Fréttablaðið - 07.06.2006, Blaðsíða 2
2 7. júní 2006 MIÐVIKUDAGUR
���������������������������������������������������������������������
�������������
������������
�������������� ����
�����������������������������������������������������������������
����
�����
�����
�
��� ��� ��
�������������� ���
��������������
�����
STJÓRNMÁL Guðni Ágústsson, vara-
formaður Framsóknarflokksins
og landbúnaðarráðherra, hefur
ekki ákveðið ennþá hvort hann
ætli sér að bjóða sig fram til for-
manns á flokksþingi flokksins í
haust.
Guðni segir forsendur fyrir
samkomulagi sem hann og Hall-
dór gerðu með sér vera brostnar
en það gerði ráð fyrir því að Guðni
myndi víkja sem varaformaður
flokksins. „Ég hafði á fundi með
forsætisráðherra fallist á ákveðn-
ar tillögur sem miðuðu að því að
ný forysta tæki við flokknum
strax í sumar sem alger samstaða
væri um meðal miðstjórnar, lands-
stjórnar og þingflokks. Þá var gert
ráð fyrir því að við Halldór
segðum báðir af okkur. Ekkert
verður af þeim fyrirætlunum þar
sem samstaða um breytingarnar
er ekki fyrir hendi.“
Guðni segir trúnaðarmann
Halldórs hafa sagt sér að hann
væri ekki tilbúinn til þess að
standa upp úr formannsstólnum
fyrir Guðna. „Málið snerist um að
það yrði kosin forysta í flokkinn.
Halldór vildi ekki standa upp fyrir
mér, að sögn trúnaðarmanna hans.
Ég varð að taka því. Mín persóna
er ekki aðalatriði þessa máls held-
ur Framsóknarflokkurinn,“ sagði
Guðni að loknum ríkisstjórnar-
fundi í gærmorgun.
Finnur Ingólfsson, fyrrverandi
varaformaður Framsóknarflokks-
ins og forstjóri VÍS, hefur þrálát-
lega verið orðaður við endurkomu
í íslensk stjórnmál að undanförnu.
Guðni segist hafa miklar mætur á
Finni en efist um að almenn sátt
geti náðst um hugsanlega endur-
komu hans. „Ég minnist Finns sem
mikils dugnaðarforks og öflugur
var hann sem ráðherra. Ég hins
vegar bjóst við því að það gæti
verið flókið fyrir hann að koma
inn á vettvang stjórnmálanna og
hæpið að um það næðist alger
samstaða en ég ætlaði ekkert að
standa gegn því,“ sagði Guðni og
sagði forsendurnar fyrir sam-
komulagi hans og Halldórs því
brostnar. „Þetta var til þess að
Halldór kynnti allt aðrar niður-
stöður á Þingvöllum en við höfð-
um rætt um og þess vegna var
samkomulag okkar Halldórs, sem
var ætlað til þess að ná samstöðu
um nýja forystu, ekki fyrir hendi.
Kjarni Framsóknarflokksins víða
um land var mótfallinn í niður-
stöðum sínum fór fram á það að
flokksþingið myndi kjósa sér nýja
forystu en ekki miðstjórnin.“
Ríkisstjórnin ræddi ekki breyt-
ingar á ríkisstjórninni á fundi
sínum í gærmorgun en Geir H.
Haarde mun taka við sem
forsætisráðherra þegar Halldór
Ásgrímsson hættir.
Guðni segist ekki óttast um sæti
sitt í ríkisstjórn en fyrirsjáanlegt
er að breytingar verði gerðar á
ráðherraskipan í ríkisstjórninni
vegna þeirra breytinga sem boðað-
ar hafa verið. „Ég á ekki von á öðru
en að ég haldi áfram sem þingmað-
ur og ráðherra. Ég hef sterka stöðu
í mínum flokki og mínu kjör-
dæmi.“ magnush@frettabladid.is
Vildi ekki standa
upp fyrir Guðna
Guðni Ágústsson segir trúnaðarmann Halldórs Ásgrímssonar hafa sagt sér að
Halldór vildi ekki standa upp úr formannsstólnum fyrir Guðna. Óvissa ríkir um
arftaka Halldórs. Á ekki von á öðru en að ég verði ráðherra áfram, segir Guðni.
GUÐNI ÁGÚSTSSON SVARAR SPURNINGUM FRÉTTAMANNA Töluverð ólga er innan Fram-
sóknarflokksins vegna brotthvarfs Halldórs Ásgrímssonar af sviði stjórnmálanna. Guðni
Ágústsson, varaformaður flokksins, ætlar sér ekki að fara úr forystu flokksins, eins og
Halldór og hann höfðu gert samkomulag um. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÍRAN, AP Manouchehr Mottaki,
utanríkisráðherra Írans, tjáði jap-
önskum starfsbróður sínum í gær
að Íransstjórn myndi „rannsaka af
fullri alvöru“ tilboð sex stórvelda
heims um margvíslegan efnahags-
legan ávinning fyrir Írana gegn
því að þeir hætti auðgun úrans.
Mottaki ítrekaði í samtalinu að
Íranar hefðu rétt til að koma sér
upp tækni til að nýta kjarnorku í
friðsamlegum tilgangi. Hann bætti
því við að það væri ráðamönnum í
Washington að kenna að eins lítið
traust og raun bæri vitni ríkti í
samskiptum Írans og Bandaríkj-
anna. Hann sagðist finna fyrir því
að alþjóðasamfélagið deildi þessu
vantrausti á Bandaríkjastjórn.
Þó er eitt af því sem komið
hefur fram um innihald sáttatil-
boðsins - sem Bandaríkin, Bret-
land, Frakkland, Þýskaland, Rúss-
land og Kína komu sér saman um
fyrir helgi - og þykir einna mest-
um tíðindum sæta tilboð Banda-
ríkjamanna um að sjá Írönum
fyrir nýjustu kjarnorkutækni.
Javier Solana, utanríkismála-
stjóri Evrópusambandsins, ræddi
tilboðið við íranska ráðamenn í
Teheran í gær og fyrradag. - aa
Sáttatilboð stórveldanna í kjarnorkudeilunni við Írana:
Lofa að grannskoða tilboðið
SOLANA OG MOTTAKI Ræddu sáttatilboðið í Teheran. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLA Ritstjóra Séð og heyrt
til tíu ára, Bjarna Brynjólfssyni,
var hótað í gær að verða fluttur
brott af lögreglu hyrfi hann ekki
án tafar á braut frá Fróða,
tímaritsútgáfu Odda. Hann er
sakaður um fjársvik og fékk
ekki að tæma skrifstofu sína.
Bjarna var ásamt ritstjóra Vik-
unnar og blaðamönnum sagt upp
störfum hjá fyrirtækinu vegna
slælegs fjárhags tímaritanna.
Bjarni telur engan fót fyrir
ásökunum. Hann hafi óskað eftir
starfslokum í fullu samkomulagi
við Fróða. „Ég mun leita réttar
míns með aðstoð Blaðamanna-
félags Íslands,“ segir Bjarni.
„Ég fór þess á leit að brotin væru
tilgreind en því var hafnað. Ég
hef hins vegar ekki haft neina
umsýslu fjármuna og verið
venjulegur launamaður hjá
fyrirtækinu. Ég hef ekki haft tök
á því að stunda fjársvik eða
önnur svik.“ Bjarni stofnaði
blaðið ásamt Kristjáni Þorvalds-
syni.
Elín G. Ragnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri tímaritaútgáfu
Fróða, vildi ekki tjá sig um brott-
hvarf Bjarna.
„Málið er á viðkvæmu stigi.
Ég get því miður ekkert sagt.“
Hún ætlar að gefa út fréttatil-
kynningu um málið. - gag
Bjarni Brynjólfsson, fráfarandi ritstjóri Séð og heyrt, mátti ekki tæma skrifstofuna:
Ritstjóri sakaður um fjársvik
ELÍN RAGNARSÓTTIR Framkvæmdastjóri
tímaritaútgáfu Fróða vildi ekki tjá sig um
brotthvarf ritstjóra Séð og heyrt. Málið væri
á viðkvæmu stigi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
DANMÖRK Fjörutíu og átta ára gam-
all breskur ríkisborgari var stung-
inn til bana á götu í Kaupmanna-
höfn um klukkan hálf fimm í
gærmorgun, kemur fram á frétta-
síðu danska blaðsins Politiken.
Árásarmaðurinn er sagður hafa
stöðvað Bretann þar sem hann var
á göngu ásamt danskri vinstúlku
sinni og beðið hann um sígarettu.
Þegar hún fékkst ekki réðst hann
gegn honum og stakk hann marg-
sinnis í handleggi, fótleggi, maga,
brjóst og háls. Mennirnir tveir
þekktust ekkert.
Svo beið árásarmaðurinn róleg-
ur eftir lögreglu, sem handtók
hann á staðnum. Líklegt þykir að
árásarmaðurinn eigi við geðræn
vandamál að stríða. - smk
Morð í Kaupmannahöfn:
Manni banað
vegna sígarettu
MORÐSTAÐUR Lögreglan í Kaupmannahöfn
rannsakar vettvang þar sem maður var
stunginn til bana í gærmorgun.
SPURNING DAGSINS
Kristján, eruð þið villimenn?
„Alls ekki. Upp til hópa eru þetta öðl-
ingar en inni á milli eru svartir sauðir
sem sverta íþróttina.“
Umhverfisráðherra vill hertar reglur um
utanvegaakstur og kallar þá villimenn af
versta tagi sem það stunda. Kristján Geir
Mathiesen er formaður Akstursíþróttafélags
Hafnarfjarðar.
KAPPLEIKUR Sendiherra Svía á
Íslandi, Madeleine Ströje-Wilkens,
háði borðtenniseinvígi við Þorgerði
Katrínu Gunnarsdóttur mennta-
málaráðherra við Norræna húsið í
gær. Borðtenniseinvígið var háð í
tilefni af þjóðhátíðardegi Svía sem
haldinn var hátíðlegur í gær.
Eftir einliðaleikinn, sem lykt-
aði með sigri þeirrar sænsku, tók
við tvíliðaleikur þar sem mennta-
málaráðherra brá sér í sænskan
landsliðsbúning og lyfti spaðann-
um við hlið Jóhanns Haukssonar,
blaðamanns á Fréttablaðinu. Þau
kepptu þá við Ströje-Wilkens og
danska sendiherrann Lasse
Reimann. - sh
Þorgerður og Ströje-Wilkens:
Háðu einvígi
í borðtennis
EINBEITING Þorgerður Katrín þurfti að lúta
í lægra haldi á tennisvellinum gegn ofjarli
sínum, sænska sendiherranum.
SLYS Karlmaður á þrítugsaldri var
fluttur mikið slasaður á sjúkrahús
í gær eftir að hann féll um sex
metra ofan í húsgrunn á Bíla-
naustlóðinni við Borgartún.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðis-
ins var kallað til og voru aðstæður
til björgunar talsvert erfiðar.
Að sögn lögreglunnar í Reykja-
vík er maðurinn mjög mikið slas-
aður, meðal annars með höfuð-
áverka, fótbrot og aðra áverka.
Nánari upplýsingar um líðan hans
liggja ekki fyrir.
Ekki er vitað hvernig slysið bar
að en það er í rannsókn. - sh
Vinnuslys við Borgartún:
Féll sex metra
og slasaðist illa
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur stað-
fest þrjátíu daga skilorðsbundinn
fangelsisdóm yfir karlmanni á
fimmtugsaldri fyrir að hafa í
febrúar 2004 slegið systurson
sambýliskonu sinnar í andlitið
með þeim afleiðingum að hann
kjálkabrotnaði.
Maðurinn bar við að höggið
hefði verið greitt í sjálfsvörn en
það þótti dómnum ekki sannað.
Maðurinn hafði verið dæmdur í
Héraðsdómi Suðurlands í þrjátíu
daga skilorðsbundið fangelsi og til
að greiða þeim kjálkabrotna um
745 þúsund krónur í miskabætur.
Hæstiréttur staðfesti þann dóm.
- sh
Maður dæmdur í Hæstarétti:
30 daga skilorð
fyrir kjálkabrot
New Orleans sekkur Land það er
borgin New Orleans stendur á sekkur
um rúmlega 20 millimetra á ári hverju
samkvæmt nýjum útreikningum vísinda-
manna. Telja þeir það útskýra að hluta
hvers vegna varnargarðar brustu þegar
fellibylurinn Katrína reið yfir borgina.
BANDARÍKIN
Dæmdur fyrir hnefahögg Héraðs-
dómur Austurlands hefur dæmt karl-
manntil að greiða félaga sínum rúmar
200 þúsund krónur vegna líkamsárásar.
Ákærði gaf félaganum hnefahögg sem
hafði þær afleiðingar að skyntaugar í
andliti sködduðust.
HÉRAÐSDÓMUR