Fréttablaðið - 16.05.2006, Síða 21
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
GÓÐAN DAG!
Í dag er þriðjudagurinn
16. maí, 136. dagur ársins
2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 4.10 13.24 22.41
Akureyri 3.35 13.09 22.45
Háþrýstingssjúklingar ná flestir
ekki þeim meðferðarmarkmiðum
sem mælt er með. Þetta kemur
fram í nýrri íslenskri rannsókn.
Læknar segja þessar niðurstöður
kalli á heildræna endurskipu-
lagningu á meðferð sjúklinga
með háþrýsting í heilsugæslu.
Kvikmyndahátíðin
í Cannes hefst í
þessari viku. Á
viðburðinum,
sem er hátíð fyrir
tískuspekúlanta,
skarta stjörnurnar
og kvikmynda-
gerðarfólk sínu
fegursta. Myndir
af fallegum
fötum verður hægt
að finna á www.
style.com og www.
vogue.co.uk.
Landlæknir hefur
áhyggjur af þróun
mála á Landspítala
- háskólasjúkrahúsi. Hann segir
vandamálin þar ekki ný af nál-
inni heldur langvinn. Kvörtunum
hefur ekki fjölgað en þær eru
stöðugar. Vandinn er í umræð-
unni og landlæknir fagnar því að
starfsfólk LSH sé farið að taka
virkari þátt í umræðunni.
ALLT HITT
[ HEILSA TÍSKA ]
Aikido er afar spennandi íþrótt sem allt
of fáir kannast við. Alexander Óðinsson
er einn helsti afreksmaður landsins
í sjálfsvarnarlistinni en hann heldur
brátt til Japans í þjálfunarbúðir.
„Aikido er japönsk sjálfsvarnarlist, sem
varð til fyrir um áttatíu árum. Hún gengur
fyrst og fremst út á að nýta sér krafta and-
stæðingsins gegn honum. Tæknin sjálf
skiptir því meira máli en kraftur eða
stærð. Aikido er með yngstu sjálfsvarnar-
listum sem til eru í dag, en hefur nær sömu
forsögu og Jiu-jitsu,“ útskýrir Alexander.
Hann segir jafnframt að Aikido skeri sig
helst frá öðrum sjálfsvarnarlistum að því
leyti að hún snúist um að komast frá árás
án þess að meiða andstæðinginn. „Þetta er
mjög mikilvægur punktur af því að allt
sem við gerum gengur út á að bera virð-
ingu fyrir þeim sem ræðst að okkur. Fyrst
og fremst reynum við samt að vernda
okkur sjálf en síðan að vernda mótherjann
þannig að hann meiði sig ekki frekar.“
Alexander hefur stundað Aikido í fjögur
ár en hann byrjaði eftir að hafa séð mynd-
band þar sem sjálfsvarnarlistin var kynnt.
„Mér fannst tæknin svo flott og flæðandi.“
Alexander segist enn vera að læra nýja
hluti á hverri æfingu en hann er á leið til
Japans eftir tvær vikur. „Þar ætla ég að æfa
með japönskum meistara sem lærði af
upphafsmanni Aikido.“
Alexander æfir að jafnaði um fjórum til
fimm sinnum í viku en hvað hafa þessar
stífu æfingar undanfarin ár gefið honum?
„Líkamlega er það án efa töluverð liðkun.
Ég byrjaði í þessu sem kraftakall en síðan
hef ég liðkast verulega og hef meira vald
yfir eigin líkama. Maður er orðinn mýkri án
þess að verða beint aumari. Síðan er frá-
bært fyrir andlegu hliðina að æfa, sérstak-
lega í fræðum þar sem þú ert sérstaklega
hvattur til þess hugsa um hvað þú ert að
gera,“ segir hinn ákveðni Alexander að
lokum.
steinthor@frettabladid.is
Hefur meira vald
yfir eigin líkama
Aikido er japönsk sjálfsvarnarlist, sem varð til fyrir áttatíu árum. Hún gengur fyrst og fremst út á að nýta sér krafta andstæðingsins gegn honum. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
– Kröftugt ofnæmislyfLóritín®
Notkunarsvi›: Lóritín inniheldur virka efni› lóratadín sem hefur kröftuga og langvarandi verkun vi›
algengustu tegundum ofnæmis. Lyfi› er ætla› vi› frjókorna- og d‡raofnæmi, sem og ofnæmi af
völdum rykmaura. Varú›arreglur: Gæta flarf sérstakrar varú›ar hjá börnum me› alvarlega
n‡rna- og lifrarsjúkdóma. Sjúklingar me› skerta lifrarstarfsemi flurfa minni skammta.
Aukaverkanir: Lóritín flolist yfirleitt vel en algengustu aukaverkanirnar eru
munnflurrkur og höfu›verkur. Svimi getur einnig komi› fyrir. Skömmtun: Ein tafla
af Lóritíni er tekin daglega. Börnum 2-14 ára sem eru undir 30 kg a› flyngd nægir
hálf tafla á dag. Lyfi› er ekki ætla› börnum yngri en 2ja ára.
Lesi› vandlega lei›beiningar sem fylgja lyfinu. 13.07.04HV
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
/
A
C
TA
V
IS
5
0
5
0
3
1
HJÚKRUNARRÝMUM VERÐUR FJÖLGAÐ VIÐ HEILBRIGÐISSTOFNUN
SUÐURLANDS.
Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hefur
ákveðið að hjúkrunarrýmum við Heilbrigðisstofnun Suðurlands
verði fjölgað. Þetta verður gert með því að byggja þriðju hæðina
í viðbyggingu við Heilbrigðisstofnun Suðurlands, en í fyrstu áttu
hæðirnar að vera tvær. Á 3. hæðinni er fyrirhugað að verði 20
til 24 vistrými sem bætast við þau 19 rými sem verða á 2. hæð
viðbyggingar og er þá miðað við að einmennt verði í öllum stofum.
Undanfarið hálft annað ár hafa staðið yfir framkvæmdir við
viðbyggingu við Sjúkrahúsið á Selfossi. Í þessari viðbyggingu var
fyrirhugað að heilsugæslustöð yrði á 1. hæð, en hjúkrunardeild
fyrir aldraða á 2. hæð. Framkvæmdir við uppsteypu hússins og
innréttingu hjúkrunardeildar voru boðnar út í október 2004 og
gerður um það verksamningur við JÁ-verktaka. Verklok samkvæmt
þessum samningi eru 1. febrúar 2007.
Fleiri hjúkrunarrými á Selfossi
FLAK ER SAMBLAND
AF FRISBÍ OG BLAKI
Reglulega hittast nokkrir strákar á
Miklatúni og spila íþrótt sem þeir
bjuggu til og kalla flak.
HEILSA 2
Á TÍSKUVIKU
Í MIAMI
Margt hefur breyst í tískunni í
Miami síðan Don Johnson
sprangaði þar um á
níunda áratugnum.
TÍSKA 6