Fréttablaðið - 20.05.2006, Qupperneq 82
20. maí 2006 LAUGARDAGUR50
menning@frettabladid.is
!
Kl. 21.00
Miriam Makeba heldur stórtón-
leika í Laugardalshöll. Makeba
er einn af mestu listamönnum
síðustu aldar og líklega sá sem
mesta þýðingu hefur haft fyrir
afríska tónlist. Tónleikarnir eru
liður í Listahátíð í Reykjavík.
> Ekki missa af...
Ljóðasmiðju með meiru á
vegum Kabarettsins Músífölsk
kl. 14 í Hafnarhúsinu. Gestir
geta litið við og samið og
flutt sitt eigið ljóð með hjálp
haglegrar tölvu. Dagskráin
er hluti af fjölljóðahátíðinni
Orðið - tónlist.
Hljómsveitunum I Adapt,
Innvortis og Hostile sem
keyra allt í botn á Grand Rokk
í kvöld.
Opnun á málverkasýningu
Söndru Maríu Sigurðardóttur
í Energiu í Smáralind. Sýning-
in „Moments“ stendur yfir til
30. júní.
Á morgun sunnudag mun myndlistarmaðurinn
Steingrímur Eyfjörð fjalla um verk sín sem nú eru
til sýnis í Listasafni Íslands. Gunnar J. Árnason
listheimspekingur leiðir samtalið og hefst dagskráin
kl. 14.
Ókeypis er í safnið en þar standa nú yfir yfirlits-
sýningar á verkum Steingríms og Birgis Andréssonar
og eru sýningarnar framlag safnsins til Listahátíðar í
Reykjavík. Steingrímur Eyfjörð hefur í verkum sínum
farið inn á merkingarsvið heimspeki, vísinda, félags-
og mannfræði þar sem viðfangsefni verkanna geta
verið um jafn ólíka hluti og trúmál, pólitík, íslenska
þjóðmenningu og sögu og dægurmenningu.
Teikningin er fyrirferðarmikill tjáningarmáti í verkum
Steingríms og í þeim sést náinn sjónrænn skyldleiki
teikningarinnar við ritlistina. Verkin á sýningunni
spanna allan feril listamannsins.
Almenn leiðsögn er um sýningar safnsins í
hádeginu á þriðjudögum og föstudögum milli kl.
12.10 og 12.40. STEINGRÍMUR EYFJÖRÐ Yfirlitssýning í Listasafni Íslands
og listamannaspjall á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Listamannaspjall um helgina
Kammersveit Reykjavíkur
leikur þrjá Mozart-konserta
á einstökum tónleikum
í Langholtskirkju annað
kvöld. Nýbreytnin er sú að
enginn stjórnandi verður
á tónleikunum heldur mun
hljómsveitin leika milliliða-
laust með einleikurunum
þremur.
„Þetta er mikið mál og mun meiri
áreynsla fyrir alla, ekki bara ein-
leikarana heldur hvern einstakan
hljóðfæraleikara. Þetta er búið að
vera ótrúlega skemmtilegt, það er
allt öðruvísi tilfinning að spila án
stjórnanda, til dæmis er fólk
frjálsara með að koma með ábend-
ingar á æfingum,“ útskýrir Rut
Ingólfsdóttir fiðluleikari og stað-
festir að þetta framtak efli líka
traustið og samheldnina í sveit-
inni.
Hún rekur hugmyndina að tón-
leikunum til hljómleikaferðalags
sem sveitin fór í fyrir þremur
árum en þá þáði hún boð Vladi-
mirs Ashkenazy og ferðaðist til
Rússlands og Belgíu og kom fram
án stjórnanda. „Eftir ferðina fékk
ég beiðni frá Einari Jóhannessyni
klarinettuleikara um hvort við
gætum einhvern tíma gert þetta
og hann fengi að leika klarinettu-
konsert Mozarts. Og nú er þetta að
verða að veruleika. Einar hefur
spilað þann konsert mjög oft en nú
spilar hann verkið í fyrsta sinn á
hljóðfæri sem er mjög líkt því
klarinetti sem smíðað var fyrir
Mozart þegar hann var að semja
verkið á sínum tíma. Þetta er því
mikið metnaðarmál fyrir hann,
hann er til að mynda að tileinka
sér nýja fingrasetningu.“ Rut
útskýrir að hljómur klarinettsins
nái dýpra en áður og því séu hlust-
endur að heyra verkið á nýjan hátt
og ef til vill upprunalegri.
Hljómsveitin er stór að þessu
sinni, 36 hljóðfæraleikarar spila
með Kammersveitinni en auk Ein-
ars sem leika mun klarinettukons-
ertinn koma Una Sveinbjarnar-
dóttir fiðluleikari og Víkingur
Heiðar Ólafsson píanóleikari fram
með sveitinni.
Víkingur er nýkominn heim úr
námi í Juilliard-tónlistarskólanum
í New York og leikur píanókonsert
Mozarts nr. 25 í C-dúr á þessum
fyrstu tónleikum sínum eftir
prófatörnina í Bandaríkjunum.
„Stjórnlaus konsert hljómar
ekkert ofsalega vel en þetta er
samt rosalega skemmtilegt,“ segir
Víkingur. „Hljómsveitin og sóló-
istinn vinna svo náið saman og
þetta verður meiri kammermúsík
því nándin er mikil.“ Verkið sjálft
er líka í miklu uppáhaldi hjá píanó-
leikaranum. „Þetta er síðasti
grand konsertinn sem Mozart
samdi. Glæsileg tónsmíð, mjög
virtuósískt og afskaplega innblás-
ið. Þetta verk hefur eiginlega allt
sem konsert þarf að hafa, hann
sýnir bæði rosalega mikla tækni
og getu en svo þarf maður líka að
hafa mikla ljóðrænu og tilfinn-
inganæmni.“
Það er margt á döfunni hjá Vík-
ingi í sumar og haust, hann mun
frumflytja konsert sem tónskáldið
Snorri Sigfús Birgisson hefur til-
einkað honum með Caput-hópn-
um, leika Beethoven með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands, spila á
kammerhátíð á Kirkjubæjar-
klaustri og svo er einnig rætt um
hljóðritanir og plötuútgáfu. Hann
hefur samt ákveðið að halda áfram
náminu í Juilliard-tónlistarskólan-
um. „Þetta hefur gengið svo vel,
allt hefur verið eins og best er á
kosið. Ég verð áfram í meistara-
gráðunni í tvö ár en held áfram
hjá nýjum kennara,“ útskýrir Vík-
ingur.
Tónleikarnir fara fram í Lang-
holtskirkju annað kvöld og hefjast
kl. 20. kristrun@frettabladid.is
KREFJANDI TÓNLEIKAR MEÐ MEIRI NÁND EN ÁÐUR Einleikararnir Einar Jóhannesson, Una
Sveinbjarnardóttir og Víkingur Heiðar Ólafsson. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Stjórnlaus Mozart
ÓVENJULEGIR TÓNLEIKAR Á LISTAHÁTÍÐ Kammersveit Reykjavíkur flytur þrjá konserta eftir Mozart ásamt einleikurum en engum stjórn-
anda. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA