Fréttablaðið - 29.06.2006, Side 8
8 29. júní 2006 FIMMTUDAGUR
EITRUN „Hér er um röð af óhöpp-
um að ræða, ég vil ekki tala um að
neinn hafi gert mistök,“ segir
Árbjörn Magnússon, yfirsund-
laugarvörður í sundlaug Eski-
fjarðar, um klórmengunina sem
átti sér stað á þriðjudaginn.
Daginn eftir slysið var enn
megn klórlykt inni í sundlaugar-
byggingunni. Eins og komið hefur
í ljós var orsök mengunarslyssins
sú að ediksýru var dælt í klórtank
sundlaugarinnar fyrir mistök.
Slanga var tengd úr tanki sem var
í bíl við hliðina á sundlauginni og
starfsmaður Olís var við bílinn
þegar dælun hófst. Að sögn
Árbjörns varð starfsmaðurinn
strax var við að ekki væri allt með
felldu og tjáði Árbirni að hér væri
klórgas á ferð. „Þegar hann sá
þessa gulu slikju koma frá tank-
herberginu sagði hann mér að
hlaupa strax inn og hringja á
slökkviliðið, hann þekkti það um
leið að þetta væri klórgas.“
Árbjörn segir það lán í óláni að
klórtankurinn var næstum því
tómur og verr hefði getað farið.
Árbjörn sá að sundlaugargestir
gripu um vit sín og hlupu inn í
búningsklefana en klórgasið hafði
dreifst út um allt hús gegnum loft-
ræstikerfið. Ástandið var því síst
skárra þar. Árbjörn hringdi strax
í neyðarlínuna og sundlaugarverð-
ir drifu sundlaugargesti út undir
bert loft.
Lögreglan mætti strax á stað-
inn og tók yfir stjórn á vettvangi.
Árbjörn segir að starfsmaður Olís
hafi getað veitt lögreglu allar upp-
lýsingar á staðnum. Starfsmönn-
um sundlaugarinnar var ekki
hleypt aftur inn í sundlaugina
fyrr en um kvöldið, eftir að jafn-
vægi hafði verið komið á klór-
tankinn og loftið hreinsað.
„Fólk hefur mikið verið að
hringja í dag og spyrja um fötin
sín,“ segir Árbjörn en fæstir höfðu
tíma til að grípa fötin með sér á
hlaupum út úr byggingunni.
Árbjörn er mjög ánægður með
viðbrögð lögreglu og annarra í
þessum aðstæðum. „Þetta gekk
allt mjög hratt fyrir sig og allir
stóðu sig vel.“ - sdg
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
YF
33
26
5
0
6/
20
06
www.lyfja.is
„Ég geri meira fyrir mig og mína á sumrin“
Aqualina
Með kaupum á 2 hlutum í Aqualina
færðu kirsuberja-lotion 250 ml frítt með.*
Demak´up
Hágæða 100% náttúrulegar
bómullarvörur til andlitshreinsunar.
Kaupauki fylgir með í verslunum.
Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni - Egilsstöðum - Höfn - Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað
Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði - Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki
Blönduósi - Hvammstanga - Skagaströnd - Selfossi - Laugarási
Imedeen Tan Optimizer
Hylkin verka innan frá og örva
myndun á fallegri sólbrúnku. Ver einnig
húðina gegn öldrun af völdum sólar.
Fyrir fallegri húð – 1 hylki á dag.
nýtt í Lyfju
kaupauki
* Á meðan birgðir endast.
VEISTU SVARIÐ?
1 Hvað heitir bandaríski auðkýfingur-inn sem ætlar að gefa 1,5 milljarða
dala á ári til líknarmála?
2 Hvað hét bjarndýrið ítalskættaða sem var fellt í vikunni í Bæjaralandi
í Þýskalandi?
3 Hvaða sjúkdómur olli því að Harry Kewell, leikmaður ástralska lands-
liðsins, gat ekki leikið gegn Ítölum í
sextán liða úrslitum HM í Þýskalandi?
EITRUN Það voru mannleg mistök
flutningabílstjóra sem urðu til
þess að ediksýru var dælt í klór-
geymi sundlaugarinnar á Eskifirði
í stað klórs í fyrradag, að sögn
Þorsteins Ólafssonar, forstöðu-
manns heildsöludeildar Olís. Bíl-
stjóri á vegum fyrirtækisins var
að ferma bíl sinn með klóri til
flutninga í sundlaugina en tók
ediksýru fyrir misgáning. Hann
dældi henni síðan óafvitandi á
klórgeymi sundlaugarinnar.
„Við erum að átta okkur á því
hvað hefur farið úrskeiðis og
hvers vegna. Það er númer eitt hjá
okkur að sjá til þess að svona lagað
gerist ekki aftur.“ - sþs
Eitrunarslysið á Eskifirði:
Mannleg mis-
tök bílstjóra
EITRUN Katrín Jóhannsdóttir vinn-
ur í Shell-skálanum sem er við
aðalgötu Eskifjarðar. Hún segir
að stöðugur straumur hafi verið
af fólki þangað, bæði til að koma
með fréttir og leita frétta. „Það
vissu flestir heimamenn hvað
gengi á, en aðkomufólk kom til
okkar forviða yfir hvað gengi á.“
Að sögn Katrínar telur bæjarfólk
almennt að vel hafi verið brugðist
við aðstæðum. - sdg
Forvitnir aðkomumenn:
Leituðu frétta
í Shell-skála
EITRUN „Allt í einu gat fólk ekki
andað en við sáum aldrei neinar
gufur,“ segir Arnfríður Hafþórs-
dóttir lögreglukona. „Fullorðnir
fóru strax að drífa krakkana upp
úr lauginni og inn í klefana en það
var ekki hægt að anda þar heldur
og þá drifum við alla alveg út.“
Arnfríður lét keyra sig heim
svo hún gæti drifið sig í lögreglu-
búninginn yfir bikiníið og fór svo
beint í vinnu. Arnfríður segir að
frábært hafi verið að fylgjast með
hvað samvinnan gekk vel milli
fagaðila sem og almennings. - sdg
Lögreglukona í sundlauginni:
Brást strax við
mengunarslysi
TILKYNNING Bæjaryfirvöld í Fjarða-
byggð eru þakklát þeim fjölmörgu
sem aðstoðuðu þá sem urðu fyrir
klórgaseitrun í gær og komu
þannig í veg fyrir frekari skaða.
Þetta kemur fram í tilkynningu
sem Fréttablaðinu barst í gær.
„Það er samdóma álit þeirra
sem að komu að allt hjálparstarf
hafi gengið einstaklega vel og fag-
mannlega fyrir sig og allir hafi
verið boðnir og búnir til þess að
gera allt sem í þeirra valdi stóð til
þess að aðstoða.“ Þá segir í til-
kynningunni að það sé harmað að
þessi atburður hafi orðið í einni af
stofnunum sveitarfélagsins og að
lögð verði áhersla á að slíkir
atburðir hendi ekki aftur.
Flestir þeirra sem urðu fyrir
eitrun voru útskrifaðir af sjúkra-
húsi í gær. - öhö
Bæjaryfirvöld í Fjarðabyggð:
Þakka skjót
viðbrögð
ARNFRÍÐUR HAFÞÓRSDOTTIR Áttaði sig fljótt
á aðstæðum og tók til starfa.
Röð af óhöppum
Yfirsundlaugarvörður segir mengunarslys í sundlaug Eskifjarðar engum að
kenna heldur hafi þetta verið röð keðjuverkandi óhappa. Strax var ljóst að um
klórgasmengun væri að ræða.
KJARAVIÐRÆÐUR Félagsmenn í
BHM, háskólamenntaðir starfs-
menn á Svæðisskrifstofum um
málefni fatlaðra, ætla að safnast
saman fyrir utan skrifstofu BHM
í Borgartúni eftir hádegið í dag til
að sýna samningamönnum ríkis-
ins að þeir séu ekki sáttir við þró-
unina í kjaraviðræðunum við
ríkið.
Um fjörutíu BHM-félagar fóru
í fjármálaráðuneytið og félags-
málaráðuneytið í gærmorgun til
að afhenda áskorun á ráðherrana
um að tryggja nægilegt fjármagn
svo að hægt sé að gera stofnana-
samning milli BHM og Svæðis-
skrifstofu málefna fatlaðra.
Háskólamenntaðir starfsmenn
ríkisins á Svæðisskrifstofum mál-
efna fatlaðra vilja 25 þúsund
króna launahækkun eða sömu
hækkun og háskólamenntaðir
starfsmenn í sams konar störfum
hjá sveitarfélögunum.
Ásta Knútsdóttir, félagi í
Þroskaþjálfafélagi Íslands, segir
að hópnum hafi verið ágætlega
tekið en þau hafi orðið fyrir von-
brigðum með að fá ekki að hitta
ráðherrana. Hún segir að þau séu
vonglöð um að nú komist hreyfing
á samningamálin.
„Við vonumst til að nú losni um
fjármagn til að semja um þessi
sanngjörnu laun sem við förum
fram á,“ segir hún. „Kannski nást
ekki samningar í dag en vonandi
fljótlega.“ - ghs
AFHENTU ÁSKORUN Ráðherra fékk afhenta
áskorun í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Háskólamenntaðir starfsmenn á Svæðisskrifstofum afhentu áskorun til ráðherra:
Vonglaðir um fjármagn
FRAMKVÆMDIR Ákvörðun ríkisstjórn-
arinnar um að fresta útboðum og
framkvæmdum hins opinbera það
sem af er 2006 og 2007 nær ekki til
framkvæmda sem hafnar eru.
Jón Rögnvaldsson vegamála-
stjóri segir að ákvörðunin nái
hugsanlega til Sundabrautar en
einkum nái hún til vegafram-
kvæmda á Vestur- og Norðaustur-
landi sem verða boðnar út síðar á
þessu ári og því næsta.
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis-
ráðherra segir að ákvörðunin
snerti fáar framkvæmdir innan
heilbrigðisráðuneytisins. Verið sé
að kanna hvort hún geti haft áhrif
á viðbyggingu á Siglufirði. - ghs
Vegaframkvæmdir:
Framkvæmdir
skornar niður
KLÓRTANKURINN Ediksýru var dælt í tank-
inn fyrir mistök. FRÉTTABLAÐIÐ/HELGI GARÐARSSON
ÁRBJÖRN MAGNÚSSON Sundlaugarvörðurinn á Eskifirði segir um röð af óhöppum að ræða þegar klórgasmengun varð í sundlauginni á
Eskifirði. FRÉTTABLAÐIÐ/HELGI GARÐARSSON
KATRÍN JÓHANNSDÓTTIR Aðkomumenn
voru forviða og spurðu hana frétta.