Fréttablaðið - 07.06.2006, Blaðsíða 26
[ ]
Páll Steinar Sigurbjörnsson 11
ára, Hugrún Helgadóttir 11 ára
og Rebekka Ingibjartsdóttir 10
ára hafa öll verið í sumarbúð-
um KFUM og KFUK.
Páll Steinar Sigurbjörnsson hefur
verið mikið í sumarbúðunum í
Vatnaskógi. „Ég hef einu sinni
farið sjálfur í flokk en þegar ég
var lítill var pabbi forstöðumaður
í Vatnaskógi og ég fór oft með
honum þangað,“ segir hann.
Páll fór sjálfur í Vatnaskóg síð-
asta sumar og var þar í viku. „Á
hverjum degi var keppt í fótbolta
og svo voru frjálsar íþróttir. Mér
fannst samt skemmtilegast þegar
við gengum að hyl sem er í vatn-
inu og stukkum ofan í hann.“
Í sumar ætlar Páll að fara aftur
í sumarbúðirnar í Vatnaskógi. „Ég
fer með tveimur vinum mínum en
ég fór með öðrum þeirra síðast og
núna ætlar hinn að koma með
líka.“
Páll mælir með því að allir
krakkar prófi að fara í sumarbúð-
ir. „Ég mæli sérstaklega með
Vatnaskógi því það er mjög gaman
þar.“
Hugrún Helgadóttir var í Kald-
árseli síðasta sumar. „Ég hef farið
fjórum sinnum í Kaldársel en ég
fór tvisvar sinnum síðasta sumar,“
segir hún.
Í tvö fyrri skiptin sem Hugrún
var í Kaldárseli fór hún með vin-
konu sinni en í seinni tvö skiptin
fór hún með systur sinni. „Systir
mín er tveimur árum yngri en ég
og hún var að fara í fyrsta skipti í
sumarbúðir síðasta sumar.“
Hugrún segir að hægt sé að
vera í fimm daga í einu í Kaldár-
seli. „Við gerðum margt skemmti-
legt þegar við vorum þar, lékum
okkur og fórum í gönguferðir. Það
er alltaf brennókeppni á milli
borða og svo er hægt að fara í
skotbolta og fótbolta og vaða í
ánni. Hugrún veit ekki ennþá
hvort hún ætlar að fara í sumar-
búðirnar í sumar. „Ef ég fer þá
förum við systurnar örugglega
saman,“ segir hún.
Rebekka Ingibjartsdóttir hefur
bæði farið í sumarbúðir í Ölveri
og Vindáshlíð. „Ég var sex ára
þegar ég fór í Ölver og níu þegar
ég fór í Vindáshlíð,“ segir hún.
Rebekka var í viku í Vindáshlíð
síðasta sumar og var þar með
frænku sinni. „Hún er eldri en ég
en við vorum báðar að fara í Vind-
áshlíð í fyrsta skipti.“
Nóg var að gera hjá stelpunum
þessa viku sem þær voru í sumar-
búðunum. „Það var mjög skemmti-
legt í sumarbúðunum. Við fórum
upp á Sandfell og fórum oft í
brennó sem mér finnst skemmti-
legast.“
Rebbekka er ekki búin að
ákveða hvort að hún ætlar að fara
aftur í sumarbúðir í sumar. „Ef ég
færi myndi ég vilja fara aftur í
Vindáshlíð,“ segir hún.
emilia@frettabladid.is
Gaman í sumarbúðum
Rebekka Ingibjartsdóttir hefur bæði farið í
Ölver og Vindáshlíð. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Hugrún Helgadóttir fór tvisvar sinnum í
Kaldársel síðasta sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Páll Steinar Sigurbjörnsson mælir með
Vatnaskógi fyrir öll börn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Guðni Már Harðarson er æsku-
lýðsfulltrúi KFUM og KFUK en
starfsemi sumarbúða þeirra
hófst formlega í gær.
Í sumarbúðum KFUM og KFUK
fer fram kristilegt starf. „Við vilj-
um næra andlegu hliðina eins og
þá líkamlegu og erum stolt af
starfi okkar,“ segir Guðni.
Sumarbúðirnar eru á fimm
stöðum á landinu. „Þær eru í
Vatnaskógi, Vindáshlíð, Ölveri í
Borgarfirði, Kaldárseli og Hóla-
vatni fyrir norðan. Sumarbúða-
starfið hófst formlega í gær í
öllum sumarbúðunum og fyrstu
flokkarnir eru byrjaðir. Í sumar
verða alls fimmtíu dvalarflokkar í
boði á þessum stöðum.“
Skipt er eftir aldri í flokkana í
sumarbúðunum og Guðni segir að
enn sé laust í einhverja dvalar-
flokka. „Búið er að skrá 2.200 börn
hjá okkur í sumar en það er ennþá
hægt að bæta við 800 börnum. Í
öllum búðunum er fullt í einhverja
dvalarflokka en það er líka laust í
einhverja í þeim öllum.
Sumarbúðirnar eru fyrir börn
frá sex ára aldri og upp í sautján
ára. „Langflest börnin eru á aldr-
inum tíu til tólf ára en það er
svona vinsælasti sumarbúðaald-
urinn. Þau börn eru ekki byrjuð í
unglingavinnunni og eru óhrædd
við að fara að heiman. Við erum
svo með styttri flokka fyrir sex til
sjö ára því þau eru að venjast því
að fara að heiman og ef kemur
upp heimþrá þá er það yfirleitt í
þeim flokkum. Loks erum við með
unglingaflokka fyrir fjórtán til
sautján ára og það eru yfirleitt
börn sem hafa komið ár eftir ár og
vilja bara ekki hætta. Í þeim
flokkum myndast oft mjög
skemmtileg stemning og nú þegar
eru 200 börn eldri en fjórtán ára
búin að skrá sig hjá okkur,“ segir
Guðni.
Guðni segir að allir eigi að geta
skemmt sér vel í sumarbúðunum.
„Dagskráin er mjög fjölbreytt og
börnin geta valið um það hvort
þau vilja fara út í skóg að leika
sér, í leiki, á fótboltamót eða í
gönguferð. Þau geta alltaf valið
um fimm eða sex dagskrártilboð
og það finna alltaf allir eitthvað
við sitt hæfi og tíminn líður hratt
í sumarbúðunum.“
emilia@frettabladid.is
Allir finna eitthvað við
sitt hæfi í sumarbúðum
Guðni Már Harðarson segir að tíminn líði hratt í sumarbúðunum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Þegar þú kennir barninu þínu, kennir þú einnig
barnabarninu þínu.
af glæsilegum
sumarfatnaði og útifatnaði
Fatnaður fyrir 0-16 ára
Ný lína fyrir krakka yfir kjörþyngd frá 8-16 ára
Hlíðarsmára 12 • Sími: 555-6688
Full búð
RÓBERT BANGSI
...og unglingarnir
Hamraborg 7 • Kópavogi • Sími 564 1451
www.modurast.is
Mikið úrval af brjóstagjafa-
og meðgönguundirfatnaði í
mörgum litum
Einnig erum við með hinn
vinsæla Carters ungbarnafatnað
Börnin eyða miklum tíma útivið og skemmta sér í hinum ýmsu leikjum.