Fréttablaðið - 19.06.2006, Side 72
19. júní 2006 MÁNUDAGUR
Hjartað hamaðist í mér
þegar bíllinn spændi
upp Suðurlandsbraut-
ina. Lagði honum í
hæfilegri fjarlægð frá
Laugardalshöllinni, ef við
skyldum tapa gætu
brotist út óeirðir. Þannig
væri það alltaf í útland-
inu. Ég var orðinn náhvítur af spenn-
ingi og hann magnaðist jafnt og þétt
eftir því sem ég nálgaðist keppnis-
völlinn. Hendurnar urðu þvalar,
kaldur sviti spratt fram undir hönd-
unum. Öskrin, bumbuslátturinn,
fólkið, hetjurnar, allt magnaði þetta
upp einhverja óþekkta tilfinningu,
ást á landinu bláa.
Svo hljómaði þjóðsöngurinn.
Þetta blessaða lag sem hefur verið
gagnrýnt lengi fyrir að vera of erf-
itt fyrir meðalmanninn sem aldrei
hefur sungið í kór. „Þetta er bara
fyrir einhverja söngmenntaðar list-
fígúrur sem lært hafa erlendis,“
heyrði ég einhvern tímann sagt.
Hetjurnar stóðu á miðju gólfinu og
horfðu til himins, á fána landsins
sem þeir ætluðu að berjast fyrir til
síðustu stundar. Múgurinn stóð upp.
Einhver byrjaði, annar tók undir og
allt í einu sameinaðist hópurinn í
lofsöng til landsins. Íslands þúsund
ár! Á ögurstundu þjappaði þessi
skari sig saman og blés hetjumóðn-
um í brjóst þeirra sem áttu að verja
heiður þjóðarinnar.
Íslendingar er sagðir vera stolt
þjóð. Við stærum okkur af falleg-
ustu náttúrunni og konunum og karl-
arnir eru ótrúlega sterkir. Engu að
síður finnst okkur hálf hallærislegt
að hvetja íþróttamennina áfram, við
syngjum varla með í þjóðsöngnum
og rísum ekki upp á afturlappirnar
þegar svindlað er á okkur.
Í Laugardalshöllinni á laugar-
daginn breyttist hins vegar lands-
lagið. Þjóðin sá gult, litinn sem
hefur verið henni þyrnir í augum
lengi, og ákvað að láta hann finna til
tevatnsins. Á augabragði breyttust
saklausir fjölskyldufeður, dag-
farsprúðar húsmæður og ráðamenn
á æðstu stöðum í brjálaðar bolta-
bullur sem þráðu ekkert heitar en
að senda þá sænsku aftur heim með
skottið á milli lappanna. Þá varð allt
einu flott og töff að hrópa Ísland
(klapp, klapp, klapp).
STUÐ MILLI STRÍÐA: Áfram Ísland, nema hvað!
FREYR GÍGJA GUNNARSSON VARÐ ÓVÆNT ÞJÓÐARSTOLTINU AÐ BRÁÐ
Bónus-vinningur
4
milljónir
Alltaf á mi›vikudögum!
380
120
500
1. vinningur
MILLJÓNIR
Fá›u flér
mi›a fyrir
kl. 16
á mi›viku
daginn e›
a
taktu sén
s á a› mis
sa af fless
u!
MILLJÓNIR
Á LAUSU!
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
2
3
4
4
Potturinn stefnir í 120 milljónir. Ofurpotturinn stefnir
í 380 milljónir og bónusvinningurinn í 4 milljónir.
Tvöfaldur
pottur2
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Konráð
Bjargvættu
rinn
minn
Maður getur
alltaf stólað á að hann
eigi smá afgangs
mat.
Jæja, við verðum
þá bara að
finna aðra
leið út...
Palli
!
Í guðanna bænum...
Lækkaðu í þessu! Nágrannarnir
voru að hringja
og kvarta
yfir þessum
óhljóðum!
Nú?
Ég hélt að þetta væri
svona þjónusta við
nágrannana.
Pondus...
Get ég farið í
þessum kjól
í kvöld?
Ástin
mín.
Svona okkar á milli, þá
held ég að þetta sé ekki
rétti kjóllinn...
...því ég ætla að rífa hann
utan af þér með tönnunum!
Þetta er greinilega
rétti kjóllinn!
Mm
mm
mm
...
Hvenær
kemur Solla
heim?
Eftir svona
klukkutíma.
Saknarðu stóru
systur þinnar?
Já, það
er svo
leiðinlegt
þegar hún er
í skólanum.
Þá hef ég
engan að
slást við.