Fréttablaðið - 16.05.2006, Side 32
„Það er búið að breyta kerfinu
í Verslunarskólanum núna en
þetta var þannig að allir byrjuðu
á almennri braut fyrsta árið og
svo var hægt að velja úr nokkrum
brautum. Þar valdi ég viðskipta-
braut sem síðan skiptist í almenna,
viðskipta- og hagfræðibraut og ég
valdi þá síðastnefndu. Ástæðan
fyrir því var að þar er meiri stærð-
fræði og lærir maður til að mynda
meira í rekstrarhagfræði. Ég er mjög
sáttur við þetta nám og hefur þetta
gengið mjög vel hjá mér,“ sagði
Andri Janusson sem er að útskrifast
úr Verslunarskóla Íslands.
„Ég mæli hiklaust með þessu
námi, það er mjög skemmtilegt en
þetta er þó mikil vinna og það þarf
að hafa fyrir þessu. Það fer mikill
tími í heimalærdóm hjá mér en ég
hef samt alveg náð að hafa einnig
tíma fyrir fótboltann og önnur
áhugamál,“ sagði Andri en hann
telur að það mikla félagslíf sem
boðið er upp í Versló hafi ekki náð
að trufla nám hans.
„Það er alltaf eitthvað að ger-
ast í félagslífinu en maður ræður
að sjálfsögðu alveg hve mikinn
þátt maður tekur í því. Svo er þetta
einnig þannig að maður getur eig-
inlega alltaf stundað félagslífið á
þeim tíma sem hentar manni best.
Samheldnin í skólanum er mikil
og hefði ég ekki viljað vera án
bekkjarkerfisins. Ég hugsaði reyndar
ekki út í það þegar ég valdi skólann
upphaflega heldur var það aðallega
námið þar sem hentaði mér. En eftir
að hafa kynnst því þykir mér bekkj-
arkerfið eiginlega nauðsynlegt,“
Andri ætlar ekki að halda stór-
vægilega veislu í tilefni af útskrift
sinni en fagnar þessum áfanga í
faðmi fjölskyldunnar og kærustu
sinnar á Álftanesinu. Hann stefnir
næst á stærðfræði í Háskóla Íslands.
„Í framtíðinni hyggst ég starfa við
eitthvað stærðfræðitengt. Ég hef
eiginlega alla mína tíð haft mikinn
áhuga á stærðfræði og er að finna
mig vel í þannig námi,“ sagði Andri
Janusson.
Bekkjarkerfið nauðsynlegt
Andri Janusson er að útskrifast af hagfræðibraut Verslunarskólans.
■■■■ { útskrift 2006 } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Verslunin Jack & Jones/Selected
í Kringlunni selur föt fyrir karla á
öllum aldri, annaðhvort óformlegan
klæðnað fyrir menn á aldursbilinu
15-25 eða föt í fínni kantinum fyrir
þá sem eru eldri. Róbert Róbertsson,
verslunarstjóri Jack & Jones/Select-
ed, telur að þegar velja eigi föt fyrir
útskriftina séu báðar leiðir hentug-
ar, enda ekki sama íhaldssemi ríkj-
andi í karlatísku og áður.
Róbert segir fyrst frá því að lágt
verðlag setji Jack & Jones/Select-
ed í ákveðna sérstöðu hérlendis.
„Við leggjum mikið upp úr því að
hafa vörurnar okkar á góðu og
viðráðanlegu verði fyrir neyt-
endur. Við erum til dæmis með
mikið af fallegum skyrtum í
skærum litum sem eru alveg
frá 2.990 kr. og upp úr. Þess
má reyndar geta að slíkar
skyrtur eru einmitt mikið í
tísku núna ásamt litsterkum
bolum, bæði í línunni frá
Jack & Jones og Selected.
Litskrúðugar flíkur verða
áberandi í sumar.“
Af þeim fatnaði sem
Róbert segir að sé sérstaklega í
boði fyrir útskriftarnema, má
nefna að Jack & Jones/Selected
selur tíu gerðir jakkafata. „Það
er því hægt að velja um ólíkan stíl
í lit, efni og sniði. Jakkaföt eru
náttúrlega klassísk og hafa notið
mikilla vinsælda í gegnum tíðina,“
segir Róbert.
„Fyrir þá sem vilja hins vegar ekki
vera of fínir, ef svo má að orði kom-
ast, þá eigum við líka gott úrval af
hversdagslegri klæðnaði,“ bætir
hann við. „Það þarf ekki endilega
að vera í jakkafötum
við útskrift heldur má
alveg klæðast stök-
um jakka, skyrtu og
fallegum buxum.
Við erum
til að
mynda með þröngar og fínlegar,
svartar gallabuxur í búðinni, sem
eru töff við jakka, skyrtu og bindi.“
Þá skiptir ekki síður máli að
vera vel skóaður á útskriftardag-
inn. Verslunin selur herraskó undir
merki Selected, sem eru yfirleitt á
verðbilinu 6.990 kr. og upp í 12.990
kr. samkvæmt Róbert. „Menn geta
valið um nokkuð ólíkar skógerðir í
búðinni,“ segir hann. „Við erum til
dæmis með támjóa leðurskó, sem
njóta enn mikilla vinsælda og virð-
ast ekki vera á leið úr tísku. Svo fást
líka skór í versluninni, sem eru úr
leðurlíki og ekki eins támjóir.“
Fyrir þá sem eru að útskrif-
ast gefur Róbert þau ráð að
vera ófeimnir við að blanda
litum saman, þar sem full-
komins samræmis í fata-
vali sé ekki krafist eins og
oft áður. „Svo er bara að
mæta í búðina og kíkja
á úrvalið, en starfsfólkið
okkar er alltaf tilbúið að
veita viðskiptavinum góð
ráð í fatavali,“ segir hann
að lokum.
Falleg útskriftarföt á góðu verði
Gott fataúrval fyrir karla í versluninni Jack & Jones/Selected.
Sand Blazer jakkaföt sem fást í Jack &
Jones/Selected. Jakkinn er á 9.900 kr.
og buxurnar 5.990 kr. Malaga skyrta á
2.990 kr., hvítt bindi á 2.990 kr., belti
á 3.990 kr. og dökkbrúnir Cloud skór
á 7.490 kr.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Menn þurfa ekki alltaf að klæðast
jakkafötum við útskrift eins og sést á
þessari mynd. Juve vesti á 4.990 kr., Pelle
skyrta á 4.990 kr. og bindi á 2.990 kr.,
Lois gallabuxur á 7.990 kr., belti á 3.990
kr. og Michael skór á 10.900 kr.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Eitt af því sem fylgir útskriftardeginum er að
velja sér föt fyrir daginn. Fyrir stelpurnar koma
kjólarnir mjög sterkt inn þetta árið þar sem þeir
eru mjög vinsælir í tískunni um þessar mundir.
Svörtu og hvítu litirnir eru alltaf mjög einkenn-
andi fyrir útskriftardaginn, enda eru það litirnir
á stúdentskollinum. Þó er litagleðin orðin meiri
og meiri með hverju árinu enda lífgar það svo
upp á hópinn og er svo vorlegt og skemmti-
legt. Hérna eru nokkrar hugmyndir að fal-
legum útskriftarfötum sem eru bæði vor-
leg og fín auk þess sem hægt er að nota
þau aftur við önnur tilefni.
Sætur kjóll með hvítum grunni, sem fer vel
við húfuna, og bláum blómum, sem gera
hann vorlegan og sætan.
Fallegur hvítur kjóll með
svörtu mynstri sem eru
aðallitir útskriftarinnar.
Kjólarnir vinsælir
Svart er alltaf klassískt
og undirstrikar hvíta
kollinn vel.
Nettur ljósbleikur kjóll
sem er mjög kvenlegur.