Fréttablaðið - 19.06.2006, Side 6
6 19. júní 2006 MÁNUDAGUR
www.lyfja.is
- Lifið heil
VIRKAR Á ÖLLUM STIGUM FRUNSUNNAR
- ALDREI OF SEINT!
Vectavir
FÆST ÁN LYFSEÐILS
Vectavir krem er áhrifaríkt lyf til meðferðar á frunsum af völdum Herpes Simplex. Vectavir virkar á öllum
stigum frunsunnar frá sting eða æðasláttar til blöðru. Í Vectavir er virka efnið penciklóvír sem stöðvar
framgang veirunnar. Vectavir er ætlað fullorðnum og börnum eldri en 12 ára. Berið Vectavir á frunsusvæðið
á 2 klst. fresti í 4 daga. Berið á rétt fyrir svefn og um leið og vaknað er. Dæmigert er að frunsa komi fram við
ofreynslu, kvef eða inflúensu eða í mikilli sól (t.d. á skíðum). Ekki á að nota lyfið ef að áður hefur komið fram
ofnæmi fyrir penciklóvír, famciklóvír eða öðrum innihaldsefnum. Með Vectavir grær frunsan hraðar, verkir
minnka og smittími styttist. Vectavir kremið 2 g fæst án lyfseðils. Lesið vel leiðbeiningar sem fylgja lyfinu.
Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
L†
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
YF
3
32
04
06
/2
00
6
Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni - Egilsstöðum - Höfn
Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði - Borgarnesi - Grundarfirði
Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi - Hvammstanga - Skagaströnd
Selfossi - Laugarási
KJÖRKASSINN
Ætlarðu á sólarströnd í sumar?
Já 25%
Nei 75%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Ætlarðu að kaupa nýjan bíl á
árinu?
Segðu þína skoðun á Vísi.is
Þrír ölvaði undir stýrir Þrír menn
voru teknir fyrir ölvunarakstur í Kópavogi
aðfaranótt sunnudags. Ökumennirnir,
sem allir voru milli tvítugs og þrítugs,
voru teknir við venjubundið eftirlit.
LÖGREGLUFRÉTTIR
BANDARÍKIN Fimm unglingar voru
skotnir til bana í New Orleans í
Bandaríkjunum í gær, og er það
versta fjöldamorð sem framið
hefur verið í sögu borgarinnar.
Fórnarlömbin, fimm ungir piltar
á aldrinum 16 til 19 ára, fundust í
og við bíl þeirra eftir að morð-
ingjarnir höfðu skotið fjölmörg-
um skotum á bílinn með þeim
afleiðingum að allir í honum lét-
ust. Flestir mannanna dóu sam-
stundis en einn þeirra náði að
skríða stuttan spöl frá bílnum
áður en hann lést.
Lögreglan í New Orleans hefur
enn enga hugmynd um hver eða
hverjir voru þarna að verki og
álítur að morðin hafi verið framin
í hefndarskyni af fíkniefnasölum,
en bílnum var lagt á stað sem
alræmdur er fyrir fíkniefnasölu
og glæpi af ýmsu tagi.
Morðtíðni í New Orleans var
með þeim hæstu í Bandaríkjun-
um á tímabili en fór lækkandi
eftir hamfarirnar sem fellibylur-
inn Katrín olli á seinasta ári.
Það sem af er þessu ári hafa
fimmtíu og tvö morð verið framin
í New Orleans. Íbúar munu ugg-
andi um að ofbeldisglæpum í
borginni eigi enn eftir að fjölga á
næstu misserum. Virðast þessir
atburðir renna stoðum undir þann
ótta. - sþs
Hrottafengin fjöldamorð á unglingum vekja óhug í New Orleans:
Hefndarmorð á unglingum
NEW ORLEANS Lögreglumaður á glæpa-
vettvangi. Morðin hafa vakið mikinn óhug
meðal borgarbúa.
LÖGREGLUMÁL „Lögreglumenn sem
starfa í miðbænum um helgar
lenda undantekningalítið í átökum
þar sem þeir þurfa að yfirbuga
menn. Svo er það undir hælinn lagt
hvort lögreglumennirnir verða
fyrir áverkum,“ segir Páll Winkel,
framkvæmdastjóri Landssam-
bands lögreglumanna. Hann segir
hrindingar, pústra og jafnvel hræk-
ingar á lögreglumenn vera daglegt
brauð.
Lögreglumenn standa nú í bar-
áttu fyrir bættu starfsumhverfi.
Hafa þeir sent dómsmálaráðherra,
Birni Bjarnasyni, erindi í fjórum
liðum þar sem beðið er um úrbæt-
ur, eins og Fréttablaðið hefur
greint frá.
Í nýlegri viðhorfskönnun meðal
lögreglumanna kemur fram að
meira en helmingur allra lögreglu-
manna á Íslandi hefur orðið fyrir
líkamsmeiðingum eða 54 prósent
þeirra. Í sömu könnun kemur fram
að 64 prósent lögreglumanna hafa
orðið fyrir ofbeldi eða hótunum
sem þeir hafa tekið alvarlega. Loks
kom í ljós að í 41 prósenti tilvika
hafði hótunum eða öðru alvarlegu
áreiti verið beint gegn fjölskyldum
lögreglumanna.
Páll segir óvenjumörg ofbeldis-
tilvik gegn lögreglumönnum hafa
komið upp á síðustu vikum.
„Þá eru þessar eftirfarir að
verða nánast daglegt brauð með
tilheyrandi hættu, bæði fyrir
almenning og ekki síður lögreglu-
menn,“ segir Páll. „Meðaltals refs-
ing fyrir slíkt brot er lág fjársekt.
Maður veltir fyrir sér hver skila-
boðin séu eiginlega?“
Hann segir lögreglumenn ræða
það sín á milli að þeir séu óöruggir
við ákveðnar aðstæður þegar mik-
ill mannfjöldi komi saman. Inntur
eftir því hvað lögreglumenn vilji
gera til þess að bregðast við þeirri
stöðu sem nú sé uppi í starfsum-
hverfi þeirra segir Páll að að sumu
leyti verði ekki við þetta ráðið.
„Þetta er agaleysi íslensku þjóð-
arinnar og drykkjuskapurinn í
miðbæ Reykjavíkur. En við viljum
að þeir einstaklingar sem veitast
að lögreglunni, jafnvel ítrekað eins
og til eru dæmi um, hljóti viðun-
andi refsingu.“ jss@frettabladid.is
HÓPSLAGSMÁL Lögreglumenn að uppræta hópslagsmál í miðborg Reykjavíkur að nætur-
lagi um helgi. Þeir verða líklega oftast fyrir áreiti í miðbænum.
Áreiti og pústrar eru
nánast daglegt brauð
Þeir lögreglumenn sem eru að störfum í miðbænum um helgar lenda undantekn-
ingalaust í átökum. Ofbeldi gegn lögreglu hefur farið vaxandi að undanförnu.
Árásir á lögregluþjóna
í Reykjavík frá áramótum
Árásir á lögregluþjóna í Reykjavík sem
skilgreindar eru sem mjög alvarlegar,
15 tilvik.
Aðrar árásir, ekki jafn alvarlegar, 34 tilvik.
Dæmi:
1. Handtekinn maður tryllist á lög-
reglustöð í Reykjavík, slær lögregluþjón í
augabrún, öxl, bak. Töluverðir áverkar.
2. Lögregluþjónar í hávaðaútkalli.
Húsráðandi ræðst á lögregluþjóna með
hafnaboltakylfu. Nauðsynlegt reynist að
beita úðavopni til að yfirbuga manninn.
3. Lögregluþjónar í hávaðaútkalli. Hús-
ráðandi lemur lögregluþjón í brjóstkass-
ann með rafmagnsgítar.
SLÓVAKÍA, AP Stjórnarandstaðan í
Slóvakíu hrósaði sigri í þingkosn-
ingunum sem fram fóru þar í
fyrradag. Forseti landsins hefur
falið Robert Fico, leiðtoga vinstri-
flokksins Smer, stjórnarmyndun,
en flokkurinn náði ekki hreinum
meirihluta og verður því að mynda
stjórn í samráði við aðra flokka.
Smer-flokkurinn hlaut um 30%
atkvæða í kosningunum en flokk-
ur Dzurindas, fráfarandi forsætis-
ráðherra, hlaut tæp 19%.
Fico hefur lofað að snúa við
þeim breytingum sem núverandi
stjórn stóð fyrir og segir að hinir
ríku hafi einir fundið fyrir efna-
hagsvextinum í landinu. - sþs
Kosningar í Slóvakíu:
Stjórnarand-
staðan sigraði
ÍVAN GASPAROVIC Forseti Slóvakíu fól
Robert Fico stjórnarmyndun eftir kosning-
arnar í fyrradag.
STYRKVEITINGAR Úthlutað var úr
Styrktarsjóði Baugs Group við
hátíðlega athöfn í Fjalakettinum í
gær. 41,5 milljónum króna var
úthlutað að þessu sinni og voru
styrkþegarnir 30 talsins. Þetta er í
annað sinn sem veitt er úr sjóðnum
sem stofnaður var í júní í fyrra.
Bandalag íslenskra skáta fékk
hæsta styrkinn eða sjö og hálfa
milljón krónur sem skipt er niður
á þrjú ár. Pólhringurinn 2006 sem
er verkefni þar sem rannsökuð
eru áhrif loftslagshlýnunar á
norðurslóðum hlaut sex milljón
króna styrk.
Þrír styrkþegar komu fram en
þeir voru Guðni Fransson klarín-
ettuleikari úr tónlistarhópnum
CAPUT, sem fékk milljón króna
styrk til að hljóðrita tónlist eftir
Snorra Sigfús Birgisson, Hafliða
Hallgrímsson og Áskel Másson.
Söngvarinn Egill Árni Pálsson
þakkaði fyrir styrk að sömu upp-
hæð til framhaldsnáms í New
York með fögrum söng. Skóla-
hljómsveit Kópavogs flutti lag en
hún hlaut tveggja milljóna króna
styrk til að undirbúa 40 ára afmæli
sveitarinnar á næsta ári.
Að sögn Ingibjargar Lilju Diðr-
iksdóttur upplýsingafulltrúa er
hlutverk sjóðsins að styrkja líkn-
ar-, velferðar- og menningarmál
og að styrkhafarnir væru vel að
styrknum komnir.
Það var Jóhannes Jónsson, for-
maður stjórnar sjóðsins, sem
afhenti styrkina. - jse
Styrktarsjóður Baugs Group úthlutaði styrkjum við hátíðlega athöfn:
Yfir fjörutíu milljónir veittar
VIÐ ÚTHLUTUN Í GÆR Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri snýr til sætis síns með
milljón króna styrk til Þjóðleikhússins upp á vasann. Jóhannes Jónsson og Ingibjörg S.
Pálmadóttir eru tilbúin í næstu afhendingu. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
ATVINNUMÁL Á næstu dögum ræðst
hvort sátt náist milli Alþýðusam-
bandsins og atvinnurekenda um
lög vegna erlends vinnuafls við
endurskoðun kjarasamninga. Að
sögn Halldórs Grönvold, aðstoðar-
framkvæmdastjóra Alþýðusam-
bandsins, var íslenskt samfélag
ekki búið undir breytingar á flæði
vinnuafls.
Verkalýðshreyfingin, samtök
atvinnulífsins og stjórnvöld hafa
undanfarið átt í viðræðum til að
koma í veg fyrir að kjarasamning-
um verði sagt upp um næstu ára-
mót eins og stefnir í vegna verð-
bólgunnar sem er nú sjö til átta
prósent. - sþs
Tekist á um erlent vinnuafl:
Ræðst á allra
næstu dögum
STJÓRNMÁL „Orkuveitan verður
áfram í eigu borgarinnar og verður
ekki seld meðan ég er borgarstjóri,“
segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóri Reykjavíkur.
„Ég hef hins vegar lýst yfir að
við viljum selja hlut okkar í
Landsvirkjun ef
rétt verð fæst og
nýta þá megin-
hlutann af þeim
fjármunum til að
lækka skuldir
borgarinnar.“
Farið verður í við-
ræður við ríkið á
næstu vikum að
sögn Vilhjálms.
„Orkuveitan og Landsvirkjun eru í
mikilli samkeppni í framhaldi af
breyttri skipan raforkumála í
landinu og mér finnst óeðlilegt að
fulltrúar borgarinnar sitji báðum
megin við borðið í þeim málum.“
- sdg
Vilji til að selja Landsvirkjun:
Mun ekki selja
Orkuveituna
VILHJÁLMUR Þ.
VILHJÁLMSSON
ST. KITTS, AP Tillaga Japana, um að
leyfa aftur hvalveiðar í atvinnu-
skyni, var felld á laugardagskvöld
á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins
sem fer nú fram í St. Kitts með
eins atkvæðismun. Tvo þriðju
hluta atkvæða hefði þurft til að
fella bannið úr gildi.
Sjávarútvegsráðherra Bret-
lands, Ben Bradshaw, segist ekki
skilja af hverju Japanar, Norðmenn
og Íslendingar ýti á eftir því að
hvalveiðar verði leyfðar að nýju
og bætir við að þessi afstaða rýri
verulega orðstír ríkjanna á
alþjóðavettvangi. - sdg
Alþjóðahvalveiðiráðið:
Tekist á um
hvalveiðar
Ætla á loft Bandaríska geimferða-
stofnunin NASA hefur ákveðið að skjóta
skyldi geimferjunni Discovery út í geim
þann 1. júlí. Ákvörðunin er tekin þvert
á ráðleggingar sérfræðinga sem segja
geimferjuna ekki enn nógu örugga.
BANDARÍKIN