Fréttablaðið - 16.05.2006, Qupperneq 38
10 ■■■■ { útskrift 2006 } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Fríður Eggertsdóttir ljósmyndari
hefur um árabil starfað á Ljós-
myndastofunni Svipmyndum,
sem hún rekur nú og er til húsa á
Hverfisgötu 50 í Reykjavík. Fríður
sérhæfir sig í portrettljósmyndun,
ýmist barnamyndum, fjölskyldu-
myndum eða fermingarmyndum,
brúðkaupsmyndum, passamyndum
og síðast en ekki útskriftarmynd-
um.
Útskriftartímabilið er einmitt
runnið upp þannig að Fríður hefur í
nógu að snúast. Aðspurð hverskon-
ar myndatökur njóti mestra vin-
sælda segir hún að myndir í svart
hvítu séu algengastar. Hún bætir
við að þó séu ávallt einhverjir sem
vilji fá myndir í lit. „Svarthvítar
myndir eru náttúrulega klassískar,
sem útskýrir aftur af hverju þær
verða frekar fyrir valinu en lit-
myndir,“ segir Fríður. „Svo eru allir
komnir með stafrænar myndavélar,
sem þeir taka mikið af litmyndum
á. Þannig að fólk leitar gjarnan eftir
tilbreytingu frá litmyndum þegar
farið er á ljósmyndastofu,“ útskýrir
hún.
Aðspurð segist Fríður ekki tekið
hafa tekið eftir því að almennt hafi
dregið úr myndatökum á stofunni
með tilkomu stafrænna myndavéla.
„Ég held að fólki finnist handhægt
að hafa starfræna myndavél í dag-
legu lífi, en finnist síðan gott að
leita til atvinnuljósmyndara við
sérstök tækifæri eins og útskrift-
ir,“ segir hún. Sjálf hefur Fríður
ekki skipt filmu út fyrir stafræna
myndavél og tekur mestallt sitt efni
á 6x6 Hasseblad myndavél, sem
hún telur vera þá bestu sem völ er
á. Eina undantekningin sem hún
gerir á því eru myndatökur fyrir
heimasíður og nafnspjöld, sem eru
á stafrænu formi.
Fríður segir að sú breyting hafi
orðið á frá því sem áður var, að fólk
vilji nú vera frjálslegra á mynd-
um. „Fólk vill oft ekki vera jafn
uppstillt eins og tíðkaðist áður,“
segir hún. „Í dag hvet ég fólk til
að koma með eigin hugmyndir,
svo að persónuleiki viðkomandi
aðila skíni vel í gegn. Ég minnist
stráks sem tók vel í þessa hugmynd
og mætti á stofuna með eldgamla,
beyglaða stúdentshúfu af langafa
sínum sem hann vildi láta mynda
sig með. Húfuna mátti ekki laga til
og hann vildi hafa hana skásetta á
kollinum, þannig að merkið vísaði
fram. Þetta er gott dæmi um það
frjálsræði sem orðið er í mynda-
tökum. Frjálsræðið leyfir auðvitað
líka hefðbundnar myndatökur, sem
margir kjósa enn enda útkoman
oft geysilega falleg,“ segir Fríður
að lokum.
Meira frjálsræði í
ljósmyndun en áður
Fríður Eggertsdóttir ljósmyndari er á fullu í útskriftar-
myndatökum.
Fríður Eggertsdóttir portrettljósmyndari og
eigandi Svipmynda segir meira frjálsræði
ríkja í ljósmyndun en oft áður. Eigi það
ekki hvað síst við um útskriftarmyndatök-
ur sem eru fyrirferðarmiklar þessa daga.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þótt margir kjósi myndir í svarthvítu, þá
eru litamyndir enn vinsælar eins og þessi
fallega mynd eftir Fríði er ágætis vitnisburð-
ur um.
Fríður hvetur fólk til að láta
ímyndunaraflið leika lausum
hala fyrir myndatökur. Telur
hún að persónuleiki hvers
og eins komi betur fram
með þeim hætti. Mynd eftir
Fríði.
Ekkert er sumarlegra en blóm og
vorið er akkúrat rétti tíminn til þess
að gleðja útskriftarnemann og sjálf-
an sig með blómum. Hvort sem þau
eru keypt í blómabúð, á bensínstöð
eða tínd úti í garði lífga þau upp
á heimilið og koma öllum í sumar-
skap. Blómin má setja í blómavasa,
glös, könnur, krúsir eða bara það
sem hendi er næst og hafa hvar
sem er. Allt sem skiptir máli er að
þau séu einhvers staðar þar sem
þau sjást og gleðja sem flesta. Við
útskrift er einnig fallegt að stinga
blómi í hnappagatið á jakkafötun-
um, og á veisluborðið.
Blóm við útskrift
Flestir útskriftast að vori þegar blómin eru að springa út
og græni liturinn að taka yfir umhverfið.