Fréttablaðið - 29.06.2006, Page 2
2 29. júní 2006 FIMMTUDAGUR
Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val
á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18.
Opið virka daga: 10-18
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
LYFJAVERÐ Siv Friðleifsdóttir heil-
brigðisráðherra segir að ráðu-
neytið sé með það til skoðunar að
setja upp innkaupasamlag lyfja
ásamt Tryggingastofnun og heil-
brigðisstofnunum. Þetta yrði gert
til að vinna gegn háu lyfjaverði.
Ráðherra hefur sent bréf til
Lyfjastofnunar þar sem stofnunin
er beðin um að brýna fyrir lyfja-
fræðingum að upplýsa sjúklinga
um ódýrari samheitalyf, sé verð-
munur frumlyfja og samheitalyfja
meiri en fimm prósent.
Jafnframt er stofnunin beðin
um að ítreka „þær heimildir sem
hún hefur samkvæmt lyfjalögum
til að knýja á um úrbætur, sé
ástæða til að mati stofnunarinnar,
svo sem að veita áminningu sem
getur verið undanfari leyfissvipt-
ingar,“ eins og segir í tilkynningu
ráðuneytisins.
Lyfjaverð-
skönnun ASÍ
sýndi nýlega að
lyfjaverð er
hátt á Íslandi og
að lyfjafræðing-
ar hjá markaðs-
ráðandi lyfsölu-
keðjum láti
undir höfuð
leggjast að
benda á ódýrari
samheitalyf sem hafa sömu virkni
og eru jafngóð og frumlyfin en
bara ódýrari.
„Frumlyfin hafa lækkað veru-
lega með samningum við þá sem
selja frumlyfin en takmarkað
magn af samheitalyfjum er flutt
inn. Misbrestur er á því að ódýrari
samheitalyf séu hér á markaði,“
segir Siv og hefur efasemdir um
árangur markaðslögmálanna við
að ná niður lyfjaverði.
„Þegar maður horfir á muninn
á verði lyfja hér og erlendis þá
virðist markaðurinn ekki hafa
skilað lægra verði. Það er mjög
sérstök staða að þurfa að fara að
flytja inn lyf með innkaupasam-
lagi en hugsanlega eina svarið
miðað við þá stöðu sem við erum í
í dag,“ segir hún.
Hreggviður Jónsson, forstjóri
Vistor, segir að sér lítist ekkert á
það að ríkið setji upp innkaupa-
samlag. Ríkið ætti að kanna hvort
markaðurinn hafi brugðist, velta
fyrir sér hvers vegna ef svo reyn-
ist vera og hvaða úrræði séu þá til
staðar.
„Ég fæ ekki séð af hverju ríkið
ætti að geta gert þetta betur en ein-
hver annar,“ segir hann og bætir
við að lyfjaverð á frumlyfjum sé
orðið lægra hér en í Danmörku.
Hjalti Sölvason, framkvæmda-
stjóri Lyfja og heilsu, mótmælir
því harðlega að lyfjafræðingar
standi sig ekki í stykkinu við að
benda á ódýrari samheitalyf. Það
komi berlega í ljós í könnun ASÍ.
ghs@frettabladid.is
SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR
Innkaupasamlag
gegn háu lyfjaverði
Heilbrigðisráðuneytið hefur til skoðunar að setja upp innkaupasamlag lyfja ásamt
Tryggingastofnun og heilbrigðisstofnunum. Forstjóra Vistor líst ekkert á það.
MISBRESTUR Á ÓDÝRARI SAMHEITALYFJUM Frumheitalyfin hafa lækkað verulega í verði,
að mati heilbrigðisráðherra, en misbrestur er á því að ódýrari samheitalyf séu flutt inn.
Markaðurinn virðist því ekki hafa skilað lægra verði.
BELGÍA, AP Belgíska lögreglan fann
tvö barnslík í gær og staðfesti sak-
sóknari síðar um daginn að þau
væru af telpunum tveim sem sakn-
að hafði verið í tæpar þrjár vikur.
Líkin fundust í hávöxnu grasi
við lestarteina skammt utan við
Liege, og voru um 10 metrar á
milli þeirra, að sögn saksóknar-
ans.
Karlmaður, sem áður hefur
verið dæmdur fyrir að nauðga
börnum, situr í varðhaldi í tengsl-
um við hvarf þeirra, en hann neit-
ar sök. Til hans sást nærri staðn-
um þar sem telpurnar, 7 og 10 ára
gamlar stjúpsystur, hurfu úr götu-
veislu í Liege þann 10. júní. - smk
Telpna saknað í Belgíu:
Líkin fundust
við lestarteina
BARNA LEITAÐ Á RUSLAHAUGI Yfir hálfs mán-
aðar leit að tveimur stjúpsystrum lauk í gær.
SPURNING DAGSINS
Gunnar, verður bygging óperu-
hússins tilfinningaþrungin og
langdregin á köflum?
„Nei, þetta verður gert með miklum
léttleika og gleði og við þurfum lengri
tíma til að æfa söngvarana upp fyrir
frumsýninguna.“
Gunnar I. Birgisson sagði að Kópavogsbær
myndi fara rólega í byggingu óperuhússins
sem þar á að rísa, en að framkvæmdum við
það yrði ekki frestað.
STOKKHÓLMUR, AP Sænska stjórnin
skýrði í gær frá metnaðarfullum
áformum um að draga verulega úr
olíunotkun á næstu fjórtán árum.
Meðal annars er stefnt að því að
olía verði ekki notuð til húshitunar
eftir árið 2020 og að bensínnotkun
bifreiðaflotans verði þá minnkuð
um helming.
„Við verðum ekki laus við olíu
árið 2020, en á hinn bóginn verð-
um við ekki háð olíu í neinum
geira, í þeim skilningi að við
höfum aðra kosti,“ sagði Göran
Persson forsætisráðherra þegar
hann kynnti þessi áform í gær.
Hann nefndi þessar hugmyndir
fyrst í september síðastliðnum,
þegar hann lýsti því yfir að Sví-
þjóð gæti orðið fyrsta landið í
heiminum sem þurfi ekki á olíu að
halda. Í gær ítrekaði hann þessi
áform, lýsti þeim nánar og sagði
þau vissulega vera framkvæman-
leg.
„Ég held að við séum í þann
mund að ganga í gegnum róttækar
breytingar á venjum okkar,“ sagði
Persson í gær.
Hugmyndirnar hafa verið
útfærðar af nefnd sem Persson
setti í málið í september síðast-
liðnum. Hann hefur ákveðið að
gera þetta að kosningamáli og
segir að þessi áform verði grund-
vallaratriði í stefnu ríkisstjórnar-
innar að loknum kosningum í
haust, nái Sósíaldemókrataflokk-
urinn nægum þingstyrk til þess að
stjórnin sitji áfram. - gb
GÖRAN PERSSON Forsætisráðherra Svíþjóð-
ar hefur fulla trú á því að Svíþjóð verði ekki
lengur háð olíu árið 2020. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Göran Persson hefur metnaðarfull áform í orkumálum:
Ætlar sér að leysa Svíþjóð að
mestu undan oki olíunnar
DÝRALÍF Þrjár þotur varnarliðsins
flugu meðfram Látrabjargi í gær-
morgun að sögn Gísla Kristjáns-
sonar, sem á jörð þar í grenndinni
og var með ferðahóp við bjargið
þegar atburðurinn átti sér stað.
„Hávaðinn var gífurlegur enda
magnast hann upp í bjarginu og
svartfuglinn fælist og þúsundir
eggja skolast í sjóinn þegar hann
fer í slíku ofboði,“ segir hann.
Hann segir að það sé mikið sjónar-
spil þegar fuglinn fælist í svona
stórum hópum og telur að flug-
mennirnir geri þetta til að verða
vitni að slíku sjónarspili. Ekki
náðist í upplýsingafulltrúa varn-
arliðsins, Friðþór Eydal.
Fuglalíf í Látrabjargi:
Varnarliðsþotur
ógna fuglum
AKRANES Frystihúsi HB-Granda á
Akranesi verður lokað í fimm
vikur í sumar og frystihúsi fyrir-
tækisins á Vopnafirði verður
lokað í þrjár vikur. Á Skaganum
er þegar búið að loka og verður
opnað aftur í lok júlí.
Vilhjálmur Birgisson, formað-
ur Verkalýðsfélags Akraness,
segir að frystihúsi HB-Granda
hafi aldrei verið lokað í svona
langan tíma og því hafi ekkert
verið lokað í fyrrasumar. Þetta sé
bagalegt fyrir þá skólakrakka
sem hafi haft atvinnu í frystihús-
inu á sumrin. „HB hefur verið
fjöregg okkar Akurnesinga í
marga áratugi. Núna bendir allt
til þess að sprunga hafi myndast í
fjöreggið,“ segir Vilhjálmur og
hefur áhyggjur af því að Skaga-
menn hafi engan til að gæta hags-
muna sinna, þar sem allir stjórn-
endur HB hafi horfið á braut.
Eggert Guðmundsson, forstjóri
HB-Granda, segir að ástæðuna
fyrir lokuninni megi finna í kvóta-
stöðunni og verkaskiptingu milli
frystihúsa. Þorskur sé unninn á
Akranesi og ýsa á Vopnafirði,
meira komi til vinnslu á Akranesi
á öðrum árstímum. „Við notum
stoppið til að fjárfesta og byggja
upp aðstöðu til móttöku á fiski inn
í landvinnsluna fyrir nálægt tut-
tugu milljónir,“ segir hann og
bendir á að sjö skólakrakkar hafi
verið ráðnir inn í vor en lánaðir til
Norðanfisks eftir lokunina. - ghs
HB-Grandi lokar frystihúsinu á Akranesi í fimm vikur og þrjár vikur á Vopnafirði:
Sprunga komin í fjöreggið
FJÖREGG AKURNESINGA Sú nýlunda er
í sumar að frystihúsi HB-Granda verður
lokað í fimm vikur og hafa sjö skólakrakkar,
sem ráðnir voru í sumarvinnu, verið lánaðir
til Norðanfisks sem er í eigu HB-Granda.
BYGGÐAMÁL Meginstarfsemi Fæð-
ingarorlofssjóðs flyst til Hvamms-
tanga í janúar á næsta ári og í júlí
sama ár mun umsýsla atvinnu-
leysistrygginga fara fram og vera
staðsett á Skagaströnd. Félags-
málaráðherra tilkynnti þessa
ákvörðun sína í gær. Þetta þýðir
að tíu ný stöðugildi skapast á
Hvammstanga og sex til átta á
Skagaströnd. Skúli Þórðarson,
sveitarstjóri Húnaþings vestra,
hafði lýst yfir væntingum sínum
um að af þessum flutningum yrði
en fjölmörg störf hafa tapast á
Hvammstanga á árinu, til dæmis
vegna lokunar rækjuverksmiðj-
unnar Meleyrar. - jse
Fæðingarorlofssjóður:
18 stöðugildi
norður í land
LONDON, AP Bresk mannréttinda-
samtök hafa beðið stjórnir 32
landa, þar með talið Íslands, um að
koma í veg fyrir að bandarísk yfir-
völd fái aðgang að trúnaðarupp-
lýsingum um millifærslur í gegn-
um belgísku fjármálastofnunina
SWIFT.
Bandarísk yfirvöld fóru fram á
upplýsingarnar í tengslum við
herferð sína gegn hryðjuverkum,
og segja talsmenn þeirra að síðan
árið 2001 hafi þau fylgst með millj-
ónum millifærslna.
Samtökin Privacy International
segja beiðnina brjóta í bága við
lög um persónuvernd.
Belgísk yfirvöld sögðu í gær að
bandaríska fjármálaráðuneytið
hafi eingöngu farið fram á upplýs-
ingar frá skrifstofum SWIFT í
Bandaríkjunum, en ekki víðar um
heim. Yfirvöld í Belgíu og Kanada
láta nú rannsaka hvort skrifstofur
SWIFT þar hafi veitt Bandaríkj-
unum trúnaðarupplýsingar. - smk
Mannréttindasamtök um BNA:
Eiga engan rétt
á upplýsingum
FJÁRMÁLAFYRIRTÆKI Höfuðstöðvar fjár-
málafyrirtækisins SWIFT í Brussel í Belgíu.
RÉTTABLAÐIÐ/AP
Sjálfsmorðsárás Maður á mótorhjóli
gerði sjálfsmorðsárás á bíl þriðja valda-
mesta hershöfðingja Sri Lanka í höfuð-
borg landsins, Colombo, á þriðjudag.
Í árásinni fórst hershöfðinginn ásamt
þremur öðrum og árásarmanninum
sjálfum í sprengingunni.
SRI LANKA