Fréttablaðið - 16.05.2006, Page 52
16. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR16
...að 19. febrúar 1945 lentu
Bandaríkjamenn á japönsku
eyjunni Iwo Jima?
...að í innrásinni tóku þátt 110.000
bandarískir hermenn á 880
skipum?
...að varnarherinn samanstóð af
22.000 Japönum?
...að vörn þeirra byggðist á því að
þeir voru allir grafnir niður í jörðina?
...að þeir grófu 1.500 klefa í bergið?
...að 26 km af göngum tengdu
klefana?
...að hernaðartaktík Japana gaf
ekkert svigrúm til að hörfa?
...að Japanir börðust til síðasta
manns?
...að enginn erlendur her hafði
stigið fæti á japanska jörð í 5.000
ára sögu þjóðarinnar?
...að markmið Japana var að hver
hermaður þeirra dræpi tíu banda-
ríska hermenn áður en hann félli
sjálfur?
...að mannfall Bandaríkjamanna átti
að verða svo mikið að þeir ættu að
hugsa sig tvisvar um áður en þeir
réðust á önnur japönsk landsvæði?
...að Iwo Jima var svo mikilvæg því
hún var mitt á milli Bandaríkjanna
og Japan?
...að byrgi Kuribayashi,
hershöfðingja Japana á Iwo Jima,
hafði 1,5 m þykka veggi og 3 m
þykkt þak?
...að það var í jörðu niðri, 25 m inni
í kletti?
...að fyrir landárásina vörpuðu
Bandaríkjamenn fjölmörgum
sprengjum á eyjuna?
...að þessar sprengjuárásir voru
lengsta samfellda sprengjuárásin í
síðari heimsstyrjöldinni?
...að árásirnar höfðu lítil sem engin
áhrif?
...að bardagar stóðu í 36 daga?
...að á meðan á bardögum stóð var
Iwo Jima eitt fjölmennasta svæði á
jörðinni?
....að á þessum tímapunkti
voru rúmlega 100.000 menn á
svæði sem jafnast á við þriðjung
Manhattan?
...að mannfall varð gríðarlegt?
...að einn af hverjum þremur
Bandaríkjamönnum lést eða
særðist?
...að nær allir Japanir á eyjunni
létust?
...að ein af ástæðum, eða
afsökunum, fyrir notkun
kjarnavopna var sú að mannfall í
hefðbundnum bardögum myndi
verða mun meira?
...að þar miðuðu menn við
reynsluna frá Iwo Jima?
VISSIR ÞÚ...
„Flesta daga byrja ég á því að vakna,“
kímir Ari Sigvaldason fréttamaður.
„Þar á eftir hita ég einn kaffibolla á
mochaccino-vélina mína áður en ég
held af stað í vinnuna. Fréttastofan
fundar um níuleytið á morgnana þar
sem við leggjum niður mál dagsins
og dreifum út verkefnum. Eftir það
hefst svo fréttavinnslan. Dagurinn fer
oftast í að ná í viðmælendur og bóka
tökur og auðvitað reynir maður alltaf
að grafa upp einhver góð skúbb.
Þegar líða tekur á daginn og dregur
nær útsendingu fer að magnast smá
stress á fréttastofunni. Pródúsentarnir
fara að reka á eftir manni og þá drífur
maður sig í klippiherbergið og setur
saman fréttirnar sínar. Stundum eru
stór mál að í gangi sem gerast seint
um daginn og þá verður ansi mikill
hamagangur við að ná í hús tíman-
lega til að klippa fyrir útsendingu. Ég
man eftir einu skipti sem ég hljóp
niður fatastandinn þegar ég hljóp inn
í hús með gott mál og einu sinni fékk
ég gat á hausinn innandyra og var
fluttur á slysó,“ segir Ari og hlær. „Svo
reynir maður að koma sér heim upp
úr klukkan átta á kvöldin.“
HVUNNDAGURINN
Fékk gat á hausinn
Ari Sigvaldason fréttamaður
hefur lent í ýmsu í amstri
vinnudagsins. Sigvaldi Örn
frændi hans reynir þó að
gæta föðurbróður síns utan
vinnu.
1. Wild Love (1995). Ein af fáum plötum
Smog, sem heitir réttu nafni Bill Callahan,
sem tekin er upp í almennilegu upptöku-
veri. Fyrsta lag plötunnar, Bathysphere, er
einnig nafn á heimasíðu tengdri söngvar-
anum, www.pry.com/smog.
2. Knock Knock (1999).
Upptökum á plötunni
stjórnaði Jim O‘Rourke sem
nýlega hætti í Sonic Youth.
Lítill barnakór kemur fyrir á
plötunni. Þegar platan kom
út í Japan fylgdu plötunni
tvö aukalög, Look Now og
The Only Mother.
3. A River Ain‘t too
Much to Love (2005).
Nýjasta plata Callahan og
á henni er hann hættur að
notast við sviga um nafnið
sitt. Kærastan hans, Joanna
Newsom, spilar á píanó í laginu Rock
Bottom Riser. Í myndbandinu við lagið I
Feel Like the Mother of the World leikur
Chloë Sevigny aðalhlutverkið.
4. Red Apples Fall (1997). Textar plöt-
unnar fjalla meðal annars um aðskilnað
hans og Cynthiu Dall en
stuttu seinna byrjaði Smog
með Chad Marshall, betur
þekktri sem Cat Power.
Jim O‘Rourke vann einnig
mikið með Smog á þessari
plötu.
5. Dongs of Sevotion
(2000). John McEntire,
aðalmaður Tortoise, sá um
trommuleik á plötunni.
Eftir útkoma þessarar
plötu byrjaði Callahan að
kalla sig Smog með sviga,
(Smog).
TOPP 5: SMOG
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
5
8
7
2