Fréttablaðið - 19.06.2006, Qupperneq 81
MÁNUDAGUR 19. júní 2006 33
VIGNIR GUÐJÓNSSON BLOGGAR FRÁ HM 2006 Í ÞÝSKALANDI
Af fótboltafári og fyrirtækjum
Á fjögurra ára fresti, eða þegar HM í fót-
bolta fer fram, fer af stað umræðan um
hið svokallaða fótboltafár eða „football
fever“ eins og það nefnist á ensku. Eftir
að hafa dvalist í Köln í einn dag hef ég
loksins öðlast skilning á þessu fyrirbæri.
Segja má að Íslendingar fái aðeins
snert af þessu fári sem nær út um
alla heimsbyggð og sameinar knatt-
spyrnuáhugamenn frá hverju heims-
horni, eins og gjarnan er talað um í
fótboltafræðunum. Upplifunin á fárinu
er að sjálfsögðu meiri hjá þátttöku-
þjóðunum hverju sinni en yfirgnæfandi
mest er fárið þó í gestgjafaþjóðinni
hverju sinni. Það er ekki fyrr en komist
er í stemninguna hjá henni sem vitn-
eskja fæst um hvað fárið snýst í raun
og veru.
Fárið er nánast ómögulegt að skýra
út með orðum, en að stærstu leyti er
þetta tilfinning sem maður upplifir í
daglegum venjum sem flestar kristallast
í yfirgnæfandi markaðsvæðingu sem
hertekur öll fyrirtæki, stór sem smá,
sem kappkosta við að nýta sér fárið.
Þannig stendur fótboltafárið ekki
alveg undir sjálfu sér eitt og sér heldur
ákvarðast umfang þess að miklu leyti á
því hversu margir nýta sér það og verða
þar með hluti af því. Flókin útskýring
kannski en ég skal reyna betur.
Hér í Köln er nánast hvert einasta
auglýsingaskilti tengt HM á einn eða
annan hátt og þá skiptir í raun engu
hvaða eða hvers konar fyrirtæki eru að
auglýsa. Íþróttavöruframleiðendurnir
fara hamförum í herferðum sínum en
símafyrirtækin eru einnig áberandi
þátttakendur í fárinu, sem og bjórfram-
leiðendur og þekktustu skyndibitastaðir
heims. Þannig er Oliver Kahn, af öllum
mönnum, andlit Burger King í Þýska-
landi í sumar. Margar fatabúðir eru með
svokallaða HM-daga þar sem flíkur eru
á mögnuðum tilboðum, Cafu er helsta
fyrirsæta H&M-búðanna og í einni
þýskri jakkafatabúð sem ég gekk fram-
hjá var mynd í glugganum af Jurgen
Klinsmann frá því á blaðamannafundi
í síðustu viku. Við hlið hans var spjald
með áletruninni: „Svona jakkaföt fást
hjá okkur“ og síðan benti stór ör á fötin
sem Klinsmann klæddist.
Steininn tók síðan úr þegar ég sá
Bastian Schweinsteiger á einu 15x15
metra stóru auglýsingaskiltinu draga
brosandi á eftir sér Samsonite-ferða-
tösku undir slagorðinu: „Bastian velur
Samsonite!“ Ensku bullurnar, sem fer
fjölgandi í borginni fyrir stórleikinn
gegn Svíum á morgun, áttu ekki orð
yfir Zoolander-svip Schweinsteigers
og hlógu sig máttlausa. Kahn og
Sweinsteiger verða seint sagðir með
fyrirsætuvænt útlit en það skiptir engu
máli. Þeir eru leikmenn á HM og þar af
leiðandi selja þeir – svo einfalt er það.
En það eru ekki aðeins stóru
fyrirtækin sem nýta sér fárið. Minni
smásöluverslanir eru allar með fjölmörg
HM-tilboð og litlir básar með HM-
varningi eru úti um allt. Bakarí bjóða
varla upp á brauð sem ekki eru eins
og fótbolti í laginu og á vínarbrauðin er
skrifað með glassúrnum „Klinsmann der
König“ eða kóngurinn Klinsmann. Meira
að segja ein snyrtivörubúðin bauð upp
á eitt af þessum antí-hrukkukremum
og fullyrti að Franz Beckenbauer notaði
það til að viðhalda ungu og fersku útliti.
Á laugardagskvöldið fór ég svo á
rótgróinn ónefndan bar hér í Köln.
Ég fékk mér HM-tilboð, svokallaðan
„Ballack-borgara“ og lítinn öl á 3,90
evrur á meðan ég horfði á leik Tékk-
lands og Ghana. Ölið kom í glasi sem
á var mynd af Miroslav Klose að fagna
marki. Í síðari hálfleik fór ég á salernið
og þegar ég var að þvo mér um hend-
urnar sá ég Sulley Muntari innsigla sigur
Ghana á 21 tommu flatskjá sem hafði
verið komið fyrir á 10 fermetra stóru
salerninu. Sumir spyrja hversu langt sé
hægt að ganga en aðrir segja að þetta
sé einfaldlega sjálfsögð þjónusta.
Eftir einn dag í Þýskalandi set ég
mig í síðari hópinn, enda strax orðinn
djúpt sokkinn í fótboltafárið sem hefur
sett þýska samfélagið á annan endann
síðustu vikur og mun gera í að minnsta
kosti þrjár vikur til viðbótar. Hér snýst
bókstaflega allt um fótbolta …eða ætti
ég að segja billjón króna iðnaðinn, sem
hann reyndar er orðinn?
ANDLIT BURGER KING Þýski landsliðsmark-
vörðurinn er andlit Burger King þessa dag-
ana og víða í Þýskalandi má sjá Kahn með
hamborgara í munninum. Ekki fer neinum
sögum af því hvort þessi auglýsingaherferð
hefur stóraukið sölutölurnar hjá hamborg-
ararisanum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Lionel Messi varð á dög-
unum sjötti yngsti markaskorari
HM frá upphafi þegar hann rak
síðasta naglann í kistu Serbíu-
Svartfellinga í 6-0 sigri Argentínu
á liðinu. Messi verður nítján ára
24. júní en sigurinn kom Argent-
ínu áfram í næstu umferð.
„Mér er í rauninni alveg sama
um þetta. Ég er ánægður yfir því
að hafa spilað en ég er ekkert að
hugsa um svona hluti. Ég er hepp-
inn að hafa fengið tækifæri á HM
og það var bónus að ná að skora
mark,“ sagði Messi sem kom inn á
sem varamaður í leiknum en Pelé
er sá yngsti sem hefur skorað á
HM, þá var hann sautján ára og
239 daga gamall.
„Þegar ég fór inn á sagði þjálf-
arinn mér að spila frammi, og
hreyfa mig vel með Carlos Tevez
og Hernan Crespo. Ég er mjög
ánægður með að fá að spila á HM í
fyrsta leiknum síðan ég meiddist,“
sagði Messi sem hafði ekki spilað í
þrjá mánuði fyrir leikinn. - hþh
Lionel Messi:
Er alveg sama
um tölfræðina
MESSI Meiddist í leik með Barcelona fyrir
þremur mánuðum en kom inn á og skoraði
í 6-0 burstinu á Serbíu og Svartfjallalandi
um helgina. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Spænski miðjumaðurinn
Xavi er mjög þakklátur landsliðs-
þjálfaranum Luis Aragones fyrir
að taka sig með á HM. Xavi meidd-
ist illa á hné fyrir hálfu ári og
missti af meirihluta tímabilsins
með Barcelona. Spánverjar mæta
Túnis á HM í dag en þeir unnu
Úkraínumenn örugglega í fyrsta
leiknum þar sem Xavi átti mjög
góðan leik.
„Ég er mjög ánægður með leik-
form mitt um þessar mundir og ég
verð að þakka Luis fyrir að taka
mig með hingað eftir erfiðleikana
sem ég gekk í gegnum á tímabil-
inu. Mér líður mjög vel á vellinum
um þessar mundir og þetta hefði
ekki getað gengið betur hjá okkur
í fyrsta leiknum. Vonandi náum
við að halda þessu áfram,“ sagði
Xavi í gær.
„Við leikum næst gegn Túnis og
það er alveg klárt að við erum sig-
urstranglegri aðilinn fyrir leikinn.
Þrátt fyrir það megum við ekki
vanmeta þá enda léku þeir ágæt-
lega í fyrsta leiknum sínum,“
bætti Xavi við en Túnis gerði 2-2
jafntefli gegn Sádí-Arabíu í fyrsta
leik sínum á mótinu. - hþh
Miðjumaðurinn Xavi:
Þakklátur fyrir
tækifærið
ÞAÐ ER GAMAN Á HM Xavi fagnar hér
marki með Luis Garcia í leiknum gegn
Úkraínu. NORDICPHOTOS/AFP