á myndir sem
maður myndi ekki endilega sjá annars.
BORGIN
París þykir mér mjög skemmtileg borg.
Hún er svo falleg og það er svo gaman
að ganga um hana. Ég er líka voða hrif-
inn af Brussel enda bjó ég þar í þrjú ár.
Þar þótti mér gaman að taka sporvagn-
inn niður í bæ, labba um og gera ekki
neitt. Það er skemmtilegur stórborgarfíl-
ingur þarna.
BÚÐIN
Mér finnst skemmtilegast að fara í
plötubúðina www.dustygroove.com á
netinu. Þar er svo mikið af skemmtilegu
tónlistardóti og oft er það frekar ódýrt.
VERKEFNIÐ
Næsta verkefni er að vera í hljómsveit
í skapandi sumarstarfi en hún mun
heita Sigríður Hjaltalín. Þar sameinast
hljómsveitin Hjaltalín og Sigga Toll en
auk þessa spila ég líka á gítar í hljóm-
sveitinni Nortón.
AÐ MÍNU SKAPI: HÖGNI EGILSSON, SÖNGVARI OG GÍTARLEIKARI HJALTALÍN OG NORTÓN
Djass, Murakami, kvikmyndahátíðir og París
HÖGNI EGILSSON, SÖNGVARI OG GÍTAR-
LEIKARI HJALTALÍN OG NORTÓN.
HRÓSIÐ
...fá Anna Clausen og Bjarni
Einarsson sem hafa opnað búðina
Belleville á Laugaveginum en þar
fæst allt frá hjólabrettum til
listrænna leikfanga.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Spennan fyrir Eurov-ision–keppninni
magnast með hverj-
um deginum enda
styttist óðum í sjálfa
keppnina sem fram fer
18. maí í Aþenu. Veð-
bankinn esctoday.com
samanstendur af yfir
tuttugu þúsund gall-
hörðum aðdáendum
keppninnar sem greiða
atkvæði um hvernig
þeir halda að úrslitin
verði. Þessa dagana
er gengið til atkvæða
um undankeppnina en þar keppir Silvía
Nótt fyrir hönd þjóðarinnar með laginu
Congratulations. Sjónvarpsdívunni var
í fyrstu spáð mikilli velgengni en fylgið
hefur hrunið af henni að undanförnu. Í
þessari viku er lagið komið í 10. sætið
sem er síðasti farseðilinni inn í loka-
keppnina laugardaginn 20. maí en Silvía
og félagar voru fyrir síðustu könnun í
áttunda sæti. Mestu athygli vekur þó fall
finnsku skrýmslanna sem eru dottnir út
af þessum lista en þau þykja óvenjuleg
í meira lagi.
Og meira af Eurov-ision og aðdá-
endum keppninnar
því betson.com er
einnig með veðbanka
fyrir þá sem vilja leggja
undir á úrslit í keppn-
inni. Tiltrú fólks á
sjónvarpsstjörnunni
hrokafullu virðast
vera að aukast því
Silvía þokast hægt
og bítandi upp töfl-
una en hún er nú komið í hið víðfræga
16. sæti sem þjóðin hefur vermt í ófá
skipti. Líkurnar á því að Silvía sigri eru
þrjátíu á móti einum en fyrir aðeins
örfáum vikum voru þær níutíu á móti
einum og því ljóst að drottningin lætur
engan bilbug á sér finna. Flestir spá því
að Grikkir sigri en fast á hæla þeirra
fylgir reynsluboltinn Carola frá Svíþjóð
en hún sigraði árið 1991. Notendur
Betson.com eru í kringum þrjú hundruð
þúsund og því ljóst að æ fleiri Evrópu-
búar virðast vera farnir að ná hinum
rammíslenska brandara. Ekkert er þó
farið að bóla á vangaveltum þjóðarinnar
um hvað hún eigi að gera „þegar“ Silvía
sigrar en eins og frægt er orðið var þjóð-
arsálin heldur betur sár þegar það var
aðeins formsatriði að sigra árið 1986.
-fgg
Hljómsveitin Ampop mun hita upp
fyrir bresku hljómsveitina The
Zutons á tvennum tónleikum í Sviss
dagana 6. og 7. júní næstkomandi.
„Þetta er stærsta tækifærið
okkar „live“ fyrir utan landstein-
ana,“ segir Birgir Hilmarsson,
söngvari og gítarleikari Ampop.
„Við höfum verið að spila með
hinum og þessum en þetta er allt
annað og getur verið mikið ævin-
týri fyrir Ampop.“
Birgir vonast til að tónleikarnir
með The Zutons muni leiða til frek-
ara samstarfs og segir það draum
fyrir upprennandi hljómsveitir að
hita upp fyrir stærri bönd.
The Zutons, sem spilaði á Ice-
land Airwaves á síðasta ári við mjög
góðar undirtektir, gaf nýverið út
sína aðra plötu sem nefnist Tired of
Hanging Around. Fyrsta plata sveit-
arinnar, Who Killed... The Zutons,
hlaut mjög góðar viðtökur og er The
Zutons talin ein sú efnilegasta í
Bretlandi í dag.
Þann 5. júní mun Ampop jafn-
framt halda tónleika í París í tilefni
af útkomu plötunnar My Delusions í
Frakklandi. Eftir það mun sveitin
spila í Kópavogi á 17. júní og á hátíð-
inni Reykjavík Rocks í Laugardals-
höll með David Gray og fleirum.
Birgir og félagar voru í Skálholti
á dögunum að semja efni fyrir nýja
plötu sem hugsanlega kemur út
fyrir næstu jól. Franskir blaðamenn
frá tímaritunum Les Inrockuptibles
og Tapage komu í heimsókn og birt-
ast stórar umfjallanir um Ampop í
tímaritunum á næstunni. „Við erum
komnir með nóg af nýju efni og það
er aldrei að vita nema við eigum
eftir að spila það í Höllinni,“ segir
Birgir, sem flytur heim til Íslands í
sumar eftir að hafa búið í Glasgow
um skeið.
-fb
Hitar upp fyrir The Zutons
AMPOP Hljómsveitin Ampop hitar upp fyrir The Zutons dagana 6. og 7. júní.
LÁRÉTT 2 hirðing 6 frá 8 lífshlaup 9
frostskemmd 11 samanburðarteng-
ing 12 vanvirðing 14 duglegur 16 fyr-
irtæki 17 móðuþykkni 18 bókstafur
20 rykkorn 21 málmhúða.
LÓÐRÉTT 1 drykkur 3 tveir eins 4
kvarta 5 málmur 7 stjónmálastefna
10 landspilda 13 skjön 15 líffæri 16
besti árangur 19 í röð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 rækt, 6 af, 8 ævi, 9 kal, 11
en, 12 ósómi, 14 iðinn, 16 ms, 17 ský,
18 emm, 20 ar, 21 tina.
LÓÐRÉTT: 1 kakó, 3 ææ, 4 kveinka, 5
tin, 7 fasismi, 10 lóð, 13 mis, 15 nýra,
16 met, 19 mn.
VEISTU SVARIÐ
svör við spurningum á bls. 8
1 Michael Schumacher
2 Carlos Azeglios Ciampis
3 Theo Walcott
Kappakstri ríka og fræga fólks-
ins, Gumball 3000, lauk í fyrradag
í Los Angeles og var lokapartíið
haldið á setri Hughs Hefner í
Hollywood.
Fjórir Íslendingar tóku þátt í
kappakstrinum, þeirra á meðal
Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri
Baugs. Ók hann glæsilegri Bentl-
ey-bifreið ásamt félaga sínum
Guðmundi Inga Hjartarsyni.
„Ég keyrði sjálfur 700 mílur.
Þetta var erfið keppni og flugin
voru mjög löng,“ sagði Jón Ásgeir
í viðtali við Fréttablaðið. „Það sem
kom mér samt mest á óvart í þess-
ari keppni voru fréttir um það
heima á NFS að ég hefði verið
stoppaður vegna hraðaksturs oftar
en einu sinni eða tvisvar. Það er
kolrangt því ég var alls ekki stopp-
aður,“ sagði hann. „Við þurftum að
skrifa undir samning fyrir keppn-
ina um að aka á löglegum hraða og
að þeim sem brjóti þær reglur
verði vísað úr keppni.“ Jón segir
að enginn hafi heldur hringt í sig
út til að fá staðfestingu á þessum
meinta hraðakstri.
Fjölmargar stjörnur tóku þátt í
keppninni, þar á meðal rokkarinn
Billy Idol, snjóbrettakappinn Tony
Hawk, kynbomban Pamela Ander-
son og leikararnir Viggo Morten-
sen og Adrien Brody. Auk þess
fóru keppendur meðal annars á
tónleika með rapparanum Snoop
Dogg í Las Vegas og á frumsýn-
ingu hasarmyndarinnar Mission
Impossible í Salt Lake City í
Utah.
Jón Ásgeir segist hvorki hafa
hitt Pamelu né Snoop Dogg, auk
þess sem hann fór ekki í teitið á
setrinu þar sem Hugh Hefner
hefur ráðið ríkjum í fjöldamörg
ár. Þar hélt Travis Barker úr
hljómsveitinni Blink 182 uppi
stuðinu ásamt m.a. klámynda-
kónginum Ron Jeremy sem þeytti
skífum.
Alls tóku 240 keppendur þátt í
kappakstrinum á 120 bílum. Byrj-
unarreitur var London en auk Jóns
Ásgeirs og Guðmundar Inga tóku
þátt héðan frá Íslandi þeir Hannes
Smárason, forstjóri FL Group,
og Ragnar Agnarsson.
Icelandair tók þátt í
kapphlaupinu á sinn hátt
því fyrir utan þátttöku
Hannesar leigði fyrir-
tækið aðstandendum
keppninnar eitt stykki
Boeing-þotu til að
flytja keppendurna á
milli þeirra þriggja
heimsálfa þar sem
keppnin fór fram.
Gumball 3000
er nútíma-
útfærsla á kvik-
myndinni vin-
sælu Cannonball Run frá árinu
1981 þar sem Burt Reynolds var í
aðalhlutverki. Þátttöku-
gjaldið í keppnina, sem
var haldin í áttunda
sinn í ár, var 5,5
milljónir króna og
því ekki á færi
hvers sem er að
taka þátt.
freyr@frettabladid.is
JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON: Á LÖGLEGUM HRAÐA Í GUMBALLL
Langri keppni lokið
KAPPAKSTURSBÍLL Einn af bílunum sem tóku þátt í Gumball 3000. Kappaksturinn er
nútímaútfærsla á kvikmyndinni vinsælu Cannonball Run frá árinu 1981.
JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON
Forstjóri Baugs var einn af
fjórum Íslendingum sem
tóku þátt í Gumball
3000.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN