Fréttablaðið - 16.05.2006, Blaðsíða 22
[ ]
Reglulega hittast nokkrir
strákar á Miklatúni og spila
íþrótt sem þeir kjósa að kalla
flak. Íþróttin er blanda af blaki
og frisbí.
Íþróttin er uppfinning strákanna
sjálfra og eftir því sem þeir best
vita spila engir aðrir flak. Þeir deila
sín á milli um hver sé hinn raun-
verulegi upphafsmaður en þar sem
niðurstaða hefur ekki náðst verður
þeim sem hópi tileinkuð íþróttin.
„Við vorum bara að kasta frisbídisk
á milli okkar á Miklatúni og sáum
blakvöllinn,“ segir Sigurgeir Finns-
son, einn af forsprökkum strák-
anna. „Okkur datt í hug að prófa
hvernig væri að kasta diskinum
yfir net og þannig byrjaði flak.“
Reglurnar í flaki eru nokkuð á
reiki en í grundvallaratriðum eru
þær eins og í blaki. Í stað bolta er
notaður frisbídiskur en markmiðið
er það sama, að koma disknum í
jörðina á vallarhelmingi andstæð-
inganna. Diskinum er hent yfir
netið í uppgjöf og andstæðingarnir
reyna að grípa hann. Þegar þeir
hafa gripið diskinn má sá sem held-
ur á honum ekki færa sig úr stað
heldur kastar hann diskinum aftur
yfir netið. Varðandi helmingaskipti
stendur eftirfarandi í 7. grein opin-
beru flakreglanna:
- Er annað liðið nær 8 stigum
skal skiptast á leikhelmingum. Óski
keppandi þess er honum heimilt að
taka frá tíma til að losa hland, hægja
á sér, blása úr nös eða reykja. Tími
til þessara athafna skal þó alltaf
hafður sem stystur án þess þó að
hvikað sé frá almennum heilbrigð-
issjónarmiðum og velsæmi. -
Flak er hægt að spila allan árs-
ins hring við nær allar aðstæður.
„Íþróttin snýst ekki um kraft held-
ur meira að plata menn með laum-
um eða að láta diskinn sveigja frá
leikmönnum,“ segir Sigurgeir.
„Þess vegna verður leikurinn oft
áhugaverður þegar það er vindur.
Við erum búnir að spila úti í allan
vetur og nú þegar veðrið hefur
batnað hittumst við 1-2 sinnum í
viku.“
Sigurgeir og félagar stunda ekki
aðrar frisbííþróttir en flak. „Þetta
kom bara af sjálfu sér eftir að við
prófuðum fyrst. Síðan hefur íþrótt-
in þróast smám saman og enn eru
reglurnar að breytast,“ segir
Sigurgeir en hann vill benda öllum
sem áhuga hafa á heimasíðuna
www.central.blog.is/flak þar sem
er meðal annars að finna reglur
leiksins.
tryggvi@frettabladid.is
Íþróttin flak er sam-
bland af frisbí og blaki
Flak er íþrótt sem er sambland af blaki og frisbí. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hjartamagnyl geur komið í veg fyrir ýmsa hjartasjúk-
dóma. Í litlum skömmtum hefur það áhrif á viðloðun blóð-
flagna og getur meðal annars komið í veg fyrir blóðtappa.
Ný líkamsrækt fyrir konur
Betri heilsa á 30 mínútum
Sumartilboð af kortum
����������
NFS Í BEINNI
Á VISIR.IS
35.000 gestir vikulega
sem dvelja í u.þ.b. eina klst. hver.
Auglýsingasími 550 5000.
N† VÖRU- OG fiJÓNUSTU-
SKRÁ Á VISIR.IS/ALLT
... sem flig vantar í
n‡ja húsnæ›i›