Fréttablaðið - 07.06.2006, Blaðsíða 46
MARKAÐURINN 7. JÚNÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR10
F R É T T A S K Ý R I N G
Hlutirnir hafa breyst hratt hjá knatt-
spyrnuliði FC Barcelona frá því að Joan
Laporta, félagsmaður númer 27.869,
felldi nafna sinn Joan Gaspert í kjöri til
forseta félagsins árið 2003. Núverandi
Spánarmeistarar hafa náð sér heldur
betur á strik eftir að hafa staðið í skugga
erkióvinanna í Real Madrid um nokkurra
ára skeið og er orðið besta félagslið heims
eftir sigur á Arsenal í meistaradeildinni
í vor.
Það er svo sem ekki nýlunda að Barca
eigi lið í fremstu röð; félagið er næstsig-
ursælasta félagslið Spánar og hefur lengi
vel verið meðal þeirra sterkustu á alþjóða-
vettvangi. Hins vegar telst það nýlunda
að glæstur árangur innan vallar tryggi
jafnframt mikinn vöxt í fjárhagslegum
efnum. Forsetanum eru þakkaðar þess-
ar breytingar, en hann einsetti sér að
breyta FC Barcelona úr knattspyrnufé-
lagi í afþreyingarfyrirtæki með því að
fjárfesta í nýjum tekjuþáttum og efla þá
þætti sem fyrir voru. Með því að fjárfesta
í leikmönnum á borð við Ronaldinho og
Samuel Eto´o var ljóst að innri þættir
myndu eflast verulega og auka tekjur í
formi aukinnar miða- og auglýsingasölu,
sjónvarpssamninga og alls kyns varnings
auk aukinnar athygli fjölmiðla á félaginu.
Tölurnar tala sínu máli. Velta félags-
ins hefur frá keppnistímabilinu 2002-2003
farið úr 11,5 milljörðum króna í 22 millj-
arða fyrir nýliðið leikár. Barca tapaði 6,8
milljörðum fyrir þremur árum og skuld-
aði 17,3 milljarða, nú heyrir taprekstur
sögunni til og skuldir fara minnkandi. FC
Barcelona er nú í níunda sæti Forbes yfir
verðmætustu félög heims en samkvæmt
listanum er liðið metið á 31 milljarð króna
og má ætla að verðmiðinn hækki jafnt og
þétt með sömu þróun.
ANDLIT KATALÓNÍU
Uppbygging FC Barcelona er allt önnur en
flestallra stærstu knattspyrnuliða heims
sem eru oftar en ekki í eigu fárra auð-
kýfinga eins og Chelsea, Manchester Utd.
og A.C. Milan. Barcelona er félagsskap-
ur meðlima (socios) sem telur 142 þús-
und manns og hefur fjölgað mjög frá því
Laporta tók við. Að einhverju leyti má líkja
Barca við almenningshlutafélag því með-
limirnir greiða fyrir aðild sína að félaginu
og kjósa svo forseta og aðra stjórnend-
ur. Aðrar íþróttir koma einnig við sögu
því keppt er undir merkjum Barcelona í
handbolta, körfubolta og hokkýi. Hvorki
handbolti né körfubolti standa undir sér
og kemur það því í hlut knattspyrnunnar
að leggja það fram sem á vantar.
En í herbúðum félagsins leynist einn-
ig merkileg saga sem sumpart er saga
Katalóníu. Félagið er andlit héraðsins út á
við og hefur verið sameiningartákn þess á
góðum sem erfiðum stundum. „Katalónía
er þjóð og FC Barcelona her þess,“ sagði
Bobby Robson, fyrrum knattspyrnu-
stjóri Barca. Simon Kuper segir svo frá
í „Football against enemy“ að á valdatíma
Francos hafi Nývangur (Nou Camp) verið
eini staðurinn sem klær einræðisherrans
náðu ekki til. Til að ögra Franco karlin-
um, sem gat þulið upp öll byrjunarlið
Real Madrid langt aftur í tímann, blakti
katalónski fáninn við hún á leikvanginum.
„Það er ekki rétt að ég hati Katalóníu. Ég
dái Katalóníu þrátt fyrir Katalóna,“ mælti
einræðisherrann eitt sinn.
Hersveitir Francos stormuðu niður
Avenida Diagonal í átt til miðborgar
Barcelona snemma árs 1939 og mörkuðu
þannig endalok spænsku borgarastyrjald-
arinnar og fullnaðarsigurs þjóðernissinna
yfir lýðveldissinnum.
„Þegar Barcelona vinnur deildina,
verðum við herlið gleðinnar, göngum upp
Diagonal og stöndum andspænis því áfalli
[þegar hersveitir Francos gengu niður],“
skrifar bakvörðurinn knái Oleguer, sósí-
alisti og andstæðingur alþjóðavæðingar
og Evrópusambands, í rit sitt „Leiðin til
Íþöku“.
Mörgum hefur þó fundist full ein-
falt að stilla hlutunum upp þannig að FC
Barcelona standi fyrir lýðræði gagnvart
einræðinu í Madrid. Í valdatíð Josep Lluis
Nuñez, á árunum 1978-2000, þóttu stjórn-
arhættir allt annað en lýðræðislegir en á
móti var Barca sigursælt á þessu tímabili;
varð sjö sinnum Spánarmeistari og fór
með sigur af hólmi í gömlu meistaradeild-
inni árið 1992. Gavin Hamilton, ritstjóri
World Soccer, er á því að þá umbylt-
ingu sem hefur orðið eftir að Laporta tók
við keflinu megi einmitt rekja til opnari
stjórnarhátta og nútímalegri vinnubragða,
til dæmis að líta á knattspyrnulið sem
hvern annan „bisness“.
MENGA EKKI TREYJUNA
Tækifæri til frekari tekjuaukningar og
aukins hagnaðar FC Barcelona blasa við:
Nægir þar að nefna að Barca hefur aldrei
borið nafn styrktaraðila á treyjunum og
hefur ástæðan verið sögð sú að ekki mætti
„menga“ hinn röndótta búning. Nú hafa
þó félagsmenn veitt stjórn heimild til
að fá styrktaraðila. Á næstu leiktíð má
reikna með að auglýsandi verði kominn
á treyjurnar en ekki er víst að stórfyr-
irtæki muni eiga þar hlut að máli heldur
mannúðarsamtök. Einnig hefur verið bent
á að miðaverð á hinn glæsilega Nývang er
mun lægra en gengur og gerist hjá öðrum
stórliðum, til að mynda í Englandi. Það er
sennilega gert af ráðnum hug, svona eins
konar verðlaun til dyggra félagsmanna.
Ódýrasti ársmiðinn á Nývangi kostar 69
pund en til samanburðar verður ódýrasti
ársmiðinn á Emirates Stadium, nýjum og
glæsilegum leikvangi Arsenal, 885 pund.
Dýrasti miðinn á leiki Barca kostar 579
pund.
Þá horfa forráðamenn Barcelona til
Austurlanda fjær, aðallega til Kína og
Japans, í von um að eignast þúsundir
stuðningsmanna sem myndu skapa félag-
inu miklar tekjur. Þetta hefur reynst
Manchester Utd. og Real Madrid fengsæl
tekjuleið. Esteve Calzada, markaðsstjóri
FC Barcelona, segir að þótt knattspyrna
sé vinsælasta íþróttagrein heims þá sé
hún enn framandi í mörgum Asíulöndum.
Hann tekur sérstaklega fram að þótt það
væri freistandi að hafa japanskan eða
kínverskan leikmann á mála hjá liðinu
álíti stjórnendur félagsins að undirstaðan
að velgengni félagsins sé hæfileikaríkir
leikmenn sem skili vinnunni sinni - nefni-
lega sigrum.
Byggt á: Football against enemy,
Guardian og World Soccer.
BESTA FÉLAGSLIÐ Í HEIMI Ronaldinho og fyrirliðinn
Puyol fagna sigri í meistaradeildinni á dögunum.
JUAN LAPORTA, FORSETI FC BARCE-
LONA, SIGRI HRÓSANDI Algjör stakka-
skipti hafa orðið á rekstri þessa besta
knattspyrnuliðs í heimi eftir að Laporta var
kjörinn forseti árið 2003. Velta félagsins
hefur tvöfaldast á þessum tíma og skríður
það hratt upp lista Forbes yfir verðmætustu
félög heims. AFP/IMAGE FORUM
Herlið gleðinnar og Katalóníu
Á sama tíma og snillingarnir Ronaldinho og Samuel Eto´o leika við hvurn sinn fingur hefur Juan
Laporta snúið rekstri FC Barcelona úr miklu tapi í hagnað. Allir vegir virðast vera þessu stolti
Katalóníu færir, sem er ekki einvörðungu lið ellefu fótboltamanna heldur heilt íþróttasamfélag þar
sem togast á saga, samkennd og útrás. Eggert Þór Aðalsteinsson fer yfir gang mála í Barcelona.
FRANCO HERSHÖFÐINGI „Það er ekki rétt að ég hati
Katalóníu. Ég dái Katalóníu þrátt fyrir Katalóna.“