Fréttablaðið - 07.06.2006, Blaðsíða 24
[ ]Ótryggt ástand í Íran getur hækkað bensínverð á Íslandi upp í 150 krónur á líterinn. Merkilegt hvernig tilraunir með kjarnorku í Mið-Austurlöndum geta haft áhrif á ökumenn hér.
Note er nýjasta viðbótin í Nissan
fjölskyldunni. Þetta er svokallað-
ur fjölnotabíll en er í minni kant-
inum miðað við slíka bíla. Nissan
Note er þó ekki bara fjölnotabíll
og afar nýtilegur sem slíkur held-
ur er hér á ferðinni bíll með afar
skemmtilega akstureiginleika.
Reynsluekið var sjálfskiptum
bíl með 1600 vél og reyndist hann
framúrkarandi lipur og skemmti-
legur. Hann var léttur og leikandi
í stýri en einnig rásfastur og stöð-
ugur. Þá var vélin snörp og
skemmtileg þannig að bíllinn var
snöggur að svara bensínfætinum.
Því má segja að hér sé á ferðinni
nokkuð fjörlegur bíll.
Nissan Note er laglegur útlits,
ekki síst sé miðað við fjölnotabíla
þar sem notagildið er oft sett útlit-
inu framar. „Boomerang“lagað aft-
urljósið setur sterkan svip á bílinn
og má segja að það sé útlitslegt ein-
kennismerki hans. Framsvipurinn
sver sig hins vegar í ætt við lúxu-
sjeppann Nissan Murano og nýju
Micruna með áberandi krómuðu
grilli. Að öðru leyti er útlitið í sam-
ræmi við aðra bíla þar sem áhersla
er lögð á góða nýtingu plássins,
með utarlega staðsett hjól.
Bíllinn er vel búinn margvís-
legum geymsluhólfum og öðrum
þægindum. Nefna má sérstaklega
borð aftan á framsætum fyrir aft-
ursætisfarþega og sniðugt lítið
lokað hólf ofan á mælaborðinu
miðju sem hentar til dæmis fyrir
sólgleraugu eða lykla. Þá er hans-
kahólfið tvískipt þannig að auk
hins venjulega lokaða hólfs er opið
hólf sem smellpassar fyrir kort
eða ferðahandbækur. Sömuleiðis
má nefna að skottið er með fölsk-
um botni þannig að hægt er að
dýpka það með því að losa um
botninn.
Nissan Note hlýtur að teljast
áhugaverður kostur fyrir fjöl-
skyldur ekki síst ef hinir fullorðnu
hafa smekk fyrir bíl með skemmti-
lega aksturseiginleika. Hann er
vissulega ekki stór en fyrir litla
fjölskyldu er plássið kappnóg.
steinunn@frettabladid.is
Fjörlegur fjölnotabíll
Nissan Note er snaggaralegur fjölnotabíll í minni kantinum. Í þessum bíl fer saman mikið notagildi
og afar skemmtilegir aksturseiginleikar.
Nissan Note ber dæmigerð útlitseinkenni fjölnotabíla eins og utarlega staðsett hjól en er um leið nokkuð sportlegur og snotur.
Framsvipurinn á Note er kunnuglegur
þeim sem þekkja Nissan Murano og nýju
Micruna.
Skottið býður upp á ýmsa notkunarmögu-
leika þótt ekki sé það stórt ef aftursæti eru
í notkun.Skottið er aðgengilegt með góðri opnun.
Aftursæti eru þægileg og borð aftan á framsætum bæta aðstöðu aftursætisfarþeganna.
Ef aðeins eru tveir afturí má fella niður
armpúða milli sæta.
Afturljósið með „boomerang“laginu setur
sterkan svip á Nissn Note.
Aðstaða bílstjóra er góð og mælaborðið
hefur nútímalegt útlit.
REYNSLUAKSTUR
NISSAN NOTE
Vélarstærð Hestöfl Beinskiptur Sjálfskiptur
Visia 1,4 88 1.740.000 kr.
Visia 1,6 110 1.950.000 kr.
Tekna 1,6 110 2.190.000 kr.
• SUMARDEKK • HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
• HEILSÁRSDEKK • RAFGEYMAÞJÓNUSTA
• OLÍS SMURSTÖÐ • BREMSUKLOSSAR
• BÓN OG ÞVOTTUR • PÚSTÞJÓNUSTA
ALLT Á EINUM STAÐ
SMUR- BÓN OG DEKKJAÞJÓNUSTAN
SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI