Fréttablaðið - 07.06.2006, Blaðsíða 82
7. júní 2006 MIÐVIKUDAGUR26
menning@frettabladid.is
Kl. 20.00
Finnski stúlknakórinn Tähdet
Kertovat Tyttökuoro (Skrifað í
stjörnurnar) frá Turku heldur
tónleika í Langholtskirkju.
Sérstakur gestur er Graduale-
kór Langholtskirkju.
> Ekki missa af...
útgáfutónleikum Tilrauna-
eldhússins annað kvöld í
Iðnó. Fram koma hljómsveit-
irnar amiina, Benni Hemm
Hemm, Paul Lydon og Illi
Vill.
leikritinu Ritskoðaranum
eftir Anthony Neilson sem
Sokkabandið setur upp í sal
Sjóminjasafns Íslands við
Grandagarð.
ljósmynda- og málverkasýn-
ingum norska listamannsins
Patrick Huse í Hafnarborg í
Hafnarfirði. Sýningin heitir
„Innileg fjarvera“ og er hluti
af dagskrá Bjartra daga í
bænum.
Carnegie Art Award eru ein
stærstu myndlistarverðlaun
heims en á morgun verður
opnuð sýning í Hafnarhús-
inu á verkum eftir liðlega
tuttugu norræna listamenn
sem tilnefndir voru til þess-
ara merku verðlauna.
Verðlaunin voru afhent í Osló í
september og um leið hófst átján
mánaða sýningarferðalag til allra
höfuðborgar Norðurlandanna,
Nice og Lundúna. Að þessu sinni
eru fjórir íslenskir listamenn
þátttakendur í sýningunni en auk
Eggerts Péturssonar, sem hlaut
önnur verðlaun í sjálfri keppn-
inni, eru verk eftir Steingrím
Eyfjörð, Jón Óskar og Finnboga
Pétursson á sýningunni.
Vaxandi upphefð
„Þessi verðlaun skipta mjög
miklu máli, bæði vegna þess að
sýningin er farin að fara víðar og
fólk er farið að veita þessu meiri
eftirtekt. Þetta er hæsta verð-
launaféð sem veitt er á Norður-
löndunum og með því hæsta í
heiminum,“ segir Halldór Björn
Runólfsson, listfræðingur og einn
af dómnefndarfulltrúum í keppn-
inni. Hann segir að verðlaunin
verði æ meiri stökkpallur fyrir
listamenn. „Margir tóku þetta
ekki alvarlega fyrstu árin en á
síðustu þremur árum eða svo
hefur komið allt annað hljóð í
strokkinn, sérstaklega eftir að
sumir verðlaunahafanna urðu
heimsfrægir.“
Fyrstu verðlaun að þessu sinni,
að upphæð tíu milljónir króna,
hlaut sænska listakonan Karin
Mamma Anderson en önnur verð-
laun, að upphæð sex milljónir
króna, hlaut Eggert Pétursson.
Þriðju verðlaun hlaut finnska
listakonan Petra Lindholm og
myndlistarstyrk ungra listamanna
fékk Sirous Namazi frá Svíþjóð.
Afstæð málaralist
Stofnað var til verðlaunanna árið
1998 en sögu þeirra má rekja til
frumkvöðulsins Carnegie. „Annar
bróðirinn fór til Bandaríkjanna,
sá frægi Carnegie sem Carnegie
Hall heitir eftir. Hinn bróðirinn
fór til Svíþjóðar og stofnaði sam-
nefndan sjóð og banka þar. Í
erfðaskránni kom fram að það
ætti að nota hluta ágóðans til að
styrkja málaralist.“ Úr varð að
hluti fjárins var notaður til að
koma á fót safni fyrir vatnslita-
myndir en hinn hlutinn til þess að
koma verðlaunasjóðnum á kopp-
inn. „Verðlaunin eru hins vegar
enn bundin við málverkið og þá
eru góð ráð dýr því það er vissum
erfiðleikum bundið að ákveða
hvað er málverk og hvað ekki.“
Eftirtektarverður árangur
Að sögn Halldórs Björns hafa
aldrei fleiri íslenskir listamenn
verið valdir á sýninguna. „Það er
ótrúlegt að hugsa til þess að það
eru fjórir Íslendingar í þessum
liðlega tuttugu manna hópi.
Miðað við höfðatölu þá erum við
að baka hina í Skandinavíu,“
segir hann kíminn. Hann tekur
undir að þessi árangur sé til
marks um þann skilning og vel-
vilja sem íslensk myndlist mæti
á erlendri grund. „Skandinavía
er nokkurs konar millistökkpall-
ur út í hinn stóra heim sem
íslenskir listamenn átta sig ekki
nándar nærri nógu vel á. Hér-
lendir listamenn hafa oft verið
að hlaupa beint á meginlandið og
reyna að komast til Ameríku.
Skandinavar eru mjög opnir
fyrir því sem verið er að gera,
það sannast kannski best á Ólafi
okkar Elíassyni.“
Fáninn flækist ekki fyrir
Tilnefnt er til verðlaunanna í
hverju landi fyrir sig en dóm-
nefndarfulltrúarnir sjálfir hafa
enga aðkomu að tilnefningunum.
„Það er líka hægt að tilnefna lista-
menn frá öðrum löndum en það er
síðan dómnefndarinnar að velja
úr þeim bunka.“ Halldór Björn
útskýrir að ekki sé hlaupið að því
að gera upp á milli listamann-
anna, dómnefndarfulltrúar frá
hverju þátttökulandanna hittist
auk eins utanaðkomandi fulltrúa
sem yfirleitt er þekktur safn-
stjóri eða listfræðingur og fund-
irnir eru oft mjög krefjandi og
stífir. „Þetta er rosalega strembn-
ar og miklar sessjónir, kannski
eins og búskapurinn í ríkisstjórn-
unum þar sem menn eru ekki allt-
af sammála,“ Það þarf vissan
sannfæringarkraft til þess að
koma sínum skilningi á framfæri
í þessu samkeppnisumhverfi en
Halldór Björn áréttar að dóm-
nefndin megi ekki verða þjóð-
rækin. „Við látum ekki fánann
ráða heldur fagið en það getur
verið erfitt að hemja það. Það
geta komið upp sárindi ef eitt
landið fær kannski bara einn
listamann á sýninguna en annað
landið fimm, það er dálítill bömm-
er fyrir þá sem fá fæsta til-
nefnda.“
Fyrirtaks þverskurður
Verkin á sýningunni nú eru fjöl-
breyttari hvað tækni og efnis-
meðferð snertir en nokkru sinni
fyrr í sögu verðlaunanna. „Fjöl-
breytnin er líka mikil hjá íslensku
listamönnunum, sem eru ótrúlega
ólíkir innbyrðis,“ segir Halldór
Björn og nefnir að verk Finnboga
Péturssonar séu gott dæmi um
hversu afstæð flokkunin innan
myndlistarinnar sé. „Þessi sýning
gefur ofboðslega góða mynd af
því hvað hægt er að teygja hug-
takið málaralist í margar áttir.“
Sýningin er í Hafnarhúsi Lista-
safns Reykjavíkur og stendur til
20. ágúst.
kristrun@frettabladid.is
EGGERT PÉTURSSON LISTMÁLARI Hlaut önnur verðlaun Carnegie Art Award 2006 fyrir einstök blómamálverk sín. FREÉTTABLAÐIÐ/HARI
Fáninn flækist
ekki fyrir
!
Hafnarborg stendur öllum opin í
hádeginu í dag en þar munu Sig-
urður Skagfjörð Steingrímsson
baritónsöngvari og Antonía
Hevesi píanó-
leikari flytja
söngdag-
skrána „Harð-
jaxlar og
mjúkir menn“.
Á efnisskránni
eru verk eftir
Donizetti,
Mozart, Tsjaik-
ovsky og Bizet og öll snúast þau
um ástina.
Sigurður Skagfjörð hefur hald-
ið tónleika víða hérlendis og
erlendis og sungið með Sinfóníu-
hjómsveit Íslands og á vegum
Íslensku óperunnar. Antonía er
listrænn stjórnandi og píanóleik-
ari hádegistónleikaraðar Hafnar-
borgar.
Ókeypis er á tónleikana. - khh
SIGURÐUR SKAGFJÖRÐ
Mýktin og
harkan
Andrés Þór Gunnlaugsson
heldur útgáfutónleika í
Hafnarborg í kvöld þar sem
hann kynnir geisladiskinn
Nýjan dag. Á diskinum leikur
jazzkvartett hans frumsamda
jazztónlist en auk Andrésar
sem leikur á gítar skipa
kvartettinn Sigurður Flosason
á altó saxófón, Valdimar Kol-
beinn Sigurjónsson á kontra-
bassa og Scott McLemore á
trommur.
Andrés Þór lauk burtfar-
arprófi af jazzbraut FÍH vorið
199 og stundaði framhalds-
nám við Konunglega tónlistarháskólann í Haag í
Hollandi. Á námsárunum í Hollandi lék Andrés á
tónleikum víðsvegar í Hollandi og einnig í Belgíu,
Lúxemborg og Þýskalandi með ýmsum sveitum
en einna mest með
djasstríóinu Wijnen,
Winter & Thor sem
lék m.a. á Jazzhátíð
Reykjavíkur 2003 og gaf
út plötuna It Was a Very
Good Year 2004, en
lag Andrésar, Þórdís-
ardans, af þeirri plötu
var tilnefnt til Íslensku
tónlistarverðlaunanna
2004. Andrés fluttist
heim frá Hollandi vorið
2004 og hefur verið
virkur í tónlistarlífinu hér
heima sem hljóðfæraleik-
ari og tónlistarkennari síðan.
Nýr dagur er fyrsti geisladiskur Andrésar í eigin
nafni og eingöngu með frumsömdum verkum
hans.
ANDRÉS ÞÓR GUNNLAUGSSON DJASSGÍTARLEIKARI
Útgáfutónleikar Nýs dags
ÍSLENSKIR ÞÁTTTAKENDUR Á CARNEGIE ART AWARD SÝNINGUNNI Jón Óskar, Finnbogi
Pétursson og Steingrímur Eyfjörð FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL, GVA