Fréttablaðið - 16.05.2006, Qupperneq 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
KIA umboðið á Ís landi er í e igu Heklu hf . Laugavegi 172 • Reykjavík • s ími 590 5700
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
4
0
5
3
KIA Rio er magnaður bíll og með aflmikilli 112 hestafla
dísilvél sem eyðir aðeins 4,7 lítrum á hundraðið í blönduðum
akstri. Eins og alltaf fara hér saman gæði, afl og hagkvæmni.
Rio er jafnframt búinn aksturstölvu, átta öryggisloftpúðum, ABS
hemlalæsivörn og álfelgum. KIA Rio dísil kostar 1.698.000 kr.
KIA umboðið er eini viðurkenndi sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi
3 ára ábyrgð
KIA er sá bílaframleiðandi sem er í mestum vexti í
heiminum í dag. Það er ekkert skrýtið þegar hægt er að bjóða
þessi gæði á svona verði.
*Eldsneytiskostnaður m.v. dísilolíu á 119,5 kr. lítrinn
og 1.500 km akstur á mánuði.
Taktu þátt í HM leik KIA og þú átt
möguleika á frábærri ferð fyrir tvo
á úrslitaleik HM í sumar. Allir sem
kaupa KIA bíl hjá KIA umboðinu til
15. júní eiga möguleika á þessari
frábæru ferð.
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA
����������
�����������������������������
Daginn sem fyrsta plata Utan-garðsmanna kom út var ég í
bæjarferð með fyrsta kaupið mitt
í buddunni. Þar sem farið var að
örla á dálítilli gelgju í stelpunni
ákvað ég að fjárfesta í þessari
plötu. Verandi samt meira lítil en
stór, þá hringdi ég fyrst í mömmu
til að fá leyfi til að ráðstafa aurun-
um. Roggin með fenginn á heim-
leið í stræó fann ég uppreisnar-
girnina krauma í sálinni og var
tilbúin til að gefa skít í hefðbundin
gildi. Ég hafði nefnilega eignast
rokk og ról fyrir eigin pening og
nýja sjálfsmynd í kaupbæti.
HÚN er sennilega eitt magnað-
asta vopnið sem við höfum í hendi.
Sjálfsmyndir geta þó auðveldlega
verið nokkuð lífseigar ranghug-
myndir og jafnvel dagað þannig
uppi. Þannig finnst mér ennþá ára-
tugum síðar ég enn vera dálítill
villingur þrátt fyrir allt þó smátt
og smátt hafi veruleikinn seytlað
inn. Að lokum verður að viður-
kennast að maður er ekki lengur
sami pönkarinn í hjarta sér og
uppúr miðri síðustu öld.
NÚORÐIÐ finnst mér í alvörunni
rás eitt notalegasta útvarpsstöðin,
óskalög sjúklinga, miðdegissagan
og allt það. Með aldrinum og aukn-
um skyldum fer maður líka að
klæða sig eftir veðri, borða úr
öllum fæðuflokkum, verða sybb-
inn fyrir miðnætti og nýta tímann.
Horfi tortryggin á unglinga með
eyrnalokka í augabrúnunum eða
tattú og herði takið um dömuvesk-
ið. Geri áætlanir sem standast.
Nenni ekki á djammið, tek lýsi og
keyri á löglegum hraða. Nú er
jafnvel svo komið fyrir mér að ég
glápi öfundaraugum á eftir fólki á
Volvo.
LÍFIÐ er nefnilega lunkið við að
kenna manni að vera praktískur.
Það hljómar leiðinlega, ég veit, en
fimm manna fjölskylda í tveggja
manna sportbíl er dæmi sem geng-
ur illa upp.
FYRSTA gráa hárið mitt dinglaði
sér storkandi í speglinum á rauðu
ljósi á leiðinni í jarðarför. Sem var
mjög við hæfi því útfarir og erfi-
drykkjur eru einmitt vettvangur-
inn þar sem sumt roskið fólk sinn-
ir félagsþörfinni. Síðan þá hefur
gráu hárunum fjölgað með lóga-
ritmískum hraða svo núorðið tákn-
ar „hið mánaðarlega“ aðallega
hina mánaðarlegu hárlitun. Ég
hugga mig við að sem betur fer
hef ég ekki snefil af áhuga á búta-
saumi og ættfræðiþekking mín er
ennþá í molum.
Elli kerling
��������������
�������
����������
����
������������
����������
��� �