Fréttablaðið - 19.06.2006, Side 25

Fréttablaðið - 19.06.2006, Side 25
MÁNUDAGUR 19. júní 2006 5 Sumarhús og garðurinn gaf nýlega út aðra bókina í ritröð- inni Við ræktum. Er það bókin Lauftré á Íslandi sem er fagur- lega myndskreytt og stútfull af áhugaverðum upplýsingum. Lauftré á Íslandi er önnur bókin í ritröðinni Við ræktum. Ritstjóri bókarinnar er Auður I. Ottesen garðyrkjufræðingur en hún og Þórarinn Benedikz skógfræðingur og Tryggvi Marinósson garðyrkju- fræðingur eru aðalhöfundar bók- arinnar. Í bókinni er fjallað um lauftré sem náð hafa fimm metra hæð hér á landi. Ásamt umfjöllun um upp- runa, ættkvíslir og tegundir er fjallað um fjölgun og umhirðu, sjúkdóma, skordýr og fuglana sem nærast á berjum og fræjum trjánna. Upplýsingar taka mið af íslenskum aðstæðum og reynslu. Bókin er ríkulega myndskreytt og auðlesin. Fyrsta bókin í ritröðinni Við ræktum heitir Garðurinn allt árið og er ætluð áhugafólki um garð- yrkju. Þriðja bókin mun bera nafn- ið Víðir og víðinytjar en þar er fjallað um gerð nytjahluta úr víði- greinum og segir frá hentugum víðitegundum og ræktun þeirra. Áætlað er að fjórða bókin komi út fyrir jól. Kemur hún til með að heita Barrtré á Íslandi. - sgi Himinhá lauftré Lauftré á Íslandi er gefin út af Sumarhúsi og garðinum ehf. EKKI BJÓÐA ÓKUNNUGUM INN AÐ ÓÞÖRFU. Opnir gluggar í sumarblíðunni hleypa svölu og fersku lofti inn á heimilið. Þeir eru hins vegar líka auðveld leið fyrir fingra- langa sem vilja kíkja í heimsókn og fá sér minjagrip. Það ætti að vera regla á hverju heimili að athuga alla opnanlega glugga áður en farið er að heiman. Hálflokaður gluggi er aðeins tafsam- ari en opinn en engu að síður eins og boðskort fyrir þá sem vilja krækja sér í góss. Hægt er að fá margs konar krækjur og lokur sem tryggja að gluggar geti aldrei opnast nema upp að ákveðnu marki. Með tilliti til brunavarna er þó kannski öruggara að skilja ekki gluggana eftir opna. Munið að loka gluggunum öryggi } • Birta Björnsdóttir fatahönnuður og Jón Páll listamaður í 100 ára gömlu húsi við Miðstræti • Uppskrift af austurlensku partítjaldi og allt sem þig vantar til að gera garðinn frægan • Rautt og bleikt þema • Listrænt fúnkíshús við Vatnsenda • Ofursvöl piparsveinaíbúð í 101 Reykjavík TRYGGÐU ÞÉR BLAÐIÐ Í ÁSKRIFT MEÐ 30% AFSLÆTTI Á AÐEINS 489 KR. EINTAKIÐ OG FÁÐU VEGLEGA GJÖF Í KAUPBÆTI GLÆNÝTT VEGGFÓÐUR ER KOMIÐ ÚT tímaritÁSKRIFTARSÍMI 550 5000 | WWW.VISIR.IS Formaco • Fossaleynir 8 • 112 Reykjavík • Sími: 577 2050 • Fax: 577 2055 • www.formaco.is ÞARFTU AÐ LOSA ÞIG VIÐ VIÐHALDIÐ? Veldu glugga vegna lítils viðhalds, góðrar hönnunar, gæða, útlits, endursölu og 10 ára ábyrgðar. Vertu viss um að gluggarnir séu - Spurðu fasteignasalann. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.