Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.05.2006, Qupperneq 66

Fréttablaðið - 20.05.2006, Qupperneq 66
 20. maí 2006 LAUGARDAGUR34 Kvikmyndaframleiðendurnir og félagarnir Ingvar Þórð-arson og Júlíus Kemp hjá Kisi Production eru vel heima í Cannes en hafa óvenju mörg járn í eldinum í ár. Ingvar tekur þátt í Producers on the Move kynningar- verkefninu og mun sitja fjölda funda tengdum því. Það það ekki að hafa mörg orð um það hversu áhugavert og spennandi það er fyrir íslenskan kvikmyndafram- leiðanda að fá að taka þátt í verk- efninu sem European Film Promot- ions stendur fyrir. Ingvar var valinn í Producers on the Move ásamt tuttugu og tveimur öðrum evrópskum kvikmyndafranleið- endum, sem þykja sérstaklega efni- legir en þetta fólk fær sérstakt tækifæri til þess að kynna sig fyrir fjölmiðlum og fólki úr kvikmynda- bransanum meðan á hátíðinni stendur. Ingvar var þrátt fyrir þetta pollrólegur þegar Fréttablaðið hitti hann að máli á veitingastað í Cannes. „Við höfum verið hérna meira og minna síðustu tíu árin,“ segir Ingvar en viðurkennir um leið að það sé óvenjumikið að ger- ast hjá þeim félögum þetta árið. Þeir félagar eru meðal annars komnir til Cannes til þess að selja norsku myndina The Bothersome Man sem þeir tóku þátt í að fram- leiða. Það ætti ekki að spilla fyrir þeirri vinnu að myndin hefur verið valin til sýninga á Critics Week hér í Cannes. „Myndin er ekki í sjálfri keppninni þannig að við erum ekki komnir hingað til þess að sækja Gullpálmann,“ segir Ingvar sem mun þó engu að síður njóta þess að myndin fái ákveðna athygli út á þetta. Þátttakan í Producers on the Move hefur óhjákvæmilega í för með sér að Ingvar mun hafa meira en nóg að gera á fundum og kynn- ingum. „Ég stend vaktina á meðan,“ segir Júlíus og bætir því við að hann muni þó stundum fá að koma með félaga sínum á samkomur vegna kynningarverkefnisins. Þar fyrir utan eru Ingvar og Júlíus að selja Strákana okkar í Cannes og ætla að reyna að finna fjárfesta til þess að taka þátt í fjármögnun hryllingsmyndarinnar Reykjavik Whale Watching Massacre sem áætlað er að kvikmynda á næsta ári. „Við ætlum að reyna að klára fjármögnun myndarinnar hér og svo erum við að kynna Astrópíu,“ segir Ingvar en tökur á þeirri mynd hefjast heima á Íslandi í júlí. Kisarnir tveir ætla að fljúga heim á þriðjudaginn og munu því hafa nóg fyrir stafni um helgina en þegar Ingvar er spurður að því hvort hann finni fyrir því að hátíð- in í Cannes sé rólegri í ár en oft áður glottir hann við tönn og blæs á slíkan barlóm. „Þetta er bara rétt að byrja.“ Bjargvætturin í Cannes Kvikmyndagerðarkonan Erla Skúladóttir er komin til Cannes í fyrsta skipti en stuttmynd hennar, Bjargvættur, var sýnd á fimmtu- daginn. „Myndin var lokaverkefni mitt í mastersnámi mínu í kvik- myndagerð í Bandaríkjunum og hefur farið vítt og breitt um heim- inn og hefur unnið til 24 verðlauna á hátíðum,“ segir Erla sem hefur fulla ástæðu til þess að bera höfuð- ið hátt þar sem sýning myndarinn- ar í Cannes er enn ein rósin í hnappagat hennar. „Kodak valdi myndina úr hundruðum annarra stuttmynda til þess að vera ein af sex stuttmyndum sem fyrirtækið sýnir hérna í ár en Kodak heldur þessar stuttmyndasýningar í Cann- es á hverju ári.“ Yfirskrift Kodak- sýninganna er „Emerging Film- makers“ og eins og nafnið bendir til þá eru komast einungis að mynd- ir leikstjóra sem þykja líklegir til þess að ná langt. „Það er algert skilyrði að myndirnar hafi unnið til verðlauna annars staðar og þeir sem hafa ekki náð þeim árangri þurfa ekki að reyna að sækja um að komast að.“ Erla tók Bjargvættina upp á Íslandi með íslenskum leikurum árið 2002 og frumsýndi hana á Íslandi árið 2003. „Ég sýndi hana vinum og vandamönnum í Háskóla- bíói en fór svo með hana á kvik- myndahátíð í Boston og hún var svo tilnefnd til Edduverðlaunanna í fyrra bæði sem besta stuttmyndin og fyrir bestu leikstjórn.“ Erla segist kunna ákaflega vel við sig i Cannes enda varla annað hægt en að heillast af stærð og umfangi hátíðarinnar. „Mér líst mjög vel á þetta allt saman. Þetta er stærsta hátíðin sem ég hef komið á hingað til og það er margt að sjá. Maður þarf eiginlega að læra á þessa hátíð enda ekki hægt að kom- ast yfir allt. Þetta er hörkuvinna en það spillir ekki fyrir að vera innan um pálmatré í sólskini. Andrúms- loftið er þrúgað af spennu en það sem gerir þetta svo skemmtilegt er að hér eru allir í sama tilgangi. Við- mótið hérna er líka miklu opnara en á mörgum öðrum hátíðum og þrátt fyrir stærðina og fólksfjöld- ann þá taka manni allir vel og eru fullir af áhuga.“ Erla er byrjuð að leggja drög að næstu mynd sem verður í fullri lengd og vonast til þess að hér í Cannes muni hún finna fjármagn til þess að framleiða hana. Myndin fjallar um „yndislega trú okkar á álfa og tröll,“ eins og hún kýs að orða það. „Árekstur vísindahyggju og álfatrúar og það sem getur komið upp þegar þessi andstæðu sjónarmið mætast,“ segir Erla sem er komin til Cannes með góðar vættir með sér í för og ætlar sér stóra hluti í framtíðinni. Eins og á þjóðhátíð í Eyjum Strákarnir Auðunn Blöndal og Ofur-Hugi eru komnir til Cannes í fyrsta sinn og eru í óða önn að framleiða efni sem þeir munu sýna í Strákunum á Stöð 2 þegar heim er komið. „Við erum komnir hingað til að hitta fræga fólkið,“ segir Hugi. „Við reynum að hrista aðeins upp í alvörunni sem er oft á þessum blaðamannafundum og í viðtölum. Það má segja að við séum komnir til þess að hressa stjörnurnar við.“ Strákarnir hafa þegar rætt við Ron Howard, leikstjóra The Da Vinci Code, og leikarann Elijah Wood og eru með allar klær úti í von um að landa fleiri stórfiskum. „Elijah hvíslaði það að kærustunni sinni þegar Auddi heyrði ekki til að honum hefði fundist viðtalið skrítið.“ Strákarnir fara í MTV partí í kvöld og búast við að komast þar í stjörnufans. „Okkur skilst að það sé allt morandi í stjörnum þar en vitum samt ekkert hvað við erum að fara út í,“ segir Hugi. „En þetta hljómar að minnsta kosti vel þó að við vitum ekkert hvernig þetta lið djammar.“ Strákarnir kunna að vonum vel við sig í Cannes og gætu vel hugsað sér að koma hingað aftur og aftur. „Þetta er geggjað,“ segir Auðunn. „Það er samt svolítið mikil drykkja á fólkinu en ef maður lítur fram hjá henni þá er ógeðs- lega gaman hérna.“ Hugi segist vera til í að gera Cannes-ferð að árlegum viðburði og Auðunn tekur undir það. „Þetta er pínu eins og á þjóðhátíð í Eyjum. Mann langaði alltaf að fara þangað aftur en fór svo að fá leið á endalausri rigning- unni. Hér er maður nokkuð örugg- ur um að vera alltaf í 20 stiga hita og sól.“ Endurgreiðslulögin eru gulrótin Íslenskt kvikmyndagerðarfólk í Cannes er fyrst og fremst þangað komið til þess að vekja athygli á sjálfu sér og verkum sínum og reyna að finna fjármagn til þess að geta framleitt fleiri myndir. Einar Tómasson frá Fjárfestingarstofu er hins vegar kominn til Cannes þriðja árið í röð í þeim tilgangi að koma Íslandi á kortið hjá kvik- myndagerðarfólki og framleiðslu- fyrirtækjum. „Ferðirnar hingað eru hluti af stærri heild,“ segir Einar og fer létt með að nefna dæmi sem sanna það að þessi vinna skilar árangri. „Þegar Clint East- wood kom til Íslands og tók upp hluta af Flags of Our Fathers í fyrra þá skilaði það þjóðarbúinu eitthvað í kringum einum milljarði, meðal annars í fjölda gistinótta og störfum sem sköpuðust fyrir Íslendinga.“ Endurgreiðslulögin svokölluðu eru helsta gulrótin sem Einar hefur fyrir stórlaxana í bíóbransanum en samkvæmt þeim fá kvikmynda- framleiðendur endurgreidd 12 prósent af sköttum sem þeir greiða af starfsemi sinni á Íslandi. „Við erum vissulega að greiða ákveðnar upphæðir til baka en þeir peningar skila sér aftur margfalt,“ segir Einar og bendir á að frá því að lögin voru sett hafi áhugi kvikmynda- gerðarfólks á Íslandi aukist jafnt og þétt. Ísland er þó síður en svo eina landið sem notar skattaafslátt til þess að laða kvikmyndagerðar- menn til sín og Einar nefnir Nýja- Sjáland sem dæmi um land sem er hliðstætt Íslandi. Einar er því fyrst og fremst að kynna endurgreiðslulögin en er um leið að kynna íslenska tökustaði og segir að það sé því ekki síður mikil- vægt að þekkja til staðhátta á Íslandi og búa yfir þekkingu á því umhverfi sem landið hefur upp á að bjóða. „Við vorum með bás í Los Angeles á sínum tíma og hittum þar þá sem voru að leita að heppi- legum stöðum fyrir Eastwood- myndina og þau áttuðu sig fljótt á því að Ísland væri góður kostur.“ En eru menn sem framleiða stór- myndir á borð við Flags of Our Fathers virkilega að horfa svo mikið í aurinn að þeir láti hluti eins og 12 prósenta skattaafslátt ráða úrslitum? „Það snýst allt um pen- inga í Hollywood og ef staðsetning- in sem við höfum upp á að bjóða er góð þá meta þeir kostnaðinn og velja þann kost sem er hagkvæm- astur. Þannig var þetta með Flags of Our Fathers. Það voru önnur lönd inni í myndinni en Ísland þótti hagkvæmast.“ Þegar maður kemur til Cannes freistast maður til þess að álykta að hátíðin sé fyrst og fremst eitt stórt partí og fólk sé fyrst og fremst að skemmta sér en raunin er önnur. Cannes er fyrst og fremst vinna og þeir sem koma hingað hvort sem þeir eru kvik- myndagerðarmenn, fjölmiðlafólk, kaupendur, seljendur eða hvað annað sem nöfnum tjáir að nefna, þá eru allir að vinna. Einar tekur undir þetta enda blasa stíf funda- höld við honum í Cannes. „Ég fer til dæmis ekkert í bíó og er ekkert að hugsa um það en það breytir því ekki að það er gott að vera í Cannes.“ ■ Kvikmyndahátíðin í Cannes er sú stærsta sinnar tegundar og vekur ætíð heimsathygli. Íslendingum fer að sjálfsögðu fjölgandi á staðnum með hverju árinu enda margt spennandi í gangi í íslenska bíóbransanum. Þórarinn Þór- arinsson hitti nokkra landa sína í Cannes sem koma úr ýmsum áttum. Álfar, gulrætur og Kisi Cannes EINAR TÓMASSON Finnst frábært í Cannes þótt hann fari ekkert í bíó. AUÐUNN OG HUGI Eru búnir að spóka sig á ströndinni með tökuvélina og eru komnir með í hálsinn af því að vera stöðugt að snúa sér við og horfa á eftir frægu fólki. ERLA SKÚLADÓTTIR Ætlar að nota ferðina til þess að leita að fjármagni til þess að gera mynd í fullri lengd um trú á álfa og tröll. JÚLÍUS OG INGVAR Hafa í nógu að snúast í Cannes þetta árið enda gefst þeim gott tækifæri til þess að kynna sig og fyrirtæki sitt auk þess sem þeir ætla sér að reyna að fá erlenda kvikmyndaframleiðendur til þess að taka þátt í næstu verkefnum sínum. MYNDIR/ÞÞ „Elijah hvíslaði það að kærustunni sinni þegar Auddi heyrði ekki til að honum hefði fundist við- talið skrítið.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.