Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.05.2006, Qupperneq 50

Fréttablaðið - 20.05.2006, Qupperneq 50
8 SVISS Svisslendingar ákváðu fyrirfram að hafa blandað band og var leitað að sex einstaklingum frá sex löndum. Liel er sextán ára og frá Ísrael. Hún hefur stigið á svið með Elton John, Bono og hljómsveitinni Scorpions. Á síðustu tveimur árum hefur hún haldið 100 tónleika um heiminn. Andreas Lundstedt er sænskur og meðlimur í þekktri sveit sem kall- ast Alcazar. Það er hljómsveitin sem fyrir fjórum árum gerði lagið Crying at the Discotheque frægt um alla Evrópu, og örugglega víðar. Tinka er frá Bosníu og Hersegóvínu. Hún fluttist sautján ára til Banda- ríkjanna. þar sem hún lærði söng. Síðustu tvö árin hefur hún stjórn- að útvarpsþætti í Bosníu og síðustu fjögur einum vinsælasta sjónvarps- þætti landsins, sem er bingóþátt- ur. Þá er það hinn maltneski Keith Camilleri. Hann sést reglulega í maltneska sjónvarpinu og er þekkt- ur fyrir sterka rödd sína. Sá fimmti er Marco Matia. Rætur hans liggja í Portúgal en hann er alinn upp í Þýskalandi. Marco lenti í öðru sæti í söngvakeppni þýsku sjónvarps- stöðvarinnar ZDF árið 2003. 15.000 skráðu sig til leiks og keppnin var ekki ósvipuð Idol stjörnuleitinni. Síðust en ekki síst er það hin sviss- neska Claudia D‘Addio. Claudia hefur verið þekkt í heimalandinu sem „röddin“ síðan hún tók þátt í MusicStars. MOLDAVÍA Aðalsöngvarar Moldavíu eru tveir. Arsenium er 23 ára og Natali Gor- dienko nítján. Lagið sem þau flytja heitir Loca og hefði örugglega ekki komist upp úr undankeppninni hefði þjóðin lent þar. Moldóvar kepptu í fyrsta sinn í Eurovision í fyrra og náðu frábærum árangri. Hljómsveitin Zdob Shi Zdub flutti þá lagið Boonika bate doba, með ömmuna á sviði sem barði trommur. Þeir lentu í sjötta sæti. ÍSRAEL Eddie Butler keppir fyrir Ísrael í annað sinn. Hann stóð einnig á sviði í heimalandinu árið 1999 eftir frækinn sigur Dönu International. Þá söng hann í strákabandi, Happy birthday to you. Eddie varð þekkt- ur í Ísrael fyrir söng í brúðkaupum. Hann flutti sem barn frá Bandaríkj- unum og hefur búið í Ísrael síðan, en hann er 34 ára gamall. Eddie syngur lagið Together we are one. LETTLAND Í fyrsta sinn í sögu Eurovision- keppninnar verður lag án undirleiks. Strákabandið Cosmos hefur gefið út fjórar plötur án undirleiks. Þeir eru vel þekktir í löndunum kring- um Lettland og fylla tónleikahúsin í Úkraínu. Einn af hápunktunum hjá þeim var væntanlega þegar þeir fengu að syngja lagið Don‘t Worry, Be Happy með Bobby McFerrin í Óperuhúsinu í Lettlandi. NOREGUR Christine Guldbrandsen er norski keppandinn í ár. Hún fékk öruggt sæti í undanúrslitunum með aðstoð hljómsveitarinnar Wig Wam. Christ- ine er aðeins tvítug en hefur þegar getið sér gott orð í Noregi fyrir frá- bæran söng. Átján ára gaf hún út disk sem varð gullplata á þremur vikum. Hún fylgdi honum eftir með disknum Moment. Báðir hafa verið gefnir út af SonyBMG. Lagið sem Christine flytur heitir Alvedansen og er í takt við nafnið. SPÁNN Dætur flamingo-gítarleikarans El Tomate keppa fyrir Spán með lag- inu Bloody Mary. Þær kalla sig Las Ketchup og lögðu Evrópu nánast í rúst með svaka sumarsmelli hér fyrir nokkrum árum. Allar ungar, fallegar og vinalegar. Þær eru mjög músíkalskar og sagt er í kynningu að tónlistin flæði um æðar þeirra. Þær þurfa ekki að hafa áhyggjur af genginu í keppninni. Spánn á fast sæti. MALTA Fabrizio Faniello keppir fyrir Möltu- búa. Hann tók einnig þátt í keppn- inni 2001. Þá var keppnin haldin í Danmörku, eftir frækinn sigur Olsen bræðra árinu áður. Fabrizio söng þá danslagið Another summer night. Hann er aftur mættur með danslag sem kallast I Do. ÞÝSKALAND Hljómsveitin Texas Lightning var valið úr hópi þriggja þekktra tón- listarmanna í Þýskalandi. Þetta er kántrí-lag sem Jane Comerford syngur. Lagið vermir toppsætið á þýskum vinsældalistum og einnig í Litháen, samkvæmt oikotimes.com. Sjálf hefur hljómsveitin aðeins sagt að hún vilji gera betur en í fyrra. Þá vermdu Þjóðverjar neðsta sætið með fjögur stig. Stærðin skiptir hins vegar máli og tryggir þjóðinni fast sæti í aðalkeppninni. DANMÖRK Sidsel Ben Semmane er yngst flytj- enda sem danska ríkisútvarpið hefur sent til keppninnar, aðeins sautján ára gömul. Þrátt fyrir ungan aldur vann hún með yfirburðum í keppninni heima fyrir. Fékk fullt hús stiga frá öllum svæðum landsins. Það er mikið að gera hjá Sidsel. Hún gengur í skóla í Árósum og kemur fram með fjölda banda. Einmitt þannig rakst lagahöf- undurinn Niels Drevsholt á hana og varð bergnuminn af rödd hennar. Niels Drevsholt hefur næmt auga fyrir hæfileikaríku fólki. Sjálfur hefur hann átt fimm lög í undankeppninni heima fyrir en lagið hans Twist of love er það fyrsta til að sigra. Hann segir frábært að geta samið lög fyrir keppni sem hann haldi mikið upp á. RÚMENÍA Rúmenski keppandinn Mihai Tra- istariu er fæddur 16. desember 1979. Hann lærði á píanó í tíu ár og útskrifaðist úr menntaskóla af eðlisfræðibraut. Hann er þó ekki alveg rúðustrikaður, heldur tók hann nokkra leiklistaráfanga líka og lærði söng. Hann hefur tekið þátt í fjölda söngvakeppna og átján sinnum unnið til verðlauna. Hefur meðal annars keppt í öllum löndum fyrrum Júgóslavíu, þannig að hann ætti að hafa góðan bakgrunn fyrir keppnina. Hann hefur sex sinn- um reynt að komast í Eurovision í Rúmeníu en aldrei tekist fyrr. Hann kennir í Rúmeníu í skóla sem nefn- ist STARSCOOL. Hann hefur gefið út sex plötur með og án hljómsveit- ar sinni Valahia. BRETLAND Daz er höfundur lagsins Kung Fu Fighting sem Bus Stop flutti, þannig að Bretar senda engan aukvisa í keppnina í þetta sinn. Lagið seldist í 250 þúsund eintökum í Bretlandi. Lög Breta síðustu ár hafa alls ekki náð að heilla íbúa Evrópu. Náðu 22. sæti í fyrra og 16. sæti árið 2004. Það kemur ekki að sök, þeir eiga sitt fasta sæti í aðalkeppninni og verða þeir fimmtándu á svið í kvöld. Daz státar af því að annað lag hans náði 12. sæti á breskum vin- sældalistum. Það var endurgerð af laginu Rhinestone Cowboy í flutn- ingi Glen Campbell. Danstónlist er hans aðal um þessar mundir og er hann sáttur við árangurinn. Hann hefur náð að selja plötur í Írlandi, Noregi, Hollandi, Þýskalandi, Austurríki, Sviss, Pól- landi, Úkraínu, Rússlandi, Rúmeníu, Búlgaríu, og svo mætti lengi telja. Spurning hvort það hjálpi honum í keppninni. En allar vinsældinar hafa verið á bak við tjöldin. GRIKKLAND Anna Vissi keppir í þriðja sinn í keppninni, síðast 1982 fyrir Kýpur og einnig tveimur árum áður fyrir Grikki. Henni hefur verið spáð virkilega góðum árangri í kvöld með laginu Everything. FRAKKLAND Frakkar senda hina 26 ára Virginie Pouchain, til leiks í Frakklandi. Virginie hefur þegar unnið fjölda söngkeppna í hemalandi sínu. Hún er hluti hóps sem kallar sig Montelochante og leitar að ungu hæfileikaríkum listamönnum og gefur þeim tækifæri á að koma fram á landsvísu. Hún er hárgreiðslukona og söng- kona og var kosin þann 14. mars af sjónvarpsáhorfendum stöðvarinnar France 3 og dómnefnd undir stjórn Charles Aznavour auk Natöshu Saint-Pier sem tók þátt í keppn- inni í Kaupmannahöfn árið 2001 og hafnaði í fjórða sæti sem og kona að nafni Lara Fabian. Lagið er samið af hinni Rúanda-ættuðu Corneille, sem segist stolt af því að senda lag í keppni sem gefur listamönnum sem hafa ekki beinan aðgang að fjölmiðlum, útvarps- eða sjónvarpsþáttum. KRÓATÍA Severina Vukovi� fæddist í borginni Split þann 21. apríl 1972. Strax í barnæsku komu tónlistarhæfileikar hennar í ljós og hún var send í tón- listarskóla. Hún lærði á píanó, var í kór og annað sem fylgir slíku. Leik- list heillaði hana og tók hún þátt í uppfærslum í borgarleikhúsinu í Split. Hún snéri aftur fyrir þremur árum í borgarleikhúsið eftir fimmt- án ára hlé, en er samt sem áður ekki hætt í tónlistinni. Þessi hafa tryggt sér sæti ■■■■ { evrovision } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.