Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.06.2006, Qupperneq 81

Fréttablaðið - 19.06.2006, Qupperneq 81
MÁNUDAGUR 19. júní 2006 33 VIGNIR GUÐJÓNSSON BLOGGAR FRÁ HM 2006 Í ÞÝSKALANDI Af fótboltafári og fyrirtækjum Á fjögurra ára fresti, eða þegar HM í fót- bolta fer fram, fer af stað umræðan um hið svokallaða fótboltafár eða „football fever“ eins og það nefnist á ensku. Eftir að hafa dvalist í Köln í einn dag hef ég loksins öðlast skilning á þessu fyrirbæri. Segja má að Íslendingar fái aðeins snert af þessu fári sem nær út um alla heimsbyggð og sameinar knatt- spyrnuáhugamenn frá hverju heims- horni, eins og gjarnan er talað um í fótboltafræðunum. Upplifunin á fárinu er að sjálfsögðu meiri hjá þátttöku- þjóðunum hverju sinni en yfirgnæfandi mest er fárið þó í gestgjafaþjóðinni hverju sinni. Það er ekki fyrr en komist er í stemninguna hjá henni sem vitn- eskja fæst um hvað fárið snýst í raun og veru. Fárið er nánast ómögulegt að skýra út með orðum, en að stærstu leyti er þetta tilfinning sem maður upplifir í daglegum venjum sem flestar kristallast í yfirgnæfandi markaðsvæðingu sem hertekur öll fyrirtæki, stór sem smá, sem kappkosta við að nýta sér fárið. Þannig stendur fótboltafárið ekki alveg undir sjálfu sér eitt og sér heldur ákvarðast umfang þess að miklu leyti á því hversu margir nýta sér það og verða þar með hluti af því. Flókin útskýring kannski en ég skal reyna betur. Hér í Köln er nánast hvert einasta auglýsingaskilti tengt HM á einn eða annan hátt og þá skiptir í raun engu hvaða eða hvers konar fyrirtæki eru að auglýsa. Íþróttavöruframleiðendurnir fara hamförum í herferðum sínum en símafyrirtækin eru einnig áberandi þátttakendur í fárinu, sem og bjórfram- leiðendur og þekktustu skyndibitastaðir heims. Þannig er Oliver Kahn, af öllum mönnum, andlit Burger King í Þýska- landi í sumar. Margar fatabúðir eru með svokallaða HM-daga þar sem flíkur eru á mögnuðum tilboðum, Cafu er helsta fyrirsæta H&M-búðanna og í einni þýskri jakkafatabúð sem ég gekk fram- hjá var mynd í glugganum af Jurgen Klinsmann frá því á blaðamannafundi í síðustu viku. Við hlið hans var spjald með áletruninni: „Svona jakkaföt fást hjá okkur“ og síðan benti stór ör á fötin sem Klinsmann klæddist. Steininn tók síðan úr þegar ég sá Bastian Schweinsteiger á einu 15x15 metra stóru auglýsingaskiltinu draga brosandi á eftir sér Samsonite-ferða- tösku undir slagorðinu: „Bastian velur Samsonite!“ Ensku bullurnar, sem fer fjölgandi í borginni fyrir stórleikinn gegn Svíum á morgun, áttu ekki orð yfir Zoolander-svip Schweinsteigers og hlógu sig máttlausa. Kahn og Sweinsteiger verða seint sagðir með fyrirsætuvænt útlit en það skiptir engu máli. Þeir eru leikmenn á HM og þar af leiðandi selja þeir – svo einfalt er það. En það eru ekki aðeins stóru fyrirtækin sem nýta sér fárið. Minni smásöluverslanir eru allar með fjölmörg HM-tilboð og litlir básar með HM- varningi eru úti um allt. Bakarí bjóða varla upp á brauð sem ekki eru eins og fótbolti í laginu og á vínarbrauðin er skrifað með glassúrnum „Klinsmann der König“ eða kóngurinn Klinsmann. Meira að segja ein snyrtivörubúðin bauð upp á eitt af þessum antí-hrukkukremum og fullyrti að Franz Beckenbauer notaði það til að viðhalda ungu og fersku útliti. Á laugardagskvöldið fór ég svo á rótgróinn ónefndan bar hér í Köln. Ég fékk mér HM-tilboð, svokallaðan „Ballack-borgara“ og lítinn öl á 3,90 evrur á meðan ég horfði á leik Tékk- lands og Ghana. Ölið kom í glasi sem á var mynd af Miroslav Klose að fagna marki. Í síðari hálfleik fór ég á salernið og þegar ég var að þvo mér um hend- urnar sá ég Sulley Muntari innsigla sigur Ghana á 21 tommu flatskjá sem hafði verið komið fyrir á 10 fermetra stóru salerninu. Sumir spyrja hversu langt sé hægt að ganga en aðrir segja að þetta sé einfaldlega sjálfsögð þjónusta. Eftir einn dag í Þýskalandi set ég mig í síðari hópinn, enda strax orðinn djúpt sokkinn í fótboltafárið sem hefur sett þýska samfélagið á annan endann síðustu vikur og mun gera í að minnsta kosti þrjár vikur til viðbótar. Hér snýst bókstaflega allt um fótbolta …eða ætti ég að segja billjón króna iðnaðinn, sem hann reyndar er orðinn? ANDLIT BURGER KING Þýski landsliðsmark- vörðurinn er andlit Burger King þessa dag- ana og víða í Þýskalandi má sjá Kahn með hamborgara í munninum. Ekki fer neinum sögum af því hvort þessi auglýsingaherferð hefur stóraukið sölutölurnar hjá hamborg- ararisanum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Lionel Messi varð á dög- unum sjötti yngsti markaskorari HM frá upphafi þegar hann rak síðasta naglann í kistu Serbíu- Svartfellinga í 6-0 sigri Argentínu á liðinu. Messi verður nítján ára 24. júní en sigurinn kom Argent- ínu áfram í næstu umferð. „Mér er í rauninni alveg sama um þetta. Ég er ánægður yfir því að hafa spilað en ég er ekkert að hugsa um svona hluti. Ég er hepp- inn að hafa fengið tækifæri á HM og það var bónus að ná að skora mark,“ sagði Messi sem kom inn á sem varamaður í leiknum en Pelé er sá yngsti sem hefur skorað á HM, þá var hann sautján ára og 239 daga gamall. „Þegar ég fór inn á sagði þjálf- arinn mér að spila frammi, og hreyfa mig vel með Carlos Tevez og Hernan Crespo. Ég er mjög ánægður með að fá að spila á HM í fyrsta leiknum síðan ég meiddist,“ sagði Messi sem hafði ekki spilað í þrjá mánuði fyrir leikinn. - hþh Lionel Messi: Er alveg sama um tölfræðina MESSI Meiddist í leik með Barcelona fyrir þremur mánuðum en kom inn á og skoraði í 6-0 burstinu á Serbíu og Svartfjallalandi um helgina. NORDICPHOTOS/AFP FÓTBOLTI Spænski miðjumaðurinn Xavi er mjög þakklátur landsliðs- þjálfaranum Luis Aragones fyrir að taka sig með á HM. Xavi meidd- ist illa á hné fyrir hálfu ári og missti af meirihluta tímabilsins með Barcelona. Spánverjar mæta Túnis á HM í dag en þeir unnu Úkraínumenn örugglega í fyrsta leiknum þar sem Xavi átti mjög góðan leik. „Ég er mjög ánægður með leik- form mitt um þessar mundir og ég verð að þakka Luis fyrir að taka mig með hingað eftir erfiðleikana sem ég gekk í gegnum á tímabil- inu. Mér líður mjög vel á vellinum um þessar mundir og þetta hefði ekki getað gengið betur hjá okkur í fyrsta leiknum. Vonandi náum við að halda þessu áfram,“ sagði Xavi í gær. „Við leikum næst gegn Túnis og það er alveg klárt að við erum sig- urstranglegri aðilinn fyrir leikinn. Þrátt fyrir það megum við ekki vanmeta þá enda léku þeir ágæt- lega í fyrsta leiknum sínum,“ bætti Xavi við en Túnis gerði 2-2 jafntefli gegn Sádí-Arabíu í fyrsta leik sínum á mótinu. - hþh Miðjumaðurinn Xavi: Þakklátur fyrir tækifærið ÞAÐ ER GAMAN Á HM Xavi fagnar hér marki með Luis Garcia í leiknum gegn Úkraínu. NORDICPHOTOS/AFP
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.