Fréttablaðið - 07.06.2006, Blaðsíða 8
8 7. júní 2006 MIÐVIKUDAGUR
VEISTU SVARIÐ
1 Hver er að gera heimildarmynd um Íslendingabók?
2 Hvað heitir markvörður knatt-spyrnuliðs FH-inga?
3 Hvenær settist Halldór Ásgrímsson fyrst á þing?
SVÖR Á BLS. 38
UMHVERFISMÁL „Það kemur til greina
að banna þessi hjól þó að ég vilji
reyna aðrar aðferðir fyrst,“ segir
Sigríður Anna Þórðardóttir
umhverfisráðherra um akstur tor-
færuhjóla utan vegar. „Ég höfða til
ábyrgðar þessara manna sem
þarna eiga í hlut. Það er ekki komið
að þessu ennþá og ég er ekki með
neinar hótanir en ég vil undirstrika
alvarleika þessa máls.“ Sigríður
segist hafa átt mjög gott samstarf
við vélhjólamenn en svo virðist
sem margir líti ekki á akstur utan
vegar af nægilega mikilli alvöru.
Ráðherra segir að fyrst um sinn
verði tekið á utanvegaakstri á
þann hátt að auka eftirlit og höfða
til samvisku þeirra sem slík hjól
nota. Sigríður telur að nauðsyn-
legt sé að herða viðurlög með því
að hækka sektir og jafnvel komi
til greina að gera ökutæki upptæk
sen notuð eru á þennan hátt. „Þetta
eru mjög alvarleg afbrot og sums
staðar er um varanlegar skemmd-
ir að ræða. Það er óafsakanlegt,“
segir Sigríður.
Land í næsta nágrenni við
höfuðborgina virðast vera undir
sérstaklega miklu álagi og Andrés
Arnalds, fagstjóri hjá Landgræðsl-
unni, hefur bent á að ástandið á
Reykjanesi sé sérstaklega alvar-
legt. Viðar Már Aðalsteinsson,
framkvæmdastjóri umhverfis- og
tæknisviðs Reykjanesbæjar, tekur
undir með Andrési. „Reykjanes-
fólkvangur er allur stórskemmdur
eftir utanvegaakstur mótorhjóla
og vandamálið vex ár frá ári. Það
kemur ekkert annað til greina en
að banna umferð þessara tækja
alfarið ef árangur á að nást í að
stöðva eyðilegginguna.“
Sigurður H. Magnússon, plöntu-
vistfræðingur hjá Náttúrufræði-
stofnun Íslands, segir það afar mis-
jafnt hvað gróður þoli rask vel.
„Plöntur sem vaxa hægt, eins og til
dæmis mosi, eru mjög lengi að
jafna sig og för eftir tæki geta sést
í marga áratugi. Hafa skal hugfast
að snemmsumars er gróðurinn sér-
staklega viðkvæmur þegar frost er
að fara úr jörð.“ Sigurður minnir á
að gróðurskemmdir geti orðið sér-
staklega miklar ef vatn renni um
förin því vatnið grafi sig niður og
margfaldi tjónið. Ef ítrekað rask
verði á landsvæði geti farið svo að
skemmdirnar séu varanlegar og
sérstakt uppgræðsluátak þurfi til
að koma landinu í samt horf.
svavar@frettabladid.is
Til greina kemur að
banna torfæruhjól
Umhverfisráðherra er staðráðinn í að uppræta utanvegaakstur. Ráðherra vill
herða viðurlög við brotum strax og jafnvel banna torfæruhjól ef það skilar ekki
tilætluðum árangri. Gróður getur verið áratugi að jafna sig eftir áníðsluna.
UTAN VEGAR Á REYKJANESI Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra hitti menn sem
voru á hjólum sínum utan vegar á Reykjanesi um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
KANADA, AP Tólf menn, sem hand-
teknir voru auk fimm táninga í
Kanada á föstudag og laugardag,
mættu fyrir dómara í Ontario-ríki
í gær. Mennirnir eru grunaðir um
að hafa skipulagt hryðjuverk.
Þeir eru sagðir hafa ætlað að
sprengja merk mannvirki í Kan-
ada í loft upp, svo sem þinghúsið í
Ottawa og CN-turninn í miðborg
Toronto, og segir lögregla al-
Kaída hryðjuverkanetið hafa
verið eina helstu fyrirmynd
þeirra þótt engar upplýsingar
liggi fyrir um bein tengsl þeirra í
millum.
Haft hefur verið eftir lögreglu
að búist sé við fleiri handtökum á
næstu dögum í tengslum við
málið.
Mennirnir og táningarnir, sem
eru undir lögaldri, voru allir hand-
teknir á föstudag og laugardag í
Toronto og nágrenni eftir að lög-
regla fékk upplýsingar um að hóp-
urinn hefði fengin sent þrjú tonn
af ammóníumnítrati, sem nota má
til sprengjugerðar.
Nú leita yfirvöld að frekari
tengslum milli mannanna og öfga-
fullra múslimahópa innan Banda-
ríkjanna og fimm annarra landa.
Bandaríkjamenn hafa hert til
muna eftirlit með 6,500 kílómetra
löngum landamærum sínum og
Kanada. - smk
Kanadamenn handtaka sautján menn grunaða um að skipuleggja hryðjuverk:
Þinghúsið meðal skotmarka
TEKINN HÖNDUM Einn hinna sautján
manna sem handteknir voru um síðustu
helgi í Kanada, grunaðir um að skipuleggja
hryðjuverk. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÚKRAÍNA, AP Svæðisþing Úkraínu á
Krímskaga lýsti í gær skagann
„NATO-laust svæði“ í afgerandi
kosningu. Ákvörðunin kemur í
kjölfar mótmæla gegn Atlants-
hafsbandalaginu, en bandarískir
hermenn komu nýlega til landsins
til að undirbúa heræfingar sem
munu eiga sér stað um miðjan
júlí.
Viktor Júsjenkó, forseti Úkra-
ínu, segir yfirlýsinguna vera
merkingarlausa, enda tilheyri
ekkert af landinu NATO. Hins
vegar hefur stjórn hans sóst eftir
inngöngu í Atlantshafsbandalagið
og tekið þátt í skipulagningu hern-
aðaræfinga af þessu tagi. - sgj
Yfirvöld á Krímskaga:
Lýsa skagann
Natólausan
HVERAGERÐI Aldís Haf-
steinsdóttir, oddviti D-list-
ans, verður nýr bæjarstjóri
í Hveragerði. Hún er fyrsta
konan til að gegna embætti
bæjarstjóra þar. Hún er
jafnframt fyrsti kjörni
heimamaðurinn sem sest í
þennan stól.
„Þetta er stefnubreyting
á mörgum sviðum,“ segir
Aldís og telur spennandi að sjá
hvernig bæjarbúum líst á þetta.
„Ég kem inn með mikla þekkingu
á málefnum Hveragerðisbæjar
því að ég hef búið hér frá 1966
meðan hér bjuggu aðeins nokkur
hundruð íbúa.“
Hveragerði er ört stækkandi
bæjarfélag. Bæjarbúum hefur
fjölgað mikið síðustu árin
og þeim mun fjölga á
komandi kjörtímabili.
Aldís segir að framtíðar-
uppbygging grunnskól-
ans sé eitt af fyrstu verk-
efnunum sem verði að
huga að. Nýja verk-
menntaálmu vanti við
grunnskólann.
„Svo þarf að huga að
þeim nemendafjölda sem er að
koma í skólann og taka afstöðu til
þess hvernig við ætlum að koma
þeim fyrir,“ segir hún og bætir við
að gatnagerð þurfi að klára og
huga þurfi að mörgum brýnum
umhverfisverkefnum.
Aldís tekur formlega við starfi
bæjarstjóra 11. júní. - ghs
ALDÍS HAFSTEINS-
DÓTTIR
Aldís Hafsteinsdóttir er nýr bæjarstjóri í Hveragerði:
Skólamál og fólks-
fjölgun í forgangi
INDÓNESÍA, AP Merapi-eldfjallið,
sem er í hinum illræmda „Eld-
hring“ Kyrrahafsins, spýr enn
hrauni og gasi yfir nærliggjandi
þorp. Fjallið er frægt fyrir ófyrir-
sjáanleg eldgos, en svo virðist sem
jarðskjálftinn stóri sem varð tæp-
lega 6.000 manns að bana fyrir
skemmstu hafi aukið virkni þess.
Yfirvöld í héraðinu Magelang
sendu yfir fjörutíu jeppa og bíla til
að flytja ellefu þúsund íbúa
nágrannahéraða Merapi-fjalls burt
úr gjóskuregninu í neyðarskýli. - sgj
Eldgos í Indónesíu:
Ellefu þúsund
flýja eimyrjuna
MERAPI-ELDFJALLIÐ Eldvirkni hefur aukist
að undanförnu.