Fréttablaðið - 19.06.2006, Síða 74
19. júní 2006 MÁNUDAGUR26
menning@frettabladid.is
��������������������������������� �����������������������������������������������������
�� ����������������������������������������� ���������� ������������������������������
������������ �������������� �� �����������
����������������������������������
������������������
������ �������������
����������������������������������� ��������
�������������� �����������������
�������������� �����������������
�������������� �����������������
������������������������������
�������������� �����������������
Frumsýning 29. júní – Uppselt
30. júní
1. júlí – Uppselt
6. júlí
7. júlí
9. júlí
Miðasalan er í síma 568 8000
www.borgarleikhus.is
www.minnsirkus.is/footloose
Alveg brilljant
skilnaður
Einleikur
Eddu Björgvinsdóttur
um allt land.
Sjallinn Akureyri
22. og 23. júní
Miðasala: Penninn Glerártorgi
Viðskiptavinir
Landsbankans fá
500 króna afslátt
af miðaverði
ALLT SEM fiIG VANTAR
ER Á VISIR.IS/ALLT
n‡ vöru- & fljónustu-
skrá á visir.is
> Ekki missa af
fyrirlestri danska stjarneðlisfræð-
ingsins Anja Andersen á vegum
Jafnréttisnefndar Háskóla Íslands
og Rannsóknastofu í kvenna-og
kynjafræðum í hátíðarsal Aðalbygg-
ingar Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn
nefnir hún Dularfullt hvarf kvenna
úr vísindum - hvert hafa allar ungu
konurnar farið? Fyrirlesturinn verður
fluttur á ensku og hefst klukkan
15.30.
sýningu Myndhöggvarafélagsins í
Reykjavík sem ber yfirskriftina Magn
er gæði en þar sýna 48 félagar post-
ulínsverk. Sýningin er í Nýlistasafninu
og stendur til 9. júlí.
Bleikum tónleikum Ungliðahóps
Feminístafélagsins á Barnum, Lauga-
vegi 22, í tilefni dagsins.
Breska listakonan Claire
Charnley hefur ferðast
heimsálfanna á milli og
sýnt gjörning sem ber
yfirskriftina TALA. Að eigin
sögn sækir hún efnivið
verksins í þær breytingar
sem eiga sér stað þegar
hlutir eru færðir úr einum
menningarlegum aðstæð-
um í aðrar.
Claire er stödd hér á
landi og sýnir hún verk sitt
í Nýlistasafninu en sýningin
opnaði á þjóðhátíðardag-
inn. „Þetta verk mitt er langtímaverkefni en ég hef
áður sýnt það í Austur-Evrópu, Kína, Frakklandi,
Ísrael, Mexíkó, Póllandi og Skotlandi. Það fjallar
um menningarlega fáfræði og er tilraun mín til að
fást við yfirráð enskrar tungu í alheimssamfélagi
nútímans. Ég reyni að túlka það sambland af valdi
og fáfræði sem þeir sem
hafa ensku að móðurmáli
eru settir í nú á tímum,“
útskýrir Claire. „Ég vinn
þetta verk með Bryndísi
Ragnarsdóttur listakonu,
en hún hefur samið texta
fyrir mig á íslensku sem
ég les upp. Ég er algerlega
óupplýst um innihaldið
og skil auðvitað ekkert í
íslensku. Það er hreyfing
hluta eða fyrirbæra frá
einu menningarsvæði yfir
á annað sem er viðfang
mitt en þessi yfirfærsla getur oft gefið hlutunum
nýjar merkingar, allt frá því að vera handahófs-
kenndar út í að vera fáránlegar. Í þessu tilviki er ég
viðfang þessarar yfirfærslu milli menningarsvæða“.
Sýningin stendur yfir frá miðvikudegi til sunnudags
frá 13.00-17.00 í Nýlistasafninu til 9. júlí.
Íslenskan erfið í túlkun
KL 17.00
Lagt verður af stað í hina árleg
kvennasögugöngu Kvennasögu-
safns Íslands frá aðalbyggingu
Háskóla Íslands klukkan 17.00.
Gengið verður í Kvosina undir
leiðsögn Kristínar Ástgeirsdóttur.
Gangan er skipulögð í tilefni dags-
ins en þennan dag árið 1915 fengu
konur kosningarétt.
!
CLAIRE CHARNLEY OG BRYNDÍS RAGNARSDÓTTIR
Anja Andersen er dansk-
ur stjarneðlisfræðingur
og virt fræðikona á því
sviði, en hún stundar vís-
indarannsóknir við Niels
Bohr-stofnunina í Kaup-
mannahöfn. Hún hefur
einnig beint sjónum sínum
sérstaklega að konum innan
vísindageirans en Anja
heldur fyrirlestur á vegum
jafnréttisnefndar Háskóla
Íslands og Rannsóknarstofu
í kvenna-og kynjafræðum
sem nefnist Dularfullt
hvarf kvenna úr vísindum
- hvert hafa allar ungu kon-
urnar farið?
Spurð um ástæður fyrir skorti á
konum hjá rannsóknarstofnunum,
einkum innan raunvísinda- og
tæknigeirans, segir Anja þær
margar. „Það er ekki til nein ein-
föld skýring á þessum skorti enda
ef svo væri þá væri vandinn leyst-
ur. Í norrænum framhaldsskólum
eru stelpur fleiri en strákar og
fleiri konur en karlar eru í námi á
háskólastigi. Eftir því sem lengra
er komið á háskólastigið eftir
meistarapróf dregur hins vegar
úr hlutfalli kvenna og sárafáar
starfa innan akademíunnar, sér-
staklega sem prófessorar.“ Anja
segir það erfiðleikum háð að brjót-
ast gegnum glerþakið en konur
komist síður í æðstu stöður þjóð-
félagsins. „Ekki svo að skilja að
karlar vilji ekki sjá konur í ábyrgð-
ar- eða stjórnunarstöðum heldur
virðist mega rekja ástæðuna til
þess að þegar kemur að ráðning-
um í slíkar stöður, sækir líkur
líkan heim. Bæði kynin hafa ein-
faldlega tilhneigingu til að ráða til
sín einstakling af sama kyni og
þar eð karlmenn verma oftast
efstu sætin í samfélaginu ráða
þeir til sín aðra karlmenn.“
Danmörk stendur sig verst
Þó þetta eigi við flest öll starfs-
svið er tilhneigingin í þessa átt oft
meira áberandi innan raunvís-
inda, að sögn Anja. „Engar vís-
bendingar gefa þó til kynna að
konur séu síður vitsmunalega
færar til að stefna á starfsframa
innan raunvísinda þó margur vilji
halda hinu gagnstæða fram.
Innan vísindastofnunarinnar sem
ég starfa við eru aðeins fimm
konur en hlutfallið þeirra er tvö
prósent af starfsfólki á meðan
hlutfall stúdína við stofnunina er
25 prósent. Þetta er sami fjöldi
kvenna og vann við stofnunina
árið 1970 sem er hreint ótrúlegt,
miðað við þá bjartsýni sem ein-
kennt hefur síðustu áratugi um
aukin hlut kvenna í rannsóknar-
störfum.“
Anja segir nýlega könnun sýna
að Danmörk standi sig verst af
öllum Norðurlöndunum hvað hlut-
fall kvenna innan rannsóknar-
starfa á raunvísindasviði varðar.
„Margar samstarfskonur mínar
innan vísindageirans sem koma
annars staðar frá en Norðurlönd-
unum, hafa löngum skellt skuld-
inni á skort á dagvistunarplássi
eða bágt fæðingarorlof og halda
því fram að ef hin félagslega
umgjörð væri ámóta og okkar
væru þeim allir vegir færir. Sam-
kvæmt niðurstöðum könnunar-
innar virðist töfralausin því ekki
endilega fólgin í úrræðum vel-
ferðarkerfisins þótt telja mætti.“
Þarf að skapa vinalegra umhverfi
Anja segir alla þurfa að vera vak-
andi fyrir því að auka hlut kvenna
innan raunvísinda- og tæknigeir-
ans vegna þess að framtíðarsýn í
þekkingarmiðuðum heimi byggist
í auknum mæli á þessum fræðum.
Hvetja þarf ungar konur til að
stefna hátt í háskólanámi og
aðstoða þær við að ná alla leið
þangað þar sem ákvarðanirnar
eru teknar. „Við verðum að skoða
innan háskólanna hvort einhver
tiltekin svið höfða meira til
kvenna heldur en ella.
Ef lífeðlisfræði fær stúlkur
fremur til að tikka heldur en
skammtafræðin ætti að leggja
áherslu á hið fyrrnefnda til að
trekkja fleiri konur að. Það þarf
að skapa vinalegra starfsum-
hverfi fyrir konur á rannsóknar-
stofum og ég trúi því að ef fleiri
konur eru ráðnar haldist betur á
starfsfólki. Starfsandi skiptir
konur miklu máli og það eru ekki
hvað síst konur sem skapa jákvætt
starfsumhverfi svo það eitt og sér
er gefur til kynna að það er feng-
ur að fá konur til vinnu,“ segir
Anja hlæjandi. Hún bætir við,
alvarleg í bragði, að karlmenn
eyði oft miklu meiri tíma í vinn-
unni vegna þess að þeir séu oft
ekki jafn bundnir börnum. „Ef þú
getur unnið 14-16 tíma á dag í stað
átta tíma þá áttu auðvitað meiri
möguleika á því að vaxa sem vís-
indamaður. Algengara er að konur
í vísindastarfi eigi jafnframt
fjöldskyldu og verji því tíma
sínum frekar með henni en í vinn-
unni. Þær stilla þessu meira í hóf
altént.“
Engin kynjagleraugu
Guðrún Arnbjörg Sævarsdóttir er
Dósent við verkfræðideild Háskóla
Íslands. Hún tekur undir orð
danska stjarneðlisfræðingsins. „Í
námi er ekki neikvætt að vera
kvenkyns og tel ég ekki að stúlkur
verði fyrir mismunun á meðan
þær eru námsmenn. Hins vegar
þyngist róðurinn þegar kemur út á
vinnumarkaðinn. Í fagi eins og eðl-
isfræði þar sem karlar eru allsráð-
andi er erfitt fyrir konu að fóta sig
þar sem körlunum sem sitja í aka-
demísku stöðunum reynist erfitt
að líta á þær sem jafnoka.“ Guðrún
segir að hætta sé á að verk kvenna
og niðurstöður þeirra í vísindum
Vantar konur í vísindi