Fréttablaðið - 20.05.2006, Síða 36
20. maí 2006 LAUGARDAGUR4
Sérstæð bílaleiga í Bretlandi
býður viðskiptavinum sínum
bíla sem flesta fornbílaáhuga-
menn hefur dreymt um að
keyra.
Í gegnum tíðina hafa Bretar verið
iðnir við að framleiða sportbíla.
Litla bíla með röskum vélum sem
gaman hefur verið að keyra. Ef þú
ert á leið til Bretlands er gráupp-
lagt að leigja sportbíl úr fornbíla-
safni þeirra Elaine og Tony
Merrygold og þeysa á honum um
enskar sveitir og strandbæi. Helst
með James Bond-þemað í bak-
grunni.
Elaine og Tony reka bílaleig-
una The Open Road og hafa til
leigu átta klassíska breska sport-
bíla, árgerðir 1961 til 1974, og nú
síðast bættist einn amerískur
Ford Mustand í safnið, árgerð
1966. Þau hjónin eru bæði miklir
áhugamenn um fornbíla og leggja
mikið á sig til að þóknast við-
skiptavinum sínum. Á hverju ári
eru minnst eftirsóttu bílarnir
seldir og skoðanakönnun meðal
viðskiptavina ræður því hvaða
bílar eru keyptir í staðinn. Þannig
að ef draumabíllinn er ekki á skrá
núna geturðu bara lagt inn pöntun
og vonandi verður hann keyptur á
næstu árum.
Miðað við venjulega bílaleigu-
bíla eru Open Road bílarnir frek-
ar dýrir, eða frá 17.000 krónum á
dag, en hversu oft fær maður
tækifæri til að keyra 1963 árgerð-
ina af Austin Healy 3000 án þess
að borga offjár fyrir bílinn sjálf-
an og eyða svo hálfri ævinni í bíl-
skúrnum með honum?
Heimasíða bílaleigunnar er
www.theopenroad.co.uk.
Fornbílar til leigu í Bretlandi
Triumph TR6, árgerð 1974. Ekki amalegur
kostur fyrir sunnudagsbíltúrinn.
MG MGB Roadster, árgerð 1969. Þessir bílar eru mjög vinsælir meðal áhugamanna í
Bretlandi.
Meðal bíla á Open Road bílaleigunni er þessi Austin Healey 3000, árgerð 1963.
Ingvar Helgason, umboðsaðili
Subaru á Íslandi, og Kvartmíluklúbb-
urinn hafa ákveðið að sameinast
um að leggja sitt af mörkum til að
stuðla að auknu umferðaröryggi á
vegum landsins. Í gegnum tíðina
hefur Subaru boðið upp á kraftmikla
útfærslu af Impreza, svokallaða
„Turbo“ bíla, en þeir skila vel yfir 200
hestöflum og má finna í rallíkeppn-
um víða um heim.
„Í stað þess að ökumenn freistist
til að aka um götur borgarinnar á
ólöglegum hraða ákváðum við í
samráði við Kvartmíluklúbbinn að
gefa eigendum þessara bíla ársað-
ild í Kvartmíluklúbbinn, en alls eru
þetta um 200 bílar. Ég er sannfærður
um að þetta eigi eftir að reynast vel
og einnig erum við að skipuleggja
ákveðinn viðburð með þessum hóp
sem kynntur verður síðar,“ segir
Rúnar H. Bridde, markaðs- og sölu-
stjóri Subaru.
umferðaröryggi }
Stuðla að öryggi
INGVAR HELGASON OG KVARTMÍLU-
KLÚBBURINN LEGGJA SITT AF MÖRK-
UM TIL UMFERÐARÖRYGGIS.
Rúmlega 200 hestafla Subaru. Eigendur
þeirra fá ársaðild að Kvartmíluklúbbnum
fyrir tilstuðlan Ingvars Helgasonar.
Sá fyrsti sem fluttur er til
landsins í 25 ár.
Nú um helgina frumsýnir B&L ekki
minni bíl en Rolls-Royce Phantom.
Þetta er í fyrsta sinn sem bifreið
frá Rolls-Royce er frumsýnd hér á
landi og í fyrsta sinn í 25 ár sem
úrvalsbifreið af þessari gerð kemur
til landsins.
Bifreiðin er af gerðinni Phant-
om EWB (extended wheelbase) og
er hún 250 mm lengri en upprun-
lega gerðin. Phantom er búinn
öllum hugsanlegum þægindum,
auk mikils rýmis og sérhannaðrar
aðstöðu fyrir farþega og bílstjóra.
Þá er bifreiðin með eina fullkomn-
ustu V12 vél sinnar tegundar, en í
fullum afköstum skilar þessi nýja
6,7 lítra vél 453 hestöflum.
Gríðarlegur kraftur hennar sést
ef til vill best á því að á 100 km
hraða er 75 prósent af vélaraflinu
enn til ráðstöfunar. Enn fremur
vekur athygli að af 720 Nm togi vél-
arinnar myndast 78 prósent þess,
eða 560 Nm, við einungis 1000 snún-
inga. Það gefur einstaklega þýða og
áreynslulausa hröðun.
Frumsýningin á Rolls-Royce
Phantom verður í Ásmundarsafni
við Sigtún í Reykjavík og verður
opið frá klukkan 12 til 16 báða dag-
ana.
Rolls-Royce frumsýndur
Rolls-Royce hefur alla tíð verið á sérstalli og búið til sín eigin viðmið þegar kemur að
gæðum og þægindum.
Bíllinn sem frumsýndur er núna um helg-
ina er af lengri gerðinni, Phantom EWB.
Skeljungur hf. og Umferðarstofa hafa
undirritað samstarfssamning vegna
verkefnisins Vel á vegi stödd í vinn-
unni. Verkefnið miðar að bættum
akstursháttum bílstjóra hjá fyrirtækj-
um sem eru með marga bíla í rekstri
og í daglegri umferð. Markmiðið
er sparnaður í rekstri og jafnframt
fækkun óhappa og slysa.
Umferðarstofa fær reglulega sendar
lykiltölur í rekstri þeirra fyrirtækja
sem þátt taka þannig að hægt sé
að fylgjast með árangri verkefnisins.
Það voru Már Sigurðsson, yfirmaður
rekstrarsviðs Skeljungs, og Birgir
Hákonarson, framkvæmdastjóri
umferðaröryggissviðs Umferðarstofu,
sem undirrituðu samninginn.
Vel á vegi stödd
SKELJUNGUR OG UMFERÐARSTOFA
BEITA SÉR FYRIR SPARNAÐI OG
FÆKKUN SLYSA.
Frá undirritun samningsins.
Jeppadekk
Vagnhöfða 6 • 110 Reykjavík • Sími 577 3080
Vortilboð!
31" heilsársdekk
kr. 11.900
(31x10.50R15)
Aðrar stærðir:
27" 215/75R15, kr. 7.900
28" 235/75R15, kr. 8.900
30" 245/75R16, kr. 10.900
32" 265/75R16, kr. 12.900
Sendum frítt um allt land!
��������������������������������
����������������������������������
������������������
�
�������������
����������������������
���������������������������
Toyota Landcruiser 90VX.
Skr. 12/1999. Ek 150.000 km.
Verð: 2.300.000 kr. ENGIN SKIPTI
Toyota landcruiser 120GX.
Skr. 10/2003. Ek. 51.000 km.
Verð: 4.200.000 kr. ENGIN SKIPTI
Toyota Landcruiser 90VX.
Skr. 01/1999. Ek. 213.000 km.
Verð: 1.950.000 kr. ENGIN SKIPTI
Toyota Yaris 1,3 SOL.
Skr. 07/2003. Ek. 68.000 km.
Verð 1.120.000 - ENGIN SKIPTI
Toyota Corolla, 1,4 Sedan.
skr. 06/2004. Ek. 42.000 km.
Verð: 1.340.000 - ENGIN SKIPTI
TOYOTA
EGILSTAÐIR
471-2660 471-2660
Toyota Egilstaðir
Miðás 2- 700 Egilstaðir
Opið virka daga 9-18,
laugardaga 12-16
ÞYTUR MEÐ BYRJENDAKYNNINGU VIÐ
HVALEYRARVATN Í DAG.
Flugmódelklúbburinn Þytur stendur
fyrir byrjendakynningu fyrir áhugasama
í dag. Kynningin fer fram við flugvöll og
félagsaðstöðu klúbbsins á Hamranesi
við Hvaleyrarvatn.
Tilgangur kynningarinnar er að veita
byrjendum í módelflugi, sem og öðrum
áhugasömum, tækifæri til að kynnast
starfsemi klúbbsins og fræðast um
módelflug. Óráðlegt og erfitt er að
byrja að fljúga módelum án aðstoðar
eða tilsagnar og því er kynningin upp-
lagt tækifæri til að taka fyrstu skrefin.
Kynningin hefst klukkan níu og stendur
til hádegis, eða lengur ef vel viðrar.
Flugmódelkynning í dag
Flugmódel eru vinsæl hérlendis og
hafa verið í yfir hálfa öld.
www.kliptrom.is
KT jeppa & útivistarverslun
S:466-2111
Gæða pallhús
Hilux 2006
Isuzu D-Max
Mitsubishi L200
Nissan Navara
Mazda / Ford
SMM pallhúsin eruviðurkennd af fram-leiðendum Toyota,Isuzu og GM