Fréttablaðið - 07.06.2006, Blaðsíða 87
MIÐVIKUDAGUR 7. júní 2006
������������
������������
������������
������������
������������
������������
������������
�������������
�������� �������������
�������������
�������������
�������������
������������
������������
��� �����������
������������
Tónleikarnir Zappa Plays Zappa
sem verða haldnir á föstudaginn
hafa verið fluttir úr Laugardals-
höll yfir í Listasafnið, Hafnarhús-
inu.
Húsið verður opnað kl. 20.00 og
tónleikarnir hefjast 20.30. Sæti og
stæði standa óbreytt.
Úrvalslið tónlistarmanna
kemur til landsins með sveitinni,
þar á meðal Steve Vai, Terry Bozz-
io, Napoleon Murphy Brock og
synir Zappa. Flutt verða öll vin-
sælustu lög hins látna tónlistar-
manns Frank Zappa.
Tónleikarnir standa yfir í tæpa
þrjá klukkutíma en tónleikaferðin
hefur fengið frábæra dóma í Evr-
ópu að undanförnu.
Miðasala á tónleikana í Hafn-
arhúsinu fer fram í Máli og menn-
ingu Laugavegi, Pennanum á
Akureyri, Hljóðhúsinu á Selfossi,
Hljómvali í Keflavík, Tónspili í
Neskaupstað og á citycentre.is.
Tónleikarnir
fluttir
ZAPPA PLAYS ZAPPA Fjölmörg þekkt nöfn
koma fram á tónleikunum, þar á meðal
Stevie Vai, sem er lengst til hægri.
Framleiðendur tölvuleikjarins
FIFA-World Cup 2006 hafa komist
að því að Tékkland verði næsti
heimsmeistari í fótbolta. Munu
Tékkarnir vinna Brasilíumenn í
úrslitaleiknum með tveimur mörk-
um gegn einu. Ekvador verður
aftur á móti fyrsta liðið sem verð-
ur slegið út.
Framleiðendurnir létu tölvuna
etja saman liðunum 32 sem keppa
í lokakeppni HM og fengu þessa
útkomu.
Markahæsti maður mótsins
verður Milan Baros en sá besti
verður samlandi hans frá Tékk-
landi, Pavel Nedved.
Tékkland
vinnur HM
FIFA 2006 Ronaldinho og félagar í Brasilíu
þurfa að sætta sig við tap gegn Tékklandi í
úrslitaleiknum ef spá tölvuleiksins reynist
rétt.