Fréttablaðið - 19.06.2006, Blaðsíða 86

Fréttablaðið - 19.06.2006, Blaðsíða 86
 19. júní 2006 MÁNUDAGUR38 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÁRÉTT: 2 kornstrá 6 kyrrð 8 kvikmyndahús 9 margsinnis 11 tölvuverslun 12 gnæfa yfir 14 helgimyndir 16 rás 17 kaðall 18 fát 20 ónefndur 21 auma. LÓÐRÉTT: 1 krass 3 í röð 4 land 5 form 7 ljót- ur 10 stal 13 nytsemi 15 arða 16 þjálfa 19 sælgæti. LAUSN: Bjarni Felixson íþróttafréttamaður hefur fylgst náið með heimsmeistarakeppn- inni í fótbolta um árin. Hann segir að heimsmeistarakeppnin í Mexíkó árið 1986 hafi verið sú besta sem hann hafi fylgst með og leikirnir hafi verið mjög skemmtilegir. Margir halda því einmitt fram að þessi keppni hafi verið ein sú magnaðasta í sögu HM og er það ekki síst fyrir tilstilli argentíska snillingsins Maradona sem skoraði tvö af frægustu mörkum keppninnar í einum og sama leiknum á móti Englendingum. Annað með hendi guðs og hitt þar sem hann sólaði hálft enska liðið upp úr skónum og skaut framhjá Peter Shilton og í markið. Bjarni segir hins vegar að fyrr- verandi herraþjóð okkar hafi ráðið miklu um vinsældir keppninnar hér á landi. „Ætli framganga Dana hafi ekki ráðið miklu um það. Þeir voru með býsna gott lið sem vann hug og hjörtu margra, þar á meðal Íslendinga,“ segir Bjarni. „Þetta var eftirminnileg keppni og mjög góð knattspyrna var spiluð þrátt fyrir mikinn hita.“ Argentína varð heims- meistari þetta árið og segir Bjarni þá hafa átt sigurinn skilinn þrátt fyrir að Marad- ona hafi notað hina svoköll- uðu hönd guðs í leik gegn Englendingum. Bjarni spáði Brasilíumönn- um sigri á HM í Þýskalandi sem nú stendur yfir. Hann segist jafnframt hafa verið spenntur að sjá hvernig Evrópuþjóðirnar kæmu til leiks. „Það kemur á óvart hversu Spánverjarnir eru með gott lið. Það er samt of snemmt að spá í það hvort þeir haldi það út,“ segir hann. „Liðin sem taka þátt eru misjöfn og þessi keppni er greinilega of löng. Það kemur ekki fram fyrr en í útsláttarkeppninni hvað er virkilega spunnið í liðin. - fb SÉRFRÆÐINGURINN BJARNI FELIXSON OG BESTA HM-KEPPNI ALLRA TÍMA Danir unnu hug og hjörtu allra í Mexíkó BJARNI FELIXSON Bjarni spáir Brasilíumönn- um sigri á HM í Þýskalandi. DANSKA LANDSLIÐIÐ Danirnir spiluðu skemmtilegan fótbolta á HM í Mexíkó árið 1986.HRÓSIÐ ...fær Hugleikur Dagsson fyrir að vera valinn leikskáld ársins á Grímunni og sýna að svartur á húmor á upp á pallborðið hjá Íslendingum. Nýlega var tilkynnt að einhver vinsælasta verslun landsins, Nonnabúð, væri að loka en Jón Sæmundur Auðarson, eigandi hennar, er hins vegar ekki af baki dottinn. „Ég er að opna gallerí Prússland og nýja verslun með fötum eftir tuttugu erlenda hönn- uði frá Japan, Belgíu, Þýskalandi, Frakklandi, Bretlandi og Banda- ríkjunum meðal annars. Bára og Hrafnhildur úr Aftur sjá um nýju búðina og verða með Aftur-línuna eins og hún leggur sig. Þær standa vaktina en ég hanna verslunina og fjármagna,“ segir Jón Sæmund- ur sem greinilega deyr ekki ráða- laus þótt Dead-merkið hafi lokið ævikvöldi sínu á Íslandi. Hann stefnir að því að opna gallerí og nýja búð sem hefur fengið nafnið Liborius á Mýrargötu í ágúst en í versluninni verður fatnaður eftir þekkta hönnuði á borð við Jeremy Scott, Ann Demenlemeester, Und- ercover og Three as four ásamt annars konar könnun. Skemmti- leg saga býr að baki nafngiftar- innar því Liborius er ættarnafn ömmu Jón Sæmundar sem var prússnesk. Dead-fatalínan sem Jón Sæmundur var með í Nonnabúð er að flytjast á annað tilverustig því Jón vinnur að útflutningi vöru- merkisins til Bandaríkjanna. Hann hefur nú stofnað fyrirtæki í Bandaríkjunum ásamt vísinda- manni að nafni Brad Evans og hyggjast þeir selja Dead-vörur víða í Bandaríkjunum. „Akrarnir í Bandaríkjunum eru alveg óplægð- ir. Það er búið að gera fimm ára plan og ég vona að þetta gangi vel. Dead á sína vini og kunningja þar ytra,“ segir Jón Sæmundur. Þeir sem vilja koma höndum yfir þess- ar vinsælu vörur á Íslandi þurfa ekki að örvænta því að Nonnabúð verður opin í tvo mánuði til við- bótar. „Ég er að gramsa í kössum og draga fram gamalt dót. En er þetta ekki bara orðið ágætt? Þetta var upphaflega bara hugsað sem innsetning og gjörningur,“ segir Jón en nú eru þrjú ár síðan Dead- ævintýrið hófst. Jón Sæmundur ætlar nú að snúa sér að myndlistinni og að rekstri gallerísins. „Galleríið verður rekið sem sjálfstætt gall- erí og hugsað fyrir unga og efni- lega myndlistarmenn,“ segir Jón Sæmundur. Prússland og Liborius munu vera til húsa á Mýrargötu 1 þar sem áður var gömul neta- gerð. rosag@frettabladid.is JÓN SÆMUNDUR AUÐARSON: OPNAR NÝJA VERSLUN OG GALLERÍ Dead-línan flytur til Bandaríkjanna JÓN SÆMUNDUR Myndlistarmaðurinn hefur stofnað fyrirtæki í Bandaríkjunum og stefnir að því að selja Dead-vörur í sem flestum borgum landsins. Búast má við að fjölmargir skarti bleika litnum í dag í tilefni þess að 19. júní er kvenréttindadagur. „Tilefnið er auðvitað að við feng- um kosningarétt 19. júní 1915 og þess vegna viljum við gera eitt- hvað skemmtilegt til að fagna þeim áfanga og minna á að barátt- an er ekki búin. Hefð hefur skap- ast fyrir því að vera með átakið Málum bæinn bleikan sem gengur út á það að allir sem styðja jafn- rétti sýni stuðning í verki og klæð- ist einhverju bleiku eða flaggi bleika litnum á annan hátt,“ segir Katrín Anna Guðmundsdóttir tals- kona Feminístafélags Íslands, en Kvenréttindafélag Íslands, Bríet og Stígamót eru meðal annarra aðstandenda hátíðahaldanna. Aðspurð af hverju bleiki lit- urinn væri aðalsmerki 19. júní og kvenréttindahreyfingarinnar sagði Katrín að hann hafi fyrst komið til sögunnar með Femín- istafélaginu. „Það var ákveðið við stofnun félagsins að í stað þess að búa til merki fyrir félagið að vera með einhvern ákveðinn lit. Við völdum bleika litinn því hann hefur oft á tíðum verið álitinn svo- lítið púkó sem má rekja til þess að hann var tengdur við stelpur. En við viljum auðvitað gera því sem konur gera jafnhátt undir höfði. Alveg eins og stelpur geta notað bláa litinn á bleikur líka að vera flottur litur sem bæði strákar og stelpur geta notað. Svo er bleiki liturinn bara svo fallegur,“ segir Katrín, en liturinn hefur greini- lega fallið vel í kramið hjá öðrum aðstandendum og þátttakendum átaksins „Málum bæinn bleikan“. Allt er seigt sem vel er bleikt KATRÍN ANNA GUÐMUNDSDÓTTIR Femínistafélag Íslands mun afhenda hvatningarverð- launin Bleiku steinana í dag og í kvöld stendur ungliðahreyfing félagsins fyrir tónleikum á Barnum. VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á bls. 8 1 Framtíðarlandið 1 Xanama Gusmao 1 Ólafur Stefánsson MÁLUM BÆINN BLEIKAN ■ 15.30 Hvarf kvenna úr vísindum. Fyrir- lestur Önju Andersen stjarneðlisfræðings í hátíðarsal aðalbyggingu Háskóla Íslands. Á ensku. ■ 16.45 Ganga í Kvosinni undir leiðsögn Kristínar Ástgeirsdóttur. Safnast saman í aðalbyggingu HÍ. ■ 18.00 Veitingar og dagskrá á Hallveigar- stöðum. ■ 20.00 Bleikir tónleikar á Barnum, Lauga- vegi 22. ■ 20.30 Kvennamessa við þvottalaugarnar í Laugardal. �������� ��� ��� ��� ��� ��� ��� ��� ��� ��� ������ ��� ��� � �� �� �� �� � �� �� �� �� � ��������� ����������������������� ������������� ������������������������������ �� ��������� ����������� �������������� ���� ��������� ������������������������������ FRÉTTIR AF FÓLKI Ansi skemmtilegt er að fylgjast með bloggi Össurar Skarphéðinssonar þessa dagana. Milli þess sem hann sveiflar sverðinu í pólitíkinni hamast þingmaðurinn við að horfa á heims- meistarakeppnina í Þýskalandi. Össur skrifar á heimasíðu sinni að hann reyni að fylgjast með einum leik á dag og horfi síðan á uppgjörsþátt Þorsteins J. og Heimis Karlssonar 4-4-2 í dagslok. „Besti íþróttaþáttur sem ég hef lengi séð,“ skrifar Össur á heimasíðu sinni og hrósar sérstaklega Arnari Björnssyni fyrir lýsingar sínar á leikjunum. Össur er líka ótrúlega ánægður með framtak stöðvarinnar sem ætlar að bjóða honum og Þráni Bertelssyni í útsendingu til sín í dag þegar lið þeirra beggja, Tógó, etur kappi í sínum öðrum leik. Reyndar segir Össur að stöðin ætli að helga sér þessa útsendingu enda eigi hann afmæli á þessum kvenrétt- indadegi. Össur segir ennfremur frá því að hann hafi skorað á Þráin að mæta í landsliðsbúningi Tógómanna enda hafi þingmaðurinn rökstuddan grun um að Þráinn hafi keypt sér hluta búningsins þegar þeir voru saman í landinu á vegum Spes-samtakanna. „Nú kemur í ljós hver er kjarkur rithöfundanna þegar til styrksins kemur,“ skrifar Össur. Þingmaðurinn upplýsir jafnframt að Englendingar eigi sérstakan sess í hjarta hans. „Er Bretum af hjarta þakklátur fyrir að hafa hugkvæmst að slétta misfellur milli vísindamanna landa okkar í kjölfar síðasta landhelgisstríðs með því að bjóða mér ókeypis vist á bresku Hafró þar sem ég rannsakaði kynlíf fiska af innlifun og þrótti,“ skrifar Össur. Hann uppskar þó engin blíðuhót hjá Ólafi Ragnari Grímssyni þegar hann sett- ist á Alþingi fyrir Alþýðuflokkinn því forsetinn kallaði hann „einn af drengjunum hennar Möggu,“ og átti þar við að ríkisstjórn Mar- grétar Thatcher hefði kostað hann til náms. - fgg LÁRÉTT: 2 hálm, 6 ró, 8 bíó, 9 oft, 11 bt, 12 tróna, 14 íkona, 16 æð, 17 tog, 18 fum, 20 nn, 21 arma. LÓÐRÉTT: 1 krot, 3 áb, 4 líbanon, 5 mót, 7 ófríður, 10 tók, 13 not, 15 agna, 16 æfa, 19 mm.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.