Fréttablaðið - 07.06.2006, Blaðsíða 85
MIÐVIKUDAGUR 7. júní 2006 29
�����
�������
�����
�����
�����
������
������
�����
����
��
�����
�����
������
�����
��������
������
����
LEIKLIST
VALGEIR SKAGFJÖRÐ
Galdraskyttan
Þjóðleikhúsið / Listahátíð í Reykjavík
Höfundur: Carl Maria von Weber /
Hljómsveitarstjóri: Gunnsteinn Ólafs-
son / Leikstjóri: Jón Gunnar Þórðarson
/ Leikmynd: Agnes Treplin / Búningar:
Eva Signý Berger / Lýsing: Jón Þorgeir
Kristjánsson / Helstu sönghlutverk:
Herbjörn Þórðarson, Guðmundur Helgi
Hegner Jónsson, Elísa Vilbergsdóttir,
Hlín Pétursdóttir, Hrólfur Sæmundsson,
Kolbeinn Ketilsson, Stefán Arngrímsson,
Hafsteinn Þórólfsson og m.fl.
Ég ætla að byrja á því að taka hatt
minn ofan fyrir framtaki Hrólfs
Sæmundssonar og Sumaróperunnar
fyrir að ráðast í þetta viðamikla verk-
efni. Hér er ungt fólk í miklum meiri-
hluta jafnt á sviðinu sem baksviðs þótt
ýmsir með meiri reynslu leggi hönd á
plóg, en fyrst og síðast er aðdáunarvert
hvernig hópurinn leggur krafta sína og
metnað í að gera vel. Söngvararnir eru
allir vel menntaðir og margir hverjir
með heilmikla reynslu og þjálfun í sínu
fagi, enda gera þeir allir mjög vel og
mætti segja að það væri helsti styrkur
þessarar sýningar hversu vel allur
söngur hljómar. Gunnsteinn Ólafsson
stjórnar hér Sinfóníuhljómsveit unga
fólksins sem hljómaði ágætlega en var
ekki alltaf samstíga og stundum eins og
ekki alveg samstillt á köflum. Í svona
verki þar sem tónlistin spilar stærstu
rulluna og öll heildaráferð hlýtur að
taka mið af henni, þá var hljómsveitin
helst til veikburða til að bera uppi
þessa tónlist eða verkið of stórt í
sniðum fyrir hljómsveitina þannig að
áhrifamáttur tónlistarinnar verður minni
en ella. Það gætti frumsýningarskrekks
framan af og mikið um mistök í tækni-
legri útfærslu hlutanna. Ljósastjórnin
var eitthvað óörugg og trúlega hefði
sýningin haft gott af fáeinum rennslum
til viðbótar fyrir frumsýningu til að allt
gengi upp eins og til var ætlast. Í svona
sýningu verða allir hlutir að ganga vel
og snurðulaust fyrir sig og leikstjóri
verður að gefa sér tíma til að fínpússa
hana eins og kostur er. Reynsluleysi
leikstjórans er auðséð á heildaryfir-
bragði sýningarinnar og hástemmd
lýsingarorð um þýskan ævintýraheim
þar sem umlykjandi skógurinn með
öllum sínum hættum og ógnum voru
í litlu samræmi við það sem sást á
sviðinu. Nær enga tilfinningu var hægt
að fá fyrir skógi og talsverður viðvan-
ingsbragur var á of mörgu í þessari
sýningu. Voru til dæmis hvítu frauð-
plastskassarnir undir þurrísinn hluti af
leikmyndinni?
Dansatriði lífguðu oft upp á mörg
atriðin og einfaldleikinn í búningum
og leikmynd skiljanlegur í ljósi þeirra
forsendna sem menn gefa sér í svona
uppfærslu en það verður að þjálfa upp
betri leiktúlkun hjá söngvurum til að
þeir komi tilfinningum og blæbrigðum
betur til skila - ekki síst fyrir þá sök að
hljóðmótun texta hjá söngvurum miðar
að því að rúnna af sérhljóða til að tónn-
inn verði fallegri og fyrir vikið þá skiljast
illa orðin sem sungin eru. Þá hjálpa
einmitt líkamstjáning, geðbrigði og rétt
stillt tilfinningaflæði sem áhorfendur/
áheyrendur geta þá lesið í. Unga fólkið
lærir heilmikið af þessari reynslu og þeir
agnúar sem ég hef talið upp hér að fram-
an munu án efa slípast af sýningunni en
ég endurtek að söngurinn var óaðfinnan-
legur og vel mátti njóta þess að hlusta á
hann. Gott framtak og ég er þess fullviss
að samvinna þessa góða fólks á eftir að
skila því áfram á þessari braut þegar til
lengri tíma er litið. En þess verður að
vænta í framtíðinni að gerðar eru kröfur
til þeirra sem vilja teljast atvinnumenn í
faginu og því dugar ekkert hálfkák. En á
sínum eigin forsendum er þessi sýning
allrar athygli verð.
GALDRASKYTTAN Á LISTAHÁTÍÐ
Sýning sem er allrar athygli verð.
Djarft framtak Sumaróperunnar!
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
JÚNÍ
4 5 6 7 8 9 10
Miðvikudagur
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Finnski stúlknakórinn
Tähdet Kertovat Tyttökuoro
(Skrifað í stjörnurnar) frá Turku
heldur tónleika í Langholtskirkju.
Sérstakir gestir er Gradualekór
Langholtskirkju.
22.00 Dúettinn Sessý og Sjonni
heldur tónleika á Café Rosenberg í
Lækjargötu. Aðgangur er ókeypis.
■ ■ LEIKLIST
10.00 Brúðubíllinn sýnir
Duddurnar hans Lilla við
Arnarbakka í Breiðholti. Sögur,
gamalar og nýjar, leiklist, dans
og söngur og börnin taka undir.
Sýningin tekur um 30 mínútur.
■ ■ DANSLIST
20.00 Japanska nútímadans-
verkið Genji í Kassanum í
Þjóðleikhúsinu. Verkið byggir á
kafla úr Genji Monogatari, þekktri
sígildri japanskri skáldsögu frá 11.
öld.
■ ■ SÝNINGAR
13.00 Bergljót S. Sveinsdóttir
sýnir vatnslitamyndir í Byggðasafni
Garðskaga. Sýningin er opin til 14.
júní.
13.00 Huginn Þór Arason og
Unnar Örn Jónasson sýna ASÍ
FRAKTAL GRILL í Listasafni ASÍ.
Sýningin stendur til 25. júní.
Sunna Sigfríðardóttir sýnir í Café
Karolínu á Akureyri. Sýningin
stendur til 30. júní.
Marinó Thorlacius sýnir mynd-
verk sín á Thorvaldsen Bar í
Austurstræti.
■ ■ ÓPERA
20.00 Óperan Galdraskyttan
er sýnd á Stóra sviði Þjóðleik-
hússins. Óperan er samvinnuverk-
efni Sinfóníuhljómsveitar unga
fólksins, Sumaróperu Reykjavíkur
og Dansleikhússins, auk félaga úr
karlakórnum Fóstbræðum.
■ ■ BJARTIR DAGAR
11.00 Patrick Huse sýnir ljós-
myndir og málverk í Hafnarborg
í Hafnarfirði. Sýningin ber heitið
Innileg fjarvera. Sýningunni lýkur
mánudaginn 3. júlí.
12.00 Harðjaxlar og mjúkir
menn - tónleikadagskrá í Hafnar-
borg. Aðgangur ókeypis.
20.00 Tónleikar í Gamla bóka-
safninu, fram koma Shima,
Lokbrá, Kimono, Coral og
Changer. Húsið opnar kl. 19.30.
21.00 Andrés Þór Gunnlaugsson
heldur útgáfutónleika í Hafnarborg.
Jazzkvartett hans leikur tónlist af
diskinum Nýr dagur.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI