Fréttablaðið - 29.06.2006, Blaðsíða 26
29. júní 2006 FIMMTUDAGUR26
hagur heimilanna
MATUR OG NÆRING JÓHANNA EYRÚN TORFADÓTTIR NÆRINGARFRÆÐINGUR
Nú þegar sumarið er
komið leggja margar
fjölskyldur land undir fót
og ferðast um Ísland
Landið býður upp á ótal möguleika
til útivistar og afþreyingar og fjöl-
margir gististaðir eru í boði. Ferða-
þjónusta bænda býður upp á um
hundrað og fimmtíu gististaði og
er þeim sífellt að fjölga. Oddný B.
Halldórsdóttir hjá Ferðaþjónustu
bænda segir aukninguna jafna og
þétta síðustu ár. „Við höfum úr svo
mörgu að velja í Ferðaþjónustu
bænda, við erum bæði með bústaði,
sveitahótel og gistingu hjá bænd-
unum þannig að það geta allir fund-
ið eitthvað við sitt hæfi og það
hefur líka aukist að bændur bjóði
upp á afþreyingu,“ segir Oddný.
Hún segir að flestir ferðamennirn-
ir sem gista hjá ferðaþjónustunni
séu erlendir og bóki með löngum
fyrirvara en Íslendingarnir eru
vanalega ekki svo fyrirhyggjusam-
ir.
Fréttablaðið gerði lauslega
könnun á því hvað þriggja daga
ferðalag kostar fyrir fjögurra
manna fjölskyldu. Önnur ferðin er
farin frá Akureyri og haldið til
Vesturlands en hin ferðin er farin
frá Reykjavík og keyrt um Aust-
urland. Verð er nokkuð misjafny
en svefnpokaplássin eru að öllu
jöfnu mun hagstæðari en gisting í
herbergi. Gera má ráð fyrir að
gisting fjögurra manna fjölskyldu
í þrjá daga í herbergi og með
morgunmat á bændagistingu kosti
um 30.000 krónur. Á þeim stöðum
sem Fréttablaðið talaði við er
boðið upp á afslátt fyrir börn og
unglinga og á flestum stöðum er
boðið upp á að börn fái dýnu inn til
foreldranna. Einnig bjóða flestir
staðirnir upp á hópafslátt.
gudrun@frettabladid.is
„Ég hef aldrei gert virkilega góð kaup á bílum.
Ég held að ein verstu kaup sem ég hef á
ævinni gert hafi verið þegar ég keypti
mér nýjan vélsleða, þeir falla svo
rosalega hratt í verði. Heimskuleg fjár-
festing en hins vegar mjög skemmti-
leg,“ segir lögreglumaðurinn Þorsteinn
Pétursson. „Það er í raun og veru alveg
glórulaust að kaupa sér vélsleða nema
maður hafi mjög gaman af þessu.“
Hvað varðar bestu kaupin nefnir hann
hluta í veiðarfæri á skip sem hann
keypti á uppboði fyrir mörgum
árum. „Ég var ekkert alveg
viss hvað ég var að kaupa,
ég bauð í þetta af algjörri
rælni. Þetta voru rúllur í
trollgálga á skip sem ég
borgaði nokkur hundr-
uð krónur fyrir og seldi svo síðar á tugi þúsunda.
Ég held að það séu ein bestu kaup sem ég
hef gert.“ Þorsteinn, eða Steini lögga eins og
hann er oft kallaður, hlaut nýlega íslensku
forvarnarverðlaunin þegar þau voru afhent
í fyrsta skipti. Hann hefur sinnt forvarnar-
og fræðslustörfum lögreglunnar á Akureyri
síðustu sjö ár.
„Annars er ég nýbúinn að festa kaup á
heitum potti í sumarbústað okkar hjón-
anna í Skíðadal. Þetta er svona rafmagns-
hitapottur sem er mjög auðvelt
að hreinsa og ganga frá, ég sé
alls ekki eftir þeim
kaupum. Ég er
ekki slyngur í við-
skiptum, en það
voru góð kaup í
mínum augum.“
NEYTANDINN: ÞORSTEINN PÉTURSSON FORVARNAR- OG FRÆÐSLUFULLTRÚI
Vélsleðar ekki mjög góð fjárfesting
Þrátt fyrir að heimsmeistaramótið í knattspyrnu sé enn í fullum gangi
eru margir áhugasamir um íslenska knattspyrnu. Samkvæmt lauslegri
könnun Fréttablaðsins kostar 1.200 krónur inn á leiki í Landsbanka-
deild karla fyrir 17 ára og eldri. Fyrir krakka á aldrinum 11-16 ára
kostar venjulega 300 krónur en þau geta þó fengið boðsmiða frá
Landsbankanum og komist þannig ókeypis inn. Fyrir börn yngri en
tólf ára er ókeypis. Ef miðinn er keyptur á vefslóðinni midi.is þá er verðið
aðeins lægra eða 1.000 krónur fyrir fólk 17 og eldri en 300 krónur
fyrir börn á aldrinum 11-16 ára. Hjá flestum félögum er ókeypis
inn á leiki í Landsbankadeild kvenna en þó ekki öllum.
■ Hvað kostar... á völlinn
Ókeypis fyrir börn yngri en 11 ára
GÓÐ HÚSRÁÐ
SUNDFÖTIN Í PLASTPOKA
■ Svanfríður Inga Jónasdóttir, bæjar-
stjóri í Dalvíkurbyggð, hefur gott ráð
handa sundköppum.
„Fyrir þá sem fara
mikið í sund mæli
ég með því að
þeir setji sundfötin
sín í plastpoka og
geymi þau þannig í
sundtöskunni. Það
er svo rosalega gott
að skilja sundfötin
frá öðrum hlutum í
töskunni því að þá
er engin hætta á að allt annað í tösk-
unni blotni. Svo þarf heldur ekki að taka
sundfötin sérstaklega upp úr töskunni
til að þurrka þau þegar heim er komið.
Þetta er praktískt ráð sem ég hef kennt
fjölmörgum.“
Svefnpokaplássin
hagstæð
■ LAGT AF STAÐ
FRÁ AKUREYRI
OG KEYRT VESTUR
■ Hof í Vatnsdal - 20 rúm
➦ Svefnpokapláss: 2.500
➦ 2 manna herbergi með baði, með
morgunmat, tveir gista: 9.900
➦ 2 manna herbergi án baðs, með
morgunmat, tveir gista: 7.500
➦ Morgunmatur er innifalinn með
herbergjunum
➦ Hægt að fá dýnu inn fyrir börn gegn
vægu gjaldi.
■ Heydalur í Mjóafirði,
Ísafjarðardjúp - 18 rúm
➦ Svefnpokapláss:
6.000 ef tveir gista í herbergi
➦ Svefnpokapláss:
3.500 ef einn gistir í herbergi
➦ 2 manna herbergi með baði,
tveir gista: 8.000
➦ 2 manna herbergi með baði,
einn gistir: 5.500
➦ Morgunmatur: 900
➦ Uppábúin dýna fyrir börn kostar 500
krónur, ekki tekið aukagjald ef börnin
sofa inní í herbergjunum, ekki aukagjald
fyrir börn í svefnpokaplássi
■ Breiðavík við Látrabjarg - 68 rúm
➦ Svefnpokapláss: 2.000 hver svefnpoki
➦ Herbergi með baði og morgunmat: 6.000
➦ Herbergi án baðs, án morgunmatar: 3.000
➦ Morgunmatur: 900
➦ Ókeypis fyrir börn 6 ára og yngri og hálft
verð fyrir börn frá 7-12 ára. Ellilífeyrisþegar
fá 10 prósenta afslátt.
■ LAGT AF STAÐ FRÁ
REYKJAVÍK OG
KEYRT AUSTUR
■ Eystri-Sólheimar í Mýrdal 18 rúm
➦ Svefnpokapláss: 2.000 án morgunmatar
➦ 2 manna herbergi án baðs,
tveir gista: 8.000
➦ 2 manna herbergi án baðs,
einn gistir: 6.000
➦ Morgunmatur er innifalinn með herbergj.
➦ Morgunmatur: 800
➦ 12 ára og eldri borga fullt verð,
yngri en 12 ára borga hálft verð
■ Smyrlabjörg í Suðursveit - 90 rúm
➦ Svefnpokapláss: aðeins í boði yfir
vetrartímann
➦ 1 manns herbergi með baði, með
morgunmat: 7.450
➦ 2 manna herbergi með baði, með
morgunmat: 12.600
➦ 3 manna herbergi með baði, með
morgunmat: 17.530
➦ 12 ára og eldri borga fullt verð, yngri en
12 ára borga hálft verð, yngri en 6 ára fá
frítt
■ Eyjólfsstaðir á Völlum - 37 rúm
➦ Svefnpokapláss: 2.100 án morgunmatar
➦ 1 manns herbergi án baðs, með
morgunmat: 5.500
➦ 2 manna herbergi án baðs, með
morgunmat: 8.500
➦ 3 manna herbergi án baðs, með
morgunmat: 11.700
➦ Morgunmatur: 900
➦ 12 ára og eldri borga fullt verð, yngri
en 12 ára borga hálft verð
ÚTGJÖLDIN
> Strætisvagnaferð fullorðinna í Reykjavík, stakt fargjald,
ein ferð.
Skíðaferðir eru alltaf vinsælar hjá Íslendingum
á veturna og nú hafa Heimsferðir hafið sölu á
skíðaferðum til Salzburg í Austurríki. Ferðirnar
eru í janúar og febrúar og er flogið í beinu flugi til
Salzburg að morgni og komið út um hádegi. Í ár er
boðið upp á þá nýjung að skíðaunnendur geta nú
valið um að dvelja í 9, 12, eða 14 daga.
Frá Salzburg er stutt að fara á aðra skíðastaði eins
og Flachau og Zell am See og bjóða Heimsferðir upp á gistiaðstöðu á öllum þessum
stöðum. Flug fram og til baka með sköttum kostar frá 29.990 krónum.
■ Verslun og þjónusta
Skíðaferðir í beinu flugi
Ákjósanlegasta fæða fyrir ungbarn
er brjóstamjólk. Brjóstagjöf veitir
ungbarninu fullkomna næringu og
einnig nánd og ástúð. Þegar kemur
að föstu fæði hjá barninu upphefjast
ýmsar vangaveltur um hvað megi gefa
því og hvað því þyki gott. Þegar barnið
getur matast sjálft er mikilvægt að vera
ávallt nálægt bæði vegna hættu á að
maturinn standi í því, og líka vegna
þess að við þurfum öll á því að halda
að matast í góðum félagsskap.
Mikilvægt er, fyrir þroska barna, að
setið sé til borðs með þeim meðan á
máltíð stendur. Þau læra þá hvernig
á að bera sig að við matinn. Þau læra
einnig að þekkja sitt magamál. Meðan
á máltíð stendur eiga börnin vonandi
notalegar samræður við foreldra sína
um atburði dagsins (án þess að sjón-
varpið sé í gangi) og síðast en ekki síst
fá börnin öll þau næringarefni sem þau
þarfnast. Fái börn hollan og næringar-
ríkan mat frá unga aldri aukast líkur á
að þau haldi áfram að borða hollan og
fjölbreyttan mat þegar þau eldast.
Orkuþörf barna er mismunandi eftir
því hvað þau hreyfa sig mikið. Börn
þurfa einnig hlutfallslega meiri orku en
fullorðnir á hvert kíló líkamsþyngdar,
vegna þess að hluti af orkuþörf þeirra
fer í vöxt beina og vefja.
Fyrir börn og fullorðna gilda nokk-
urn veginn sömu ráðleggingar um
mataræði. Þó ber að hafa í huga að
börn þurfa að fá reglulegar máltíðir og
mikilvægt er að ekki líði of langur tími
á milli þeirra. Yngri börnin þurfa oft að
fá orkuríkari fæðu þar sem þau geta
ekki borðað eins mikið í einu og þau
sem eldri eru og þá er mikilvægt að
hafa hvern munnbita orkuþéttan, t.d.
með því að nota feitari mjólkurvörur
og nota mjúkt viðbit á fiskmáltíðir og
brauð.
Öll börn þurfa daglega að fá :
• Grænmeti og ávexti, bæði með
máltíðum og á milli mála.
• Trefjaríkar kornvörur, t.d. gróft brauð
og haframjöl.
• Fisk, kjöt, egg eða baunarétti.
• Mjólkurvörur
• Vatn til drykkjar
• Lýsi eða annan D-vítamíngjafa.
Gosdrykki, ís, snakk og sælgæti ætti
einungis að bjóða til hátíðabrigða og
þurfa fullorðnir að sýna gott fordæmi
í matarvali því ekki er hægt að ætlast
til þess að börn hagi sér öðruvísi en
fullorðna fólkið. www.mni.is
Hlúum vel að mataræði barna okkar
20
0
K
R
Ó
N
U
R
25
0
K
R
Ó
N
U
R
15
0
K
R
Ó
N
U
R
2000 2003 2006
Heimild: Hagstofa Íslands
Íslenskt grænmeti nýtur sívaxandi vinsælda hjá
landsmönnum en uppskera paprikunnar gengur
mjög vel í ár. Uppskeran í ár mun verða í kring-
um 108 tonn en hún var til að mynda rúm 70
tonn árið 2004. Íslenska paprikan er auðþekkj-
anleg en tvær og tvær eru seldar saman í pakka og
eru sérmerktar. Þar sem paprikurnar eru pakkaðar inn viðhalda þær ferskleika sínum
betur en þær erlendu. Paprikurnar fást yfirleitt í grænum, gulum og rauðum lit en
litirnir sýna þroskastig paprikunnar. Sú græna er minnst þroskuð en rauðar og gular
eru meira þroskaðar og innihalda jafnframt meira af vítamínum. Best er að geyma
papriku í ísskáp við 8-12 gráðu hita. Einnig er hægt að frysta hana og borða hana
seinna en það þarf að neyta hennar fljótlega eftir að hún hefur þiðnað.
■ Verslun og þjónusta
Íslenskar paprikur njóta
sívaxandi vinsælda
Þau fyrirtæki sem bjóða upp á bifreiðatryggingar á Íslandi ætla að hækka iðgjöld
sín á árinu eða hafa nú þegar gert það. Sjóvá-Almennar reið á vaðið með fjögurra
prósenta hækkun í janúar síðastliðnum, Tryggingamiðstöðin hækkar sín gjöld um
rúm fimm prósent þann 1. júlí og VÍS ætlar að hækka sín iðgjöld um fimm prósent
þann 1. ágúst. Fulltrúi Varðar sagði að hækkun iðgjalda væri í undirbúningi þó ekkert
hafi verið tilkynnt opinberlega enn. Öll fyrirtækin segja aukinn tjónakostnað vera
meginástæðuna fyrir hækkuninni.
■ Verslun og þjónusta
Tryggingafélögin hækka iðgjöldin
ATLAVÍK Það færist í vöxt
að bændur bjóði gestum
ýmsa afþreyingu.