Fréttablaðið - 19.06.2006, Síða 82
19. júní 2006 MÁNUDAGUR
GOLF Tiger Woods olli mestum
vonbrigðum á Opna Bandaríska
meistaramótinu sem fram fór um
helgina. Woods var mjög ryðgað-
ur og féll úr leik eftir tvo keppn-
isdaga en honum til varnar er
þetta fyrsta mótið sem hann
keppti á í níu vikur, og einnig það
fyrsta eftir að Earl faðir hans lést
þann 3. maí síðastliðinn.
„Venjulega eru flatirnar á
opna Bandaríska mótinu mjög
hraðar en þessar eru hæðóttar og
hægar. Ég byrjaði mjög illa og
það gekk lítið upp hjá mér, ég var
ekki að hitta brautirnar í upp-
hafshöggunum og heldur ekki
flatirnar í réttum fjölda högga,“
sagði Woods en þetta er í fyrsta
sinn síðan hann gerðist atvinnu-
kylfingur sem hann kemst ekki í
gegnum niðurskurð á stórmóti.
Það voru þeir Kenneth Ferrie
og Phil Mickelson sem voru efstir
fyrir lokadaginn og léku því
saman í síðasta ráshóp. Mótinu
var ekki lokið þegar Fréttablaðið
fór í prentun í gærkvöldi. Eng-
lendingurinn Ferrie var í forystu
allan þriðja daginn þar til hann
fékk skolla undir lokin og var því
jafn Mickelson, einu höggi á
undan Geoff Ogilvy.
Ferrie er lítt þekktur kylfing-
ur sem hefur aldrei verið nálægt
því að vinna til verðlauna á stór-
móti. Hann var í stökustu vand-
ræðum með að finna sér kylfu-
svein fyrir mótið þar sem sá sem
venjulega ber fyrir hann kylfurn-
ar fór til Þýskalands til að horfa á
enska landsliðið á HM. „Ég held
að það muni hjálpa mér að það er
engin pressa á mér, hún er öll á
andstæðingum mínum. Ég hef þó
fulla trú á mér sjálfum og ef ég
held áfram að leika jafn vel og ég
hef gert um helgina á ég mögu-
leika á sigri,“ sagði Ferrie fyrir
lokahringinn. - hþh
Opna bandaríska meistaramótið í golfi fór fram um helgina á Winged Foot:
Tiger Woods olli miklum vonbrigðum
FERRIE Spilar vel núna. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
FÓTBOLTI Sven-Göran Eriksson
mun að öllum líkindum gera þrjár
breytingar á byrjunarliði sínu
fyrir leikinn gegn Svíum á morg-
un frá því í leiknum gegn Trínidad
og Tóbagó. Líklegt er að allir leik-
menn Liverpool í þeim leik byrji á
bekknum.
Gary Neville kemur inn í liðið
fyrir Jamie Carragher, Owen Har-
greaves fyrir Steven Gerrard og
Wayne Rooney fyrir Peter Crouch.
Gerrard og Crouch skoruðu mörk-
in sem tryggðu Englandi sigur í
leiknum gegn Trínidad.
Hargreaves er talinn líklegast-
ur til að taka stöðu Gerrards en
Michael Carrick kemur einnig til
greina. Bæði Lampard og Gerr-
ard, auk Crouch, hafa fengið gult
spjald og lenda því í leikbanni fái
þeir annað spjald.
„Ef við þyrftum að vinna til að
komast áfram myndi ég líklega
hafa alla þrjá í byrjunarliðinu, en
við þurfum þess ekki. Líklegra er
því að ég muni hvíla einn eða tvo,“
sagði Eriksson sem mun að öllum
líkindum byrja með Rooney
frammi með Michael Owen.
„Wayne lítur vel út. Ég talaði
við hann og læknana og hann
kenndi sér einskis mein eftir leik-
inn gegn Trínidad. Hann segir að
hann sé tilbúinn til að spila í 90
mínútur en ég er ekki viss, ég verð
að tala við læknana. Ef hann er til-
búinn til að spila í það minnsta í
klukkutíma mun hann byrja leik-
inn en liðið er allt annað með Roon-
ey innanborðs,“ sagði Eriksson.
- hþh
Sven-Göran Eriksson mun gera breytingar á liði sínu fyrir lokaleikinn gegn Svíum:
Rooney í framlínunni með Owen
Í FULLU FJÖRI Wayne Rooney er í góðu
formi og stóð sig vel eftir að hann kom inn
á sem varamaður í leiknum gegn Trínidad.
NORDICPHOTOS/AFP
HANDBOLTI Svekkelsi Svía leyndi
sér ekki í Laugardalshöllinni á
laugardag enda er þetta í fyrsta
sinn síðan 1938 sem þessi mikla
handboltaþjóð missir af heims-
meistarakeppni. Sænskur hand-
bolti stendur á tímamótum um
þessar mundir þar sem Svíar taka
ekki þátt á HM, eiga litla von um
sæti á ÓL 2008 og nokkrir lykil-
menn liðsins eru á síðasta snún-
ingi. Handbolti Svía hefur því ekki
staðið jafn illa í áratugi og hefur í
raun náð botninum að mati marga
Svía og nú er kominn tími á nýja
uppbyggingu.
Stefan Lövgren fyrirliði og
markverðirnir Tomas Svensson og
Peter Gentzel eru allir að íhuga að
leggja landsliðsskóna á hilluna og
hleypa yngri mönnum að enda er
langt í að Svíar spili aftur á stór-
móti. EM í Noregi 2008 er þeirra
besti möguleiki. Lövgren er 36 ára
en markvarðaparið er á sama aldri
eða 38 ára. Ljubomir Vranjes er
ekki á sömu skoðun og er harð-
ákveðinn í því að spila áfram með
landsliðinu.
Það var árið 2004 sem sænskur
handbolti stóð einnig á tímamót-
um en þá lét hinn goðsagnakenndi
Bengt Johansson af þjálfun lands-
liðsins og kempur á borð við
Wislander og Staffan Olsson hættu
að leika með liðinu. Þetta magnaða
lið var á toppi handboltaheimsins í
rúman áratug og vann allt nema
ólympíugull. Nú eru svo sannar-
lega breyttir tímar hjá Svíum í
dag og í raun er sænskur hand-
bolti aftur á tímamótum.
Endurnýjunin hefur ekki geng-
ið sem skyldi undir stjórn
Ingemars Linnéll og afrekaskrá
hans er vægast sagt bágborin.
Svíar enduðu í 11. sæti á HM í
Túnis, töpuðu fyrir Pólverjum í
umspili fyrir EM í Sviss og svo
núna fyrir Íslandi í umspili um
sæti á HM í Þýskalandi. Þetta er
árangur sem Svíar eiga erfitt með
að sætta sig við eftir að hafa verið
orðnir mjög góðu vanir.
Sænska handknattleikssam-
bandið getur sagt upp samningi
sínum við Linnéll til 30. júní og
gamla kempan Magnus Wislander
er á meðal þeirra sem vilja sjá
Linnéll hverfa á braut. Sjálfur
sagði Linnéll lítið annað við sænska
fjölmiðla eftir leikinn gegn Íslandi
en að hann væri að hugsa sinn
gang. Sænskir handknattleiks-
stuðningsmenn eru flestir búnir að
missa þolinmæðina gagnvart Linn-
éll og má mikið vera ef hann held-
ur starfi sínu. - hbg
Svíar eru gríðarlega svekktir með niðurstöðuna úr einvíginu við Ísland:
Sænskur handbolti á tímamótum
í annað sinn á tveimur árum
LINNÉLL BÚINN AÐ VERA? Ingemar Linnéll hefur náð hörmulegum árangri með sænska
handboltalandsliðið frá því hann tók við af Bengt Johansson. Hann verður líklega rekinn
áður en mánuðurinn er liðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES