Fréttablaðið - 19.06.2006, Síða 68
19. júní 2006 MÁNUDAGUR48
Miðnæturgolfmót starfsfólks á
fasteignasölum fór fram 9. júní
síðastliðinn. Metþátttaka var í
mótinu.
Að þessu sinni fór 10. árlega
Fréttablaðsmótið fram á Garða-
velli á Akranesi. Metþátttaka var í
mótinu en það telst vera eitt veg-
legasta golfmót sem haldið er á
Íslandi, með tilliti til veittra verð-
launa og umgjarðarinnar. Þá má
geta þess að á þessu móti hafa
margir stigið sín fyrstu skref á
golfvelli með því að draga kerrur
fyrir félaga sína og vera þannig
þátttakendur í leiknum.
Keppt var í fjórum flokkum og
urðu sigurvegarar eftirfarandi:
Konur með forgjöf: Marólína
Erlendsdóttir.
Karlar með forgjöf: Sigurður
Hjaltested.
Karlar án forgjafar: Þröstur
Ástþórsson.
Byrjendur: Ragnar Gíslason.
- tg
Frétta-
blaðsmótið
Ragnar Gíslason sigurvegari í byrjendaflokki
tekur hér við sigurlaunum sínum.
Austurborg tók til starfa 1. júlí 1974 en arkitektar skólabyggingarinnar eru
Guðmundur Kr. Guðmundsson og Ólafur Sigurðsson. Skólinn er 10. stærsti
leikskólinn sem Reykjavíkurborg starfrækir. Skólinn er fjögurra deilda og þar
eru börn frá aldrinum eins til sex ára. Í skólanum eru 93 pláss og eru yngri
börnin á Bangsalandi og Putalandi en eldri börnin á Ólátagarði og Kattholti.
Markmið Austurborgar er að skapa börnunum fjölbreyttar aðstæður við nám
og leik. Það eflir þau bæði sem einstaklinga og félagsverur við aðstæður
sem örva alla þroskaþætti, ýta undir sjálfsöryggi, frumkvæði og vellíðan
barnanna. Lögð er áhersla á að börnin geti eflst í gegnum leik sem skap-
andi, glaðir, virkir og sjálfstæðir einstaklingar með góða sjálfsmynd.
AUSTURBORG
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Bergur Þór er þessa dagana önnum kafinn við æfingar á
Mein Kampf í Borgarleikhúsinu. Þess vegna óskar hann
sér merkilegs draumahúss sem getur flutt hann milli
heimsálfa á augabragði. „Draumahúsið væri í Reykjavík,
Barselónu og einhvers staðar í Suður-Ameríku. Það væri
svona Narníuskápur sem flytti mann milli húsanna,“
segir Bergur.
Í húsunum væri stór salur þar sem væri frábær
hljómur. Þar væri hægt að halda stórar matarveislur
með góðum vinum og gestum og þar væri einnig hægt
að spila og syngja. „Svo væru auðvitað þaksvalir þar
sem hægt væri að liggja allan daginn í sólbaði,“ segir
Bergur. „Þar væri busllaug fyrir börnin og konan mín
gæti málað þar úti.
Í húsinu væru herbergi fyrir alla fjölskylduna auk
fjölda herbergja fyrir gesti. Garðurinn ætti að vera
nokkuð stór og þar yxu fíkju- og mandarínutré. „Ég vil
sjá ávextina vaxa og geta svo tínt þá af trjánum,“ segir
Bergur.
DRAUMAHÚSIÐ: BERGUR ÞÓR INGÓLFSSON LEIKARI OG LEIKSTJÓRI
Flytur hann milli heimsálfa
SELDAR EIGNIR Á
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU*
*þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisins.
300
250
200
150
100
50
0
FJÖLDI
5/5-
11/5
186
12/5-
18/5
171
19/5-
25/5
147
26/5-
1/6
175
2/6-
8/6
112
9/6-
15/6
120
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI