Fréttablaðið - 07.06.2006, Blaðsíða 66
?���������������
?���������������
7. júní 2006 MIÐVIKUDAGUR14
Jules Rimet bikarinnn var upp-
runalegi verðlaunagripurinn á
Heimsmeistaramótinu í knatt-
spyrnu. Úrugvæar unnu hann
fyrstir allra árið 1930 en þá kall-
aðist hann reyndar „Sigur“ eða
Victory. Nafni hans var breytt
formlega árið 1946 til heiðurs
Jules Rimet, forseta FIFA, sem
hafði árið 1929 átt upphafið að
HM í knattspyrnu. Bikarinn
hefur þó nánast ávallt verið
nefndur HM-bikarinn.
Abel Lafleur hannaði bikar-
inn en hann vóg 3,8 kíló og var
35 cm hár. Hönnun hans var
vísun í vængjótta fígúru sem
kallaðist kunnuglegu nafni,
Nike. Hún var grísk gyðja sem
var tákn sigurs. Í heimsstyrjöld-
inni síðari voru Ítalir handhafar
bikarsins. Ottorino Barassi,
þáverandi varaformaður FIFA,
faldi bikarinn frá Þjóðverjum í
skókassa undir rúminu sínu.
Rétt fyrir úrslitaleikinn í
Englandi árið 1966 var verð-
launagripnum stolið þar sem
hann var til sýnis í Westminster
Central Hall, en leitarhundur
fann hann viku síðar, umvafinn
dagblöðum í ruslagámi í hinum
enda Lundúna. Eftirgerð var
samstundis framleidd og var
hún notuð í fagnaðarlátunum
eftir úrslitaleikinn sem Eng-
lendingar unnu á heimavelli.
Eftirgerðin var einnig notuð við
einstaka tilefni þar til árið 1970
en hún var svo seld á uppboði
fyrir 254.000 pund árið 1997 og
er hún nú til sýnis á knattspyrnu-
minjasafni Englands í Preston.
Brasilíska liðið sem vann HM
árið 1970 fékk þann heiðurs
aðnjótandi að fá bikarinn til
eignar. Árið 1983 var bikarnum
svo stolið enn á ný, þá í Rio de
Janeiro, og hefur hann aldrei
fundist aftur. Brasilíska knatt-
spyrnusambandið lét búa til sína
eigin eftirlíkingu.
Bikarinn sem kom í staðinn
er núverandi bikar sem Brasilíu-
menn hafa í sinni vörslu. Það
var Silvio Gazzaniga sem hann-
aði þennan stórbrotna verð-
launagrip en hann er 36,5 cm hár
og er gerður úr 18 karata gulli
(75 prósent), sem vegur um 5
kíló. Botninn er svo 13 cm í þver-
mál og samtals vegur bikarinn
6.175 kíló, en hann sýnir tvær
mannlegar fígúrur halda á jörð-
inni.
FIFA World Cup er greftrað
neðst á bikarinn og undir honum
eru svo nöfn allra sigurvegara á
HM frá upphafi. Það sést því
ekki þegar hann stendur, en öll
nöfnin þar eru á ensku. Sjö þjóð-
ir hafa fengið nafnið sitt greftr-
að á bikarinn en ekki er vitað
hvað gerist þegar plássið fyrir
nöfnin verður uppurið. Það ger-
ist eftir HM 2038.
Reglur FIFA kveða á um að
verðlaunagripurinn megi ekki
vera til sýnis, ólíkt forvera hans.
Sigurvegararnir á HM fá hann
að láni í fjögur ár, og fá einnig
endurgerð til eignar.
Saga verðlaunagripsins
Saga verðlaunagripsins á Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu er ótrúleg í meira lagi. Allt frá því Jules Rimet
setti heimsmeistarakeppnina á fót og þar til verðlaunagripnum var stolið í tvígang hefur saga hans verið
merkileg en tveir verðlaunagripir hafa verið notaðir frá upphafi-
SÁ UPPRUNALEGI Jules Rimet bikarinn,
sem stolið var rétt fyrir HM 1966, og aftur
árið 1983. NORDICPHOTOS/AFP
BIKARINN GLÆSILEGI Verðlaunagripurinn eftirsótti er stórglæsilegur, en hann vegur yfir sex
kíló og er gerður úr átján karata gulli.
NORDICPHOTOS/AFP
VISSIR ÞÚ...
Gísli Marteinn
HJARTAÐ SEGIR
ENGLAND EN
HEILINN BRASILÍA
Bogi
Ágústsson
ENGLAND
Hilmar Björnsson
BRASILÍA
Freyr Bjarnason
BRASILÍA
Heiðar í
Botnleðju
BRASILÍA
Magnús Ver
Magnússon
BRASILÍA
Frosti í Mínus
BRASILÍA
Gísli
Einarsson
ENGLAND
Dagur B.
Eggertsson
BRASILÍA
Ívar
Guðmunds
BRASILÍA
Baldur Beck
TÓGÓ
Helgi Seljan
ÍRAN
Páll Rósinkranz
BRASILÍA
Óli Palli
ÞÝSKALAND EÐA
BRASILÍA
Einar
Þorvarðarson
BRASILÍA
Jón Kaldal
ARGENTÍNA
Atli Eðvaldsson
ÞÝSKALAND
Geir Sveinsson
BRASILÍA
Gaupi
ÍTALÍA
Patrekur
Jóhannesson
ÞÝSKALAND
Þorsteinn J.
FRAKKLAND, BRASILÍA
EÐA SPÁNN
Árni Johnsen
ENGLAND
Jón Arnar
Magnússon
ÞÝSKALAND
...að Hakan Sükur skoraði sneggsta mark allra tíma á HM árið 2002?
Það gerði hann gegn gestgjöfunum í Suður-Kóreu í leiknum um
þriðja sætið eftir aðeins ellefu sekúndur. Hann bætti þar með 40 ára
gamalt met Václav Masek frá Tékkóslóvakíu um fjórar sekúndur.
...að Ungverjar hafa skorað flest mörk í leik á HM? Það gerðu þeir
árið 1982 þegar þeir burstuðu El Salvador 10-1. Ungverjar eiga líka
næstflestu mörkin, níu talsins gegn Suður-Kóreru árið 1954.
...að Just Fontaine er sá sem hefur skorað flest mörk allra á HM.
Það gerði hann fyrir Frakkland árið 1958 þegar hann skoraði þrettán mörk í aðeins sex leikjum. Að meðaltali þurfti hann aðeins rúmar 40 mínútur til að skora.
...að Hollendingar hafa ekki tapað vináttuleik fyrir HM síðan árið
1990? Það var Austurríki sem vann Hollendinga 3-2 árið 1990 en
síðan þá hafa þeir ekki tapað leik.
...að Gerd Müller er markahæsti leikmaður HM frá upphafi? Þjóðverjinn skoraði fjórtán mörk í tveimur heimsmeistarakeppnum, árin 1970 og 1974. Brasilíumaðurinn Ronaldo er sá eini sem getur skákað honum á HM í Þýskalandi en hann hefur þegar skorað tólf mörk á tveimur mótum, 1998 og 2002.
...að Flest spjöld í einum leik á HM komu árið 2002? Í leik Þýskalands
og Kamerún, sem Þjóðverjar unnu 2-0, gaf Antonio Lopez Nieto
dómari hvoru liði átta gul spjöld og eitt rautt, og því samtals sextán
gul spjöld og tvö rauð.
...að Mohamed Al Deayyea, markmaður Sádi-Arabíu, er leikreyndasti
leikmaður sem spilar á HM í sumar? Hann hefur spilað 181 leik fyrir
þjóð sína en leikreyndasti útileikmaðurinn er Claudio Suárez frá
Mexíkó, sem leikið hefur 176 leiki.
...að markahæsti leikmaður HM fyrir sína þjóð er Íraninn Ali Daei?
Þessi magnaði markaskorari hefur skorað 109 mörk fyrir Íran en hann er markahæsti leikmaður allra tíma fyrir landslið.
...að flestir leikmenn sem spila á HM leika á Englandi? Alls 105
leikmenn spila þar í landi, 73 í Þýskaland og 61 á Ítalíu. Leikmennirnir
í liðunum 32 spila alls í 49 löndum en átta deildir hafa einn
leikmann á HM.
...að Arsenal á flesta leikmenn sem spila á HM? Alls koma
fimmtán leikmenn frá Skyttunum, en Chelsea skartar fjórtán
mönnum. AC Milan kemur næst með þrettán.
...að Brasilía hefur oftast tekið þátt í HM? Brasilía hefur tekið
þátt í öllum heimsmeistarakeppnum fram að þessu, alls átján
talsins. Þýskaland, að Vestur-Þýskalandi meðtöldu, hefur tekið
þátt sextán sinnum, líkt og Ítalía.
...að Marco van Basten, landsliðsþjálfari Hollendinga, er yngsti
þjálfarinn á HM? Hann er fæddur 31. október árið 1964 og verður því
41 árs og 221 ára gamall. Otto Pfister verður sá elsti, 68 ára og 197
daga gamall.
...að Ali Boumnijel er elsti leikmaðurinn á HM? Þessi markmaður
Túnis verður 40 ára og 57 daga gamall á opnunardegi HM.
Englendingurinn Theo Walcott er sá yngsti, 17 ára og 85 daga gamall.