Fréttablaðið - 20.05.2006, Qupperneq 28
20. maí 2006 LAUGARDAGUR28
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis-
atburði, stórafmæli,
andlát og jarðarfarir í
smáletursdálkinn hér til
hliðar má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma
550 5000.
MERKISATBURÐIR
1506 Kristófer Kólumbus land-
könnuður deyr, 55 ára að
aldri.
1818 Siglufjörður fær löggildingu
sem verslunarstaður. Bær-
inn fær kaupstaðarréttindi
einni öld síðar.
1944 Þjóðaratkvæðagreiðsla um
lýðveldisstofnun hefst og
stendur í fjóra daga. Kjör-
sókn var 98,4 prósent.
1969 Bardaga um Ap Bia-fjall í
Víetnam, sem síðar var
nefnt Hamborgarahóll,
lýkur. Fjöldi manna féll í
orrustunni.
1986 Sex af forráðamönnum Haf-
skips hf. eru handteknir og
úrskurðaðir í gæsluvarðhald
meðan rekstur fyrirtækisins
er rannsakaður.
Á þessum degi árið 1873
tryggði kaupmaðurinn Levi
Strauss sér og klæðskeran-
um Jacob Davis einkarétt-
inn á strigabuxum sem
festar voru saman með
koparnælum. Striganum
í buxunum var síðar skipt
út fyrir svokallað gallaefni
og eru gallabuxurnar frá
vörumerkinu Levi Strauss
þekktar um heim allan.
Strauss fæddist í Bæjaralandi árið 1829 en
fluttist til Bandaríkjanna árið 1847. Hann starfaði
sem kaupmaður og fór til San Fransiskó árið 1853
til að freista gæfunnar. Verslunin gekk hins vegar
illa og eftir óheppileg viðskipti sat Strauss uppi með
mikið magn af strigaefni. Honum datt það snjallræði
í hug að sauma buxur úr
efninu sem slógu í gegn
hjá námuverkamönnum
vegna þess að þær þóttu
sérlega endingargóðar.
Árið 1972 sendi klæð-
skerinn Jacob Davis bréf
til Strauss og benti honum
á að það mætti styrkja
viðkvæmustu álagspunkt-
ana með koparfestingum.
Davis og Strauss ákváðu
að leggja saman krafta sína, fengu einkaleyfi á
hugmyndinni og hófu fjöldaframleiðslu á strigabux-
um með koparfestingum. Síðar skiptu þeir um efni,
hættu við strigann og fóru að nota blátt gallaefni og
gallabuxurnar, eins og við þekkjum þær í dag, litu
dagsins ljós.
ÞETTA GERÐIST: 20. MAÍ 1873
Einkaleyfi fæst á buxum Levi StraussGILDA RADNER (1946-1989), LÉST ÞENNAN DAG.
„Ég byggi tískusmekk
minn helst á því sem
ekki klæjar undan.“
Krabbamein í eggjastokkum
dró gamanleikkonuna Gildu
Radner til dauða en hún vakti
fjölmarga til umhugsunar um
sjúkdóminn.
Hvítasunnuhreyfingin fagnar marg-
földu afmælisári um þessar mundir. 85
ár eru liðin síðan samfellt starf hvíta-
sunnufólks hófst hér á landi og Hvíta-
sunnukirkjan Fíladelfía í Reykjavík
heldur um helgina upp á sjötíu ára
afmæli sitt.
„Hvítasunnuhreyfingin hefur
breiðst mjög fljótt út um heiminn frá
því að hún hófst í Los Angeles árið
1906. Nú tilheyra yfir sex hundruð
milljónir manna hreyfingunni en til
samanburðar telur lúterska kirkjan 61
milljón,“ segir Vörður Traustason, for-
stöðumaður Fíladelfíu. Rétt rúmlega
tvö þúsund félagar eru í kirkjunni hér
á landi og á Vörður því von á miklum
fjölda fólks á afmælishátíðina.
Dagskráin hófst á fimmtudaginn
með sjónvarpsupptökum en í dag verð-
ur fjölskyldan í fyrirrúmi og allir finna
eitthvað við sitt hæfi. „Frá eitt til fimm
verður karnivalstemning á planinu
fyrir utan kirkjuna með hoppkastala,
trampólínum og veitingasölu. Við
notum líka alla kirkjuna þar sem
hljómsveitir flytja tónlist bæði inni og
úti. Einnig verður sögusýning þar sem
saga hreyfingarinnar verður rakin í
myndum og máli,“ segir Vörður.
Starf kirkjunnar eins og hún er í
dag verður til sýnis og er óhætt að full-
yrða að nóg sé um að vera í Fíladelfíu
utan hefðbundins kirkjustarfs. „Í söfn-
uðinum er heilmikil utanfélagssam-
vera. Til dæmis erum við með göngu-
klúbb sem kallar sig 7TS sem fer á sjö
tinda á hverju sumri, jeppaklúbbinn
Extreme og nýstofnaðan mótorhjóla-
klúbb og ætla félagar klúbbanna að
vera með jeppana sína og mótorhjólin
til sýnis á hátíðinni. Það er mjög mikil-
vægt að njóta samverunnar utan kirkju
og geta stundað heilbrigt líferni í nátt-
úrunni um leið og við erum að gleðjast
í guði,“ bætir hann við. Innan kirkj-
unnar er líka gríðarlega mikið starf og
segir Vörður að alltaf sé mikið í gangi
þegar vetrarstarfið stendur sem hæst.
„Við þurfum stærra húsnæði og helst
fleiri daga í vikuna því á hverju kvöldi
er eitthvað að gerast í kirkjunni.“
Á morgun halda hátíðahöldin áfram,
fyrst með hefðbundinni sunnudags-
samkomu klukkan ellefu þar sem
góður gestur kemur í heimsókn.
„Richard Dunn, svæðisstjóri Ass-
embles of God í Norður-Evrópu, ætlar
að predika og að samkomunni lokinni
verður viðstöddum boðið til grillveislu.
Klukkan hálf fimm er hátíðarsamkoma
þar sem von er á ýmsum framámönn-
um og ætlar Egil Svartdal, forstöðu-
maður Fíladelfíu í Ósló, að predika.“
Allir aldurshópar ættu því að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi og Vörður
ítrekar að öllum sé hjartanlega vel-
komið að taka þátt í hátíðardag-
skránni.
HVÍTASUNNUKIRKJAN FÍLADELFÍA: SJÖTÍU ÁRA
Hátíðarsamkoma og
karnivalstemning á afmælinu
VÖRÐUR TRAUSTASON FORSTÖÐUMAÐUR FÍLADELFÍU Alltaf er mikið um að vera í Hvítasunnuhreyfingunni Fíladelfíu og segir Vörður að þörf sé á stærra
húsi fyrir söfnuðinn og eiginlega fleiri dögum í vikuna líka. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ANDLÁT
Guðrún Fr. Holt, elliheimilinu
Grund, áður til heimilis í Suður-
götu 6, Reykjavík, lést föstudaginn
12. maí. Bálför hefur farið fram.
Gunnhildur Snorradóttir,
Völvufelli 46, Reykjavík, lést á
Landspítalanum við Hringbraut
þriðjudaginn 16. maí.
Hafdís Steingrímsdóttir, Hraun-
holti 5, Akureyri, lést á heimili sínu
aðfaranótt fimmtudagsins 18. maí.
Útför fer fram í kyrrþey.
Þuríður Jónsdóttir, Tunghaga,
lést á Sjúkrahúsinu á Egilsstöðum
miðvikudaginn 17. maí.
JARÐARFARIR
11.00 Árni Hálfdán Brandsson,
Neshaga 9, verður jarð-
sunginn frá Kópavogskirkju.
11.00 Jón Hermann Pálsson frá
Hjallanesi, Landsveit, verður
jarðsunginn frá Skarðskirkju
á Landi.
13.00 Rakel Guðrún Aldís Benja-
mínsdóttir bóndi, Læk,
Holtum, verður jarðsungin
frá Hagakirkju í Holtum.
14.00 Björnfríður Ólafía
Magnúsdóttir áður bóndi
og húsfreyja, Ketilseyri,
Dýrafirði, verður jarðsungin
frá Þingeyrarkirkju.
15.00 Guðmundur Daðason fyrr-
verandi bóndi á Ósi á Skóg-
arströnd verður jarðsunginn
frá Narfeyrarkirkju.
Á morgun stendur Rauði
krossinn fyrir málefna-
þingi þar sem fjallað verð-
ur um einstaklinga sem
fastir eru í vítahring
fátæktar, einangrunar og
mismununar. Þingið verð-
ur sett af Ólafi Ragnari
Grímssyni, forseta Íslands,
klukkan 10 í þingsal eitt á
Hótel Loftleiðum.
Á þinginu verður fjallað
um niðurstöður skýrslu
sem unnin var fyrir Rauða
krossinn undir yfirskrift-
inni Hvar þrengir að?
Markmið skýrslunnar er
að finna hópana sem búa
við verstu kjörin í samfé-
laginu til að geta skilgreint
hvar þörfin fyrir aðstoð er
mest og er þetta í þriðja
sinn sem slík skýrsla hefur
verið unnin.
Upplýsingar um dag-
skrá þingsins er að finna á
heimasíðu Rauða krossins.
Aðgangur er öllum opinn
án endurgjalds og er tekið
á móti skráningum í síma
570-4000 og með tölvu-
pósti.
Málefnaþing
Rauða krossins
SANDREIÐ Þessir tveir knapar
viðruðu hesta sína á ströndinni í
Baltimore. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
Guðbjargar Huldar Magnúsdóttur
frá Dölum, Fáskrúðsfirði, síðar Bakka í
Kelduhverfi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu í Reykjavík.
Björg Gunnlaugsdóttir Sverrir Ólafsson
Erla Óskarsdóttir
Magnús Gunnlaugsson Ríkey Einarsdóttir
Aðalbjörg Gunnlaugsdóttir Stefán Óskarsson
Hulda Gunnlaugsdóttir Gunnar Einarsson
Hildur Gunnlaugsdóttir Páll Steinþórsson
Valdís Gunnlaugsdóttir Vignir Sveinsson
og fjölskyldur.
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, systir,
amma og langamma,
Heiðdís Eysteinsdóttir
sem lést á dvalarheimilinu Holtsbúð í Garðabæ mánu-
daginn 15. maí verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
miðvikudaginn 24. maí kl. 13.30.
Steinunn Klara Guðjónsdóttir Páll Jóhannesson
Sigríður Dykesteen og fjölskylda
Heiðar Ingi Svansson Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir
Birna Klara Björnsdóttir Þorgrímur Jónsson
Heiðdís Björnsdóttir Þorvaldur Gísli Kristinsson
og barnabarnabörn.
Ástkær systir, mágkona og frænka,
Jóhanna Kristjánsdóttir
áður Stigahlíð 32, Reykjavík,
sem lést á líknardeild Landakotsspítala mánudaginn
15. maí, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
mánudaginn 22, maí kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hinnar látnu er bent á líknarstofnanir.
Valgerður Þ. Kristjánsdóttir
Gunnar J. Kristjánsson
Erla Kristjánsdóttir
Sigrún Kristjánsdóttir
og fjölskyldur.