Fréttablaðið - 29.06.2006, Side 17
FIMMTUDAGUR 29. júní 2006 17
FRAKKLAND, AP Á flestum stöðum í
Frakklandi má ekki hafa verslarnir
opnar á sunnudögum, en á
verslunargötunni Champs-Elysées
eru þó leyfðar undantekningar.
Flókin reglugerð ræður ferð og
tvær lögsóknir munu brátt skera
úr um hvað má og hvað má ekki.
Franskir verslunarmenn og
verkalýðsfélögin hafa eldað grátt
silfur um hvort hafa megi búðir
opnar á hvíldardeginum eða ekki.
Kaupmenn vona að sunnudags-
opnun geti dregið eitthvað úr
atvinnuleysinu sem þjakar Frakk-
land, en það mælist nú 9,3 prósent.
Nú er svo komið að tveir hópar
hafa lagt fram kæru vegna nýrrar
tveggja ferkílómetra verslunar-
miðstöðvar á Champs-Elysées sem
mun verða opin á sunnudögum.
Ákærendurnir, Félag fataiðnaðarins
og Kristilega verkalýðsfélagið,
segja að búðir muni ekkert græða
á þessum opnunartíma og vera
stórlega undirmannaðar á álags-
tímum.
Í Evrópu eru reglur um opnunar-
tíma verslana mismunandi eftir
löndum. Í Póllandi og Króatíu
mega búðir hafa opið á sunnudögum,
en kaþólska kirkjan hefur barist
hatrammlega gegn því. Í Þýska-
landi hefur kaupmönnum verið
leyft að breyta afgreiðslutíma í
verslunum sínum meðan á heims-
meistarakeppninni í knattspyrnu
stendur, þó að stjórnarskráin frá
1949 leggi blátt bann við öðru en
hvíld og trúariðkun á hvíldar-
deginum. -sgj
Á CHAMPS ELYSÉES Skotar í eyðsluham á
Parísarbreiðgötunni frægu. Frakkar deila nú
um sunnudagsopnun verslana við hana.
Hvíldardagurinn er haldinn heilagur í Frakklandi - of heilagur að mati margra:
Vilja hafa opið á sunnudögum
SVÍÞJÓÐ, AP Sænskur dómstóll
felldi á mánudag dóm yfir manni
af sómölskum uppruna, sem
ákærður var fyrir að neyða dóttur
sína í umskurð. Maðurinn, Ali
Elmi Hayow, er sænskur ríkis-
borgari en fór með dóttur sína, þá
þrettán ára gamla, úr landi í janúar
2005 til Mogadishu í Sómalíu til að
láta umskera hana, en talið er að
um þrjár milljónir stúlkna hljóti
þessa hrottalegu meðferð ár
hvert.
Umskurður kvenna hefur verið
bannaður í Svíþjóð frá árinu 1982,
en þetta er fyrsta ákæran vegna
hans þar í landi. Sakvæmt lögunum
er einnig refsivert að flytja barn
úr landi til slíkrar aðgerðar. Hayow
þarf að greiða dóttur sinni sem
svarar þremur og hálfri milljón
íslenskra króna í skaðabætur. - sgj
Svíi frá Sómalíu dæmdur:
Neyddi dóttur
sína í umskurð
RÚMENÍA, AP Að minnsta kosti tveir
eldri borgarar létu lífið í hitabylgju
sem hefur gengið yfir norðurhluta
Rúmeníu síðustu daga. Kona sem
var að störfum við akuryrkju féll
niður og lést úr hjartaáfalli og
sömu sögu er að segja af áttatíu og
átta ára gömlum manni sem var á
leiðinni út í búð.
Í einni borginni var hringt
hundrað og fjörutíu sinnum á
sjúkrabíl vegna ástandsins og
hefur heilbrigðismálaráðneyti
Rúmeníu varað fólk við uppþornun
og ofreynslu í hitanum. - kóþ
Hitabylgja í Rúmeníu:
Eldri borgarar
deyja úr hita
FLÓÐ Í TARLISUA Í RÚMENÍU Hitabylgjan í
Rúmeníu kemur í kjölfar mikilla flóða fyrr í
mánuðinum. NORDICPHOTOS/AFP
AÐGENGI Blindrafélagið og Sérsveit
Hins Hússins standa að verkefni
sem á að vinna að bættu aðgengi
blindra og sjónskertra að veitinga-
stöðum og kaffihúsum í Reykja-
vík. Þetta kemur fram í tilkynningu
frá félögunum.
Með bættu aðgengi er til dæmis
átt við matseðla á blindraletri og
með stækkuðu letri, en einnig
getur lýsing, hávaði og uppröðun
borða haft áhrif. Þeir sem standa
að verkefninu munu hafa samband
við staði og bjóða fram þjónustu
sína, að þýða og prenta út matseðla
á blindraletri og gera hljóðlesningu
á matseðli sem síðan er sett á
geisladisk. - sþs
Blindrafélagið og Hitt Húsið:
Þýða matseðla
á blindraletur
NOREGUR, AP Efnahagsbrotadeild
norsku lögreglunnar hóf í gær
rannsókn á samningum milli
norska hersins og þýska fyrirtæk-
isins Siemens. Óháð rannsóknar-
nefnd komst nýverið að þeirri
niðurstöðu að Siemens hafi
vísvitandi sent norska hernum of
háa reikninga fyrir verkefni, sem
unnin voru á árunum 2000 til 2004.
Samtals nemur upphæðin, sem
ofreiknuð var, um 450 milljónum
íslenskra króna. Nefndin sagðist
einnig hafa upplýsingar um
óviðeigandi gjafir til starfsmanna
hersins og ráðgjafa, en vildi þó
ekki fullyrða hvort þessar gjafir
væru ólöglegar. - gb
Norski herinn:
Rannsókn á
spillingu hafin
LÍKAMSÁRÁS Rétt liðlega tvítugur
maður var í gær ákærður fyrir
sérstaklega hættulega líkamsárás,
eins og segir í ákærunni.
Honum er gefið að sök að hafa
slegið mann í höfuðið með gler-
flösku, inni á Thorvaldsen bar við
Austurvöll í septembermánuði í
fyrra. Maðurinn hlaut skurð í
hársvörð eftir árásina.
Ákæruvaldið krefst refsingar
yfir manninum og verður málið
tekið fyrir síðar á þessu ári. - æþe
Líkamsárás á Thorvaldsen:
Lamdi mann
með glerflösku
ÞÚ GETUR FARIÐ
HVERT SEM ER ...
MEÐ FERÐAÁVÍSUN
MASTERCARD
Sæktu um MasterCard kort
með ferðaávísun hjá þínum
banka eða sparisjóði og þú
færð 5.000 kr. stofnávísun.
Í hvert skipti sem þú notar kortið þitt hækkarðu næstu ávísun og getur
notað hana til að lækka ferðakostnaðinn. MasterCard ferðaávísun gildir sem
greiðsla upp í allar ferðir til útlanda og innanlands líka.
Golfferðin að sjálfsögðu, en líka netflug, viðskiptaferðir, borgarferð eða
sumarfrí á sólarströnd með fjölskyldunni. Þitt er valið. Nýttu þér ferðafrelsið
sem ferðaávísun MasterCard veitir þér og sæktu um kort strax í dag.
Nánari upplýsingar á kreditkort.is
Ávísu
nin g
ildir s
em g
reiðs
la inn
á ein
a ferð
í mill
iland
aflug
i sem
skipu
lögð
er af
ferða
skrifs
tofu
eða f
lugfé
lagi í
sams
tarfi
við
Mast
erCar
d. Up
plýsin
gar u
m sam
starfs
aðila
má n
álgas
t á w
ww.k
redit
kort.
is. Fe
rðina
verðu
r að g
reiða
með
Mast
erCar
d
korti
. Not
kun f
erðaá
vísun
ar mi
ðast
við a
ð árg
jald a
f kor
tinu s
é gre
itt.
GREIÐ
IÐ IN
N Á
FERÐ
AREIK
NING
SEM
ER HA
NDHA
FI
MAST
ERCA
RD K
ORTS
NR.
KRÓN
UR
REYK
JAVÍK
Gegn
fram
sali
Staðf
estin
g
Eingö
ngu e
r hæg
t
að ný
ta ein
a ávís
un
í hve
rja fe
rð.
Fimm
þúsu
nd
5.000
–
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA